Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 19

Heimilistíminn - 31.10.1974, Qupperneq 19
purpurarauðar sólhlifar i tizku og rómverskar konur voru fyrstar til aó nota þær i rigningu. A miðöldum virðist regnhlifin hafa horfiö lir notkun, en svo komst páfinn að þeirri niðurstöðu um 1500, að regnhlifin gæti verið prýðistákn um virðingu. Þess vegna bar hann ávallt regnhlif, þegar hann kom fram opinberlega. Fólk sem kom norðan frá i heimsóknir til Italiu, veitti þessu ágæta verkfæri at- hygli og Thomas Coryate, maðurinn, sem kynnti Englendingum gaffalinn, lýsti itölsku regnhlifunum þannig: — Það er stórt leðurstykki, sem spennt er yfir hringlaga skerm með pinnum neðan á. Einkum eru það reiðmenn, sem nota hana á lengri ferðum og binda þeir þá hand- fangið fast við lærið og sitja þvi i skugga i sólarhitanum. Mörg hundruð ár liðu þar til regnhlifin náði fótfestu i Frakklandi, Bretlandi og þar fyrir nor.ðan. Franskir kaupsýslu- menn komu með regnhlifar heim frá Kina, ftaliu og Spáni. Þegar fyrstu herramennirnir tóku að spranga um götur London með regnhlifar árið 1772, brugðust eklar leiguvagna illa við. Atti þetta apparat að eyðileggja at- vinnuna fyrir þeim? Sama ár keypti verzlunareigandi i A þessari teikningu frá 1782 er verið aö gera grin að nýju regnhlifatiskunni. Kinverjar notuðu regnhlif bæði i sól og snjókomu. Bandarikjunum regnhlif i skipi, sem kom frá Indlandi. Þegar hann fór stoltur með hana út á götu, viku konur hræddar til hliðar og smástrákar köstuðu grjóti á eftir honum. Enginn vissi hvort þetta var ný og merkileg flik, eða einhvers konar vopn. Fyrsta bandariska regnhlifin fékk ekki höfðinglegar móttökur. Það var ekki fyrr en i byrjun aldarinnar sem leið, að regnhlifin komst loks i tisku beggja vegna Atlanzhafsins. Banda- riskar konur biðu eftirvæntingafullar eftir skipunum, sem fluttu nýjustu geröirnar frá London og Paris, en þær sólhlifar voru gjarnan með knipplingum, perlum og silkibrókaði. Konur Viktortiu- timabilsins voru dauðhræddar við að láta sólina skina á andlit sér, þvi þá voru fölar konur með mjólkurhvlta húð fegurstu konurnar. Eftir 1820 var farið að endurbæta regn- hlifarnar. Þungir teinarnir úr eik eöa bambus, viku fyrir léttari úr hvalbeini og eftir 1851 voru teinarnir úr stáli. í stað oliuborins silkis, sem var þungt, kom bómull og siðan nælon. Þegar Bretar fóru að framleiða regn- hlifar i lok 18. aldar, hengdu þeir gjarnan eikarkvist i handfangið. Það var gömul, heiðin trú, þvi að eikin var helguð Þór, þrumuguði norrænna manna. Eikar- kvistirnir áttu að vernda eiganda regn- hlifarinnar gegn eldingum og það var trú manna, að sérstök hætta væri á, að eldingum slægi niður i regnhlifar. Þá fann Benjamin Franklin eldinga- varann i Bandarikjunum og Frakki einn, sem þýddi bækur Franklins á frönsku varð svo hræddur við eldingar, að hann setti litinn eldingavara á regnhlifina sina. Þegar hann gekk um götur Parisar dró hann á eftir sér leiðslu úr regnhlifinni! H^GIÐ — Já, ég þekki söguna um að leggja eigi niður stöðu þina, það var ég sem kom sögunni af stað. — Geturðu fyrirgefið mér, Theódóra? Mér varð það á að opna launaumslagiö mitt. — Nei, heyrið mig nú. Ég hef komið alla þessa leið til að heimsækja manninn ininn og svo hafiö þið látið hann sleppa. 19

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.