Heimilistíminn - 31.10.1974, Síða 24
Fyrstu sex
mánuðirnir
7.
mánuður
BARNIÐ flytur tvisvar. Fyrst úr maga
mó6ur sinnar, úr hlýjunni út i kalda og
miskunnarlausa veröld og siðan heim i
nýtt umhverfi, nýja vöggu, einmitt þegar
það var farið að venjast þeirri fyrri. Er þá
nokkuð undarlegt þótt barnið gráti? Sér-
fræðingar þykjast hafa komizt að þeirri
niðurstöðu af fyrstu vikuna gráti barn að
meðaltali 117mínúturá sólarhring og all-
ir vita hve langar þær minútur geta verið.
En það sem eftir er af sólarhringnum á
barnið að sofa, nema meðan á máltiðum
stendur. Geri það það ekki, er annað hvort
um að kenna hungri, blautri bleyju, lofti i
maganum eða óstyrkri móður, sem gerir
barnið óstyrkt. Þá er mikilvægt að barnið
og móðirin hafi það rólegt, því fyrstu
vikurnar eru ákaflega erfiðar.
Þroski barnsins er ótrúlega mikill
fyrsta mánuðinn. Það réttist úr likaman-
um, augun taka að festa sig á ýmsum
hlutum og litla hrukkótta andlitið sléttist.
Enn er ekki komið á neitt eiginlegt sam-
band við umheiminn og það sem likist
brosi á ekki að vera það, en samt er jafn
gaman að sjá það. Þarfirnar eru einfald-
ar: matur, svefn og hrein bleyja og það
sem mikilvægast er: rólegt umhverfi.
Það siðastnefnda er undir foreldrunum
komið. Þau verða að hjálpast að. Móðirin
þarf á allri hjálp að halda þótt hún eigi fri
frá útivinnunni. Dagurinn er ekki nógu
langur til alls, sem hún þarf að gera og
sjálf er hún að ná sér bæði andlega og
llkamlega eftir fæðinguna. Faðir, sem
tekur sinn þátt I umhugsuninni um barnið,
fær tvöföld laun: glaðari konu og sam-
band við barnið frá byrjun.
mánuður
Nti FER margt að breytast og barnið öðl-
ast margháttaða nýja reynslu. Það er far-
ið að þekkja andlit pabba og mömmu og
finnst gott að fá ávaxasafa I teskeið.
Brostið er á leiðinni, handleggir og fætur
láta nokkurnveginn að stjórn og ýmis
hljóð verða kunnugleg. Nú er ekki lengur
þörf á 6 til 7 máltíðum á sólarhring, 5 er
eðlilegra. 1 lok annars mánaðar fara for-
eldrarnir að geta sofið næstum alla nótt-
ina, allt að 6 tlmum I einu og það er gulls
igildi fyrir alla aðila. Tveggja mánaða
barn fer að vaka dálltið á daginn og láta
dást að sér og skoða heiminn utan vögg-
unnar svolitið.
Foreldrunum fer að skiljast, að það er
dásamlegt að eiga litið barn, en stundum
getur reynzt erfitt að sjá það i upphafi.
Hlutirnir eru að falla I fastar skorður og
móðurinni finnst hún vera orðin venjuleg
manneskja aftur og hún er orðin snilling-
ur i að blanda mjólk á pela. Ef hún vill
ekki eignast barn strax aftur, þarf hún að
verða sér úti um getnaðarvarnir, þvi
samlif hjónanna má hefjast aftur eftir 6
vikur frá fæðingu að öllu eðlilegu. Hafi
faðirinn verið duglegur að hjálpa henni
fram til þessa, eru góðar horfur á aö hún
sé vel upplögð, en ef ekki, getur liðið
nokkur timi, þangað til hana langar til og
má vera að að leika sér.
3.
mánuður
BARNIÐ getur ekki talað, en það gefur
frá sér hljóð og gerir ósparlega alls kyns
tilraunir með þau. Þegar þvi er sýnt leik-
fang, eltir það það með augunum og alls
kyns hljóð verða til þess að það hættir þvi
sem það er að gera og hlustar. Vöku-
stundirnar á daginn lengjast og nætur-
svefninn líka, þó ekki sé hægt að búast við
morgunsvefni næstu mánuðina. Smá-
börnum finnst sérlega þægilegt að hefja
daginn um 6-Ieytið.
Þegar barnið er 2-3 mánaða getur það
farið að borða örlitið af fastri færðu milli
mjólkurmáltiðanna. Avaxtamauk og
þunnt grænmetismauk rennur niður án
erfiðleika, þegar hræðslan við skeiðina er
yfirunnin. Uppskriftir af barnafæðu eru
til i óteljandi bókum.
Nú fara foreldrarnir að hlakka til
ýmissa hluta og nú þarf móðirin að fara
að hugsa fyrir barnfóstru eða fóstur-
heimili, ef hún vinnur úti og hefur nú
störfin á ný. En öllum mæðrum finnst
barneignafriið yfirleitt og stutt.
24