Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 13

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 13
Steingrlmur Steinþórsson. Síðustu áratugir 19. aldar voru átaka- og umbrotatímar i Þingeyjarsýslu. Fyrsta samvinnufélag landsins var stofnað 1882 i einhverri hörðustu illviðra- hrynu, sem yfir landið hefir gengið. Enn hefir þjóð vor ekki nema að nokkru leyti kunnað að meta, hversu mikið hún á að þakka þingeysku bændunum, sem næstu áratugina eftir stofnun Kaupfélags Þingeyinga stóðu i þrotlausri baráttu við erlent auðvald og kaupmannavald, stutt af skammsýnum, afturhaldssömum Islendingum, er voru þjónar og fylgis- menn hinna erlendu drottna — hinna erlendu selstöðukaupmanna, sem ekkert höfðu þekkt áður, annað en blinda hlýðni og undirgefni bændanna islenzku. Sá sigur, sem þingeysku bændurnir unnu i verzlunarmálunum siðustu áratugi hinnar 19. aldar, i baráttu við hina dönsku selstöðuverzlun, vannst vegna fórnfýsi og samtaka þeirra. Og þótt einstakir forustumenn hafi þar brotið isinn og staðið i fylkingarbrjósti, þá hefðu þeir orðið að gefast upp fyrir ofureflinu, ef liðsmennirnir, sem að baki þeim stóðu, hefðu ekki verið jafn einbeittir og samhuga og raun bar vitni. En það var á fleiri sviðum mannlegs lifs en verzlunar og viðskipta, sem vorleysing fór um lendur Þingeyjarsýslu siðustu áratugi hinnar 19. aldar. Hin unga kynslóð, sem þá brauzt til valda, heimtaði róttækar breytingar á fornum erfða- venjum og kenningum. Bókasöfn og lestrarfélög voru stofnuð. Málfunda- og skemmtifélög risu upp, og þar voru rædd þjóðfélagsleg vandamál og bókmenntaleg viðfangsefni tekin til meðfarðar. Unglingaskólar voru stofnaðir i nokkrum sveitum, sem veittu hinni fróðleiksþyrstu æsku nokkra þekkingu, þótt þeir stæðu aðeins yfir nokkrar vikur i senn. Ungir Steingrímur Steinþórsson: Skáldið á Litiu-Strönd, menn lærðu erlend tungumál og kynntust erlendum bókmenntum, aðallega frá Norðurlöndum. Kreddum og erfi- kenningum buðu hinir ungu menn birginn. Einkum þótti ungu kynslóðinni þá kirkjan vera ihaldssöm og vanaföst. Prestarnir urðu i augum þeirra imynd hræsni, skinhelgi og vanafestu. Þeir heimtuðu, að öll bönd, sem heftu frjálsa hugsun, væru hlifðarlaust slitin. Kjarni þessarar nýju stefnu var fólginn i þvi að uppræta hið rótlausa og ftlna i lifi einstaklinga og þjóða. Segja sannleikann hlifðarlaust, hver sem i hlut átti. Það var raunsæisstefnan i islenzkum bókmenrtum, sem þessir fulltrúar þing- eyskrar alþýðumenningar komu til liðs við og veittu mikilvægt fylgi. Við, sem vorum að komast til vits og ára upp úr aldamótunum siðustu, urðum varir við þennan þyt og vorum snortnir af honum. Frumherjar K.Þ., sem höfðu ÚR, gömlum BLÖÐUM Heimilis-Tim'inn mun á næstu mánuð- um flytja greinar, sem flestar birtust upphaflega á menningarmálasiðu Timans fyrir sem næst þrjátiu árum. Fjalla þær um skáid og rithöfunda og ýmsa þætti þjóðmenningar og þjóðlifs- fyrirbæra, og eru þess vegna i sama gildi, og þegar þær voru upphaflega samdar. Fyrsta greinin af þessu tagi, sem Heimilis-Timinn birtir, er eftir Steingrim Steinþórsson, fyrrum búnaðarmálastjóra og forsætisráð- herra um skeið, og fjallar uin rit- höfundinn Þorgiis gjaiianda, sein var ekki aðeins svcitungi hans, heldur einnig sambýlismaður föður hans. 1. barizt gegn þvi, að sveltitilraun Þórðar Guðjóhnsen gegn félagsmönnum i K.Þ. heppnaðist og borið sigur úr býtum i þeirri baráttu, urðu i okkar huga fullkomnar fyrirmyndir og foringjar, sem sjálfsagt væri að fylgja. Þeir, sem beittu sér fyrir nýjungum á sviði annarra félagsmála og menningarmála, áttu óskipt fylgi okkar unglinganna, sem þá vorum að alast upp. Og þeir, sem voru . frumherjar á vettvangi bókmennta, ruddu nýjungum braut á þvi sviði, heimt- uðu fullt frjálsrjæði fyrir hugsanir sinar, hvað sem erfðavenjur og kennisetningar segðu, urðu nokkurs konar dýrlingar i okkar augum. Sá Þingeyingur, sem á siðasta tug 19. aldar og fyrsta tug þeirrar 20., fór eldi um hug hinnar ungu kynslóðar i Þingeyjar- sýslu og miklu viðar um land, með rit- höfundarstarfi sinu, var bóndinn Jón Stefánsson, sem tók sér rithöfundarnafnið Þorgils gjallandi. II Árið 1892 kom fyrsta bók Þorgils gjall- anda út. Það voru smásögurnar „Ofan úr sveitum”. Kverið var ekki stórt og lét litið yfir sér. Smásögur þessar vöktu mikla eftirtekt, einkum þegar kunnugt var, að höfundur þeirra var smábóndi norður i Mývatnssveit, sem engrar skólamennt- unar hafði notið. Þeir, sem ritdæmdu þessa fyrstu bók Þorgils gjallanda, höfðu að visu margt við hana að athuga — þótt- ust sjá sterk áhrif frá norskum skáldum, töldu málinu allábótavant og sögurnar að ýmsu leyti gallaðar. En þær vöktu eftir- tekt einkum sá tilfinningahiti og ákafi, sem i ljós kom, — og hversu ófeiminn höfundur var að segja skoðanir sinar afdráttarlaust, þótt þær brytu algerlega i bág við rikjandi skoðanir og venjur. Þá varð þess og strax vart, með hve miklum innileik, hlýju og samúð höfundar tók svari þeirra, sem miður voru settir, hvort heldur var efnalega eða af öðrum ástæðum. 13 /

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.