Heimilistíminn - 31.10.1974, Side 18
Merkar
___ v
uppfinningar
REGNHLÍFIN —
velmegunartákn
1 Oxfordstræti i London er fræg verzlun,
sem ekkert hefur breytzt í meira en
hundraB ár. „James Smith & Sons” stend-
ur yfir dyrunum, letrað gylltum stöfum.
Þetta er elzta sérverzlun með regn- og
sólhlifar I Evrópu.
Gladstone, hinn vinsæli forsætis-
ráðherra Viktoriu drottningar, keypti
alltaf regnhlifar hjá Smith & Sons og
enginn herramaður með sjálfsvirðingu lét
sjá sig utan dyra án stóru, svörtu, vand-
legu samanbrotnu regnhlifarinnar sinnar.
Höföingjar frá Afriku, sem komu i
heimsókn til London, gerðu sér alltaf sér-
staka ferð til Smith & Sons til að kaupa
risastórar, skrautlegar sólhlifar, sem
nota skyldi við hátiðleg tækifæri heima
fyrir.
En regnhlifin er miklu eldri en ætla
mætti. A gömlum, egypzkum málverkum
má sjá Faraó í hásætinu undir stórri
sólhlif. Samkvæmt kínverskum sögnum
var regnhlifin fundin upp fyrir þremur
þúsundum ára, og uppfinningamaðurinn
var kinversk aðalskona. Þá höfðu aðeins
konunglegir og aðalsmenn leyfi; til að
nota regnhlif.
Konungur Burma hafði marga titla og
einn þeirra var: „Lávarður stóru
sólhlifarinnar”. Aðeins hann mátti nota
hvlta sólhlif, aðrir embættismenn og
aðalsmenn báru sólhlifar i öörum litum og
sýndi liturinn stöðu þeirra.
Japanskeisari sást aldrei opinberlega
án þjónsins, sem bar sólhlifina yfir hon-
um. Þegar sonur Viktoriu drottningar
prinsinn af Wales var á ferð i Indlandi
1877, reið hann á fil undir risastórri,
gylltri sólhlif. Indversku furstarnir gáfu
honum regnhlifar úr bláu silki með perl-
um og silkibrókaði með rúbinum I, sem
tákn um virðingu og undirgefni sina.
Það voru forn-Grikkir sem fyrstir
Evrópubúa tóku að nota regnhlifar. Fyrir
tvö þúsund árum fóru hátt settar griskar
konur I gönguferðir sinar meö sólhlifa-
þræla á hælunum. 1 Róm hinni fornu voru
18