Heimilistíminn - 31.10.1974, Page 34

Heimilistíminn - 31.10.1974, Page 34
virtust vera að leita að einhverju i blautum mosanum og flugu siðan aftur og fram yfir járnbrautina og i átt til borgarinnar. — Bara, að maður hefði vængi. Þá væri þetta enginn vandi. En kannske fengi ég ókeypis flugferð, ef ég spyrði. Þvi ekki að reyna það? Það getur þó aldrei verið verra en að það takist ekki. Svo lagði Bastaan af stað út mýrina, til að tala við storkana. Hann varð að hoppa þúfu af þúfu út til þess næsta. — Góðan daginn, ég heiti Sebastian Mendel-.... Við gefum ekkert i dag, greip storkurinn fram í fyrir honum. — Nú, sagði Bastian. — Hvað verður það nú, sem ég ætlaði að segja? Já, það er gott veður i dag. — Já, já, svaraði storkurinn. Bastian horfði forvitnislega á hann. Hann skildi ekki hvað var orðið af öðrum fætinum á honum. — Af hverju stendurðu á öðrum fæti? spurði Bastian. — Ég á að gera það. — Af hverju áttu að gera það? — Af þvi að ég er storkur. — Þá veit ég það, sagði Bastianæ— En af hverju hefurðu rauða fætur? — Ég á að hafa rauða fætur. — Hvers vegna. — Af því ég er storkur. Af hverju ertu hérna i mýrinni? — Ég á að gera það. — Af hverju áttu að gera það? — Af þvi að ég er storkur, svaraði storkurinn. — Nú já. Er þetta kannske storkasýning? — Nei, hættu nú alveg, hrópaði storkurinn reiður. — Hér kemur maður i ferðalag á hverju ári og svo er talað við mann eins og....eins og...Meira gat hann ekki sagt fyrir eintómri reiði, en stóð bara og smellti með nefinu. Þetta var víst ekki nógu gott, hugsaði Bastian. Nú get ég varla orðið vinur hans. Hann fiýtti sér að segja: —Þú hefur óskaplega glæsilegt nef. — Hmmmmm, svaraði storkurinn, leit i hina áttina og lét sem ekkert væri. — Já, sagði Bastian. — Og svo geturðu látið heyrast svo skemmtilega i þvi. — Finnst þér það? spurði storkurinn. — Já, það er eins og bilaður gluggi, sem skeliist i hvassviðri. — Hvað þá? skrækti storkurinn. — ófor- skammað. Nei, þetta er dónaskapur. Ég klaga fyrir ferðaskrifstofunni! Ég er farinní Það er búið. Allt búið! Storkurinn lyfti sér upp á tærnar og breiddi úr vængjunum. — Æ, sagði Bastian. — Nú flýtur hann. Ég verð að taka áhættuna. Nú eða aldrei! Og á sama augnabliki og storkurinn lyfti sér frá jörðinni, stökk Bastian upp, greip um fætur hans og hélt sér fast. — Hjálp! hrópaði storkurinn. — Laumufar- þegi! Hann kitlar mig! Storkurinn sparkaði og sneri upp á sig, en Bastian hélt dauðahaldi i fæturna. Þeir flugu hátt yfir mýrinni, járn- brautinni og borginni, en Bastian þorði alls ekki að lita i kring um sig. Storknum leið heldur ekki vel, þvi hann kitlaðisvo voðalega af þvi að hafa Bastian utan um fæturna á sér meðan hann flaug. — Hjálp! hrópaði hann. — Ég klaga! Hættu þessu! Ég klaga fyrir ferða skrifstofunni...Hikk, hikk......ferðaskrifstof- unni. — Þvilik flugferð, hugsaði Bastian. — Með hverju endar þetta? Hann opnaði annað augað pínulitið og sá, að þeir voru nú hinum megin við járnbrautina og á leið inn yfir borgina. Storkurinn bjó sig undir að setjast á þak á stóðu húsi og nú gat Bastian ómögulega haldið sér lengur. Hann datt niður á ójafnar þakplötur i og rúliaði niður þakið og út i loftið. Þar sem hann fann ekkert til að taka i, hélt hann dauða- haldi um rófuna á sér, en það gerði ekkert gagn. Hann hélt áfram að detta. Þetta verður liklega aldrei búið, hugsaði hann. — En — 1 bomm! Allt í einu sat hann i einhverju mjúku. Hann opnaði varlega augun og leit i kring um sig. Svei mér þá! Hann hafði dottið niður i Iit- inn blómagarð, sem var ekki breiðarj en svo, Framhald. 34

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.