Heimilistíminn - 31.10.1974, Page 14

Heimilistíminn - 31.10.1974, Page 14
Þorgils gjallandi hefir sjálfur lýst þvi, hvað það var sem kom honum til þess að gerast rithöfundur. Hann segir svo i áritunarorðum með „Ofan úr sveitum”, rituð árið 1910, eða fáum árum áður en hann andaðist: ,,í huga minum var uppreisn og ólga gegn ýmsum venjum og kreddum. Ég gat ekki þagað. Þá sköpuðust sögurnar. Ósjálfrátt var söguformið hendi nær en ritgerðarsmiðið. Dæmin voru nóg til að benda huganum i áttina: þó tók ég ekki neinn einstakan mann til framleiðslu”. Það, sem knúði Þorgils gjallanda til ritstarfa, var sannleiksást hans annars vegar, en stolt hans og sjálfstæði hins vegar. Hann varð að segja samtið sinni hug sinn — benda á það, sem honum þótti varhugaverðast og hættulegast i menningu og venjum samtiðarinnar. Eftir útkomu „Ofan úr sveitum” komu margar smásögur eftir Þorgils gjallanda i ýmsum timaritum. Sumpart voru það dýrasögur, sem strax vöktu mikla eftir- tekt, en sumpart smásögur um önnur efni. Þá birtust og allmargar greinar eftir hann i blöðum þessi árin. Það var þvi ekki svo litið, sem birt var eftir Þorgils á áratugnum 1892 — 1902, þegar þess er gætt, að hann var einyrkjabóndi, sem aðeins hafði kvöldvökur og nætur til rit- starfa. Arið 1902 kom út á Akureyri skáldsagan „Upp við fossa”. Það er án efa mesti við- burður á rithöfundarferli Þorgils gjallanda, og jafnframt mjög merkur at- burður i bókmenntasögu Islands. Þessi saga er mesta skáldverk höfundarins. Almennt er viðurkennt, að „Upp við fossa” sé fyrsta sveitalifssagan, sem út kom hér á landi, sem jafnist á við sögur Jóns Thoroddsen — og standi þeim fyllilega jafnfætis. Þó getur ekki ólikari rithöfunda. Hin mikla alvara og ástriðu- Þorgils gjallandi þungi, sem einkennir Þorgils gjallanda, og þó einkum þetta aðalskáldrit hans, er i algerri andstöðu við hinn létta blæ og „húmor”, sem er yfir sögum Jóns Thoroddsen. Engum getur þvi i hug dottið, að Þorgils hafi tekiö sér hann til fyrirmyndar, þótt hann hins vegar teldi Jón Thoroddsen eitt af höfuðskáldum vorum. „Upp við fossa” er braut- ryðjandaverk I islenzkri skáldsagnagerð. „Upp við fossa” vakti geysilega eftir- tekt, en dómar um söguna voru mjög mis- jafnir. Sumir merkisklerkar landsins prédikuðu gegn henni i kirkjunum, vegna þess hve ósiðsöm og spillandi sagan væri. Gamlar æruverðar heföarmaddömur krossuðu sig og blöskruðust yfir þeim óþverra, sem kæmi úr penna höfundar. Dæmi munu vera til þess, aö póst- afgreiðslumenn hafi eyðilagt póstpakka með bókinni, til þes að foröa á þann hátt fólki frá þvi að hnýsast i þessa hættulegu, „siðspilltu” bók. Þessar viötökur eru næg rök fyrir þvi, að hér var merkilegt skáld- rit á ferðinni. Rit, sem risti svo djúpt i kaun samtiðarinnar, að hrikti i ýmsum kreddum og vanaböndum þjóðfélagsins, gat ekki verið neitt miðlungsverk. Hin aldraða kynslóð um siöustu aldamót hneykslaðist miklu meir á þessari sögu Þorgils gjallanda, en núlifandi kynslóð á ýmsu i ritum Halldórs Kiljans Laxness. Sér i lagi voru það prestarnir, sem þóttust eiga um sárt að binda, þvi að oftast voru þeir i sögum Þorgils imynd hræsni og skinhelgi. En Þorgils eignaðist strax sina aðdáendur. Ýmsir hinna yngri manna