Heimilistíminn - 25.09.1975, Blaðsíða 10

Heimilistíminn - 25.09.1975, Blaðsíða 10
Nína Gautadóttir skrifar fró París — 1 „Túpulínan er það nýjasta Veturinn er að ganga i garð aftur og um leið kemur ný fatatizka. Hvað hefur nú breytzt i ár? Þetta er kannski eilif spurning, en nú er svarið ekki, að allt sé gjörbreytt. Vetrartizkan i ár er að nokkru leyti framhald af vetrartízk- unni i fyrra: kápukjólarnir, mýktin og þægi- legheitin eru áfram í fyrirrúmi. Það nýjasta nú eru samsetningar alls konar fatnaðar og missiddirnar, kjólar við buxur og „túpulinan”. Litirnir eru daufir, grátt, beige og lilla virðist ráða. En hægt er að lifga þá upp með skærum litum á slæðum, peysum, treflum og húfum, sem eru eins og smápunktar i mál- verki, sem gjörbreyta heildarsvipnum og láta fötin jafnvel brosa svolitið i vetrargrámanum. Heildarsvipurinn viröist i aöalatriöum þráðbeinn og minnir á árin 1950 tii 1960. Ermalsetningar eru mjúkar, pilsin samantekín aö ncftan og afteins styttri en áftur. 1. Beinn skokkur meft þröngu pilsi. Eítir- tektarvert cr, aft nú eru ailar siddir notaftar, hver utan yíir annarri. 2. Kjöil efta skokkur vift buxur, takiö cftir taskaermunum. 3. Sift peysa vift þröngt pils. Takