Heimilistíminn - 31.10.1974, Side 9

Heimilistíminn - 31.10.1974, Side 9
— Datt mér ekki i hug, sagði Maria. — Nizkupúkinn sá arna! Nei, við skulum komast af án hans hjálpar, svo sannarlega*' Og það tókst þeim. Allan veturinn drukku þau mjólk og borðuðu heygraut með nokkr- um grjónum i. Seint um kvöld haustið eftir kom Einar riðandi á Silfru yfir heiðina. Hann var að koma úr bænum, þar sem hann hafði selt kartöflur og grænmeti. Svört ský voru að hrannast upp á himninum, og Silfra flýtti sér til að ná heim, áður en óveðrið skylli á. En þá heyrði Einar ein- hver undarleg hljóð utan úr mýrinni, og þegar hann nálgaðist, sá hann að það var tröllkarlinn sjálfur, sem lá þar og hljóðaði. Eftir þvi að dæma hvað hann var hás, var hann búinn að liggja þarna lengi. — Hjá álllp! hrópaði hann. — Ég er meiddur! veinaði hann og baðaði út öllum öngum. — Einmitt það, sagð Einar hinn rólegasti. — Einar, mikið var gott að þú komst með Silfru og tóman vagn. Ég er mikið meiddur, kvartaði tröllkarlinn. — Ég var á leiðinni yfir mýrina, þegar ég hrasaði um trjárót og datt. Fóturinn er svo snúinn, að ég get ekki stigið i hann. Gott að þú komst. — Einmitt það, sagði Einar aftur, og lét sem hann skildi ekki málið! Tröllkarlinn deplaði aug unum. Skildi Einar hann ekki Hann kæmist aldrei heim til sin svona fyrir sólarupprás, og sólin er versti óvinur trölla. Ef hún nær að skina i augu þeirra, springa þau. Tröllkarlinn skalf af hræðslu. Hugsa sér ef hann springi snemma i fyrramálið. — Ætlarðu ekki að hjálpa mér, Einar? spurði hann skjálfandi. — Hjálpa þér. Nú finnst mér, að þú eigir að sjá um þig, ég sé um mig. Þá mundi tröllkarlinn, að hann hafði einmitt sagt þessi orð um veturinn, þegar Einar hafði beðið hann að lána sér hveitið. Hann skammaðist sin. Hvernig gat hann átt von á að Einar vildi hjálpa honum, þegar hann hafði verið svona hjartalaus við hann, þegar hann þurfti hjálp? Einar ræskti sig. — Hmmm, hmm. Tröllkarlihn horfði dapur á, og hann skildi, að hann langaði ekkert til að hjálpa honum. — Ég hef skipt um skoðun, sagði þá Einar. — Seztu upp á vagninn, og svo reynum við að ná heim, áður en óveðrið skellur á. Tröllkarlinn var nú ekki seinn á sér, og Silfra stökk af stað eins hratt og hún komst. Tröllkarlinn valt aftur og fram i vagninum, en kærði sig kollóttan, þar sem hann kæmist heim, áður en sólin kæmi upp. Hann var svo glaður, að hann gleymdi meira að segja verknum i fætinum. Morguninn eftir var óveðrið gengið yfir, og sólin kom snemma upp. Sólargeislarnir skinu yfir mýrina, en þar var enginn tröllkarl. Hann var öruggur i rúminu sinu inni i Bláfjalli. En upp frá þessu var tröllkarlinn ekki nizkur. Á hverjum vetri, þegar fór að liða á, fann Einar tvo hveiti- poka fyrir utan dyrnar. Það var gjöf frá tröllkarlinum, sem hafði lært að hjálpa ná- grannanum. HVAO VEIZTU 1. t hvaða landi varö mest manntjón i síðari heimsstyrjöldinni? 2. Hvað eru mörg stykki i einu grossi? 3. Hvað er andstætt sætu, þegar talað er um vin? 4. Hvað heitir hæsta fjall á Bretlands- eyjum? 5. Hvað nefnist 40 ára brúðkaups- afmæli? 6. Hvað er StS gömul stofnun? 7. Hvernig dó Jóhannes skírari? 8. Hver skapaði söguhetjuna Tarzan? 9. Hvað er Suðurpóllinn hátt yfir sjávarmáli? 10. Hvað er kefliö langt sem notað er i boðhlaupi? Hugsaðu þig vandiega um — en svörin er að finna á bls. 39. HI&GIÐ — Hvaða dagsetning sagðirðu að ætti að vera á boðskortunum? — Þjónn þaö er dauð fluga I súpunni minni. — Já, það er leiðinlegt með aliar þess- ar dauðu flugur. Þær þoia likiega ekki suðu. 9

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.