skipuðu sér um hann, hófu sögur hans til skýja, ef til vill um skör fram. Allir, sem ritdæmdu „Upp við fossa”, viðurkenndu, að hún væri merkilegt skáldverk, og um geysimiklar framfarir væri að ræða, um meðferð efnis og máls, frá þvi aö „Ofan úr sveitum” kom út. Ég ætla mér ekki þá dul að ritdæma „Upp við fossa” hér. Tel mig ekki heldur til þess færan. En ég er þess fullviss, að hún verður ávallt talin eitt af höfuðskáld- verkum islenzkra bókmennta og að islenzk bókmenntasaga verður aldrei skrifuð svo, að þeirrar bókar verði ekki getið og þess storms, sem hún vakti I lognmollu þeirri, er- hér á landi var rikjandi i bókmenntalegu tilliti um aldamótin siöustu. Arið 1910 kom þriðja aðalverk Þorgils gjallanda út. Það voru „Dýrasögur” hans. Var þar sumpart safnað saman eldri sögum, sem birzt höföu áður, en að nokkru birti Þorgils þar nýjar dýrasögur. Viðtökur voru hinar beztu. Voru dómar manna mjög á einn veg um það, að þetta væri ágæt bók. Siðasta sagan I dýrasögun- um var „Heimþrá”, perlan i bókinni og án efa einhver áhrifamesta og listrænasta smásaga, sem samin hefir verið á islenzka tungu. Þegar Þorgils gjallanda er minnzt sem rithöfundar, veröur ekki fram hjá þvi gengið að nefna þá hlið bókmenntastarf- semi hans, er snerti sveitina hans. Hand- skrifuð sveitablöð höfðu um alllangt skeið verið gefin út i Mývatnssveit. Ritaði Þorgils löngum mikið i þau. Þá flutti Þorgils mjög oft ræður á skemmtisam- komum. Skrifaði hann slikar ræður alltaf og flutti þær þannig. Loks flutti hann oft eftirmæli við jarðarfarir. Fátt af þessu hefur birzt á prenti, enda margt ritað um dægurmál þess tima. En þó fæst ekki heilsteypt mynd af Þorgils gjallanda sem rithöfundi, nema rannsökuð sé þessi hlið á ritstörfum hans — og þarf að birta úrval þess á prenti. Allt ber þaö merki hins sérstæða persónulega ritháttar hans, og þar er að finna gullkorn, sem hafa varan- legt bókmenntaiegt gildi á öllum timum. Mikið af ritverkum Þorgils gjallanda er óprentað enn, og þau, sem gefin hafa verið út, eru löngu uppseld. Hann er þvi sem rithöfundur lokuð bók fyrir nútima- fólki. Það er illa fariö og ekki vanzalaust. Það þarf að gefa út myndarlega útgáfu af ritverkum hans, og jafnframt skrifa ýtar- lega um hann sem rithöfund. Von er til, að þessu verði hrundið i framkvæmd nú fljótlega og er það vel farið, þvi að hann hefir helzt tii lengi legið óbættur hjá garði. Þessi fáu orð, sem ég hér hefi ritað um ritstörf Þorgils, eiga alls ekki að skoðast sem nein bókmenntaleg gagnrýni, enda munu aðrir mér færari inna það af hendi. En ég vildi minna hina ungu kynslóö á þennan merkilega fulltrúa Islenzkrar alþýðumenningar. Ég vil benda hinni uppvaxandi kynslóð á það, að henni er vissulega hollt að kynnast skoðunum Þorgils gjallanda og ritverkum hans. En hún þarf einnig að þekkja manninn sjálfan — aðstöðu hans i þjóðfélaginu, hvernig þjóðfélagsborgari hann var og hvort hann, sem dæmdi hræsni og skinhelgi harðar en nokkra aðra bresti, var sjálfur laus við slikt. Þess vegna vil ég að lokum fara nokkrum orðum um bóndann á Litlu-Strönd, Jón Stefánsson. HI^GIÐ — Finnst þér ekki dásamlegt aö hafa alla hraðbrautina ein? 14

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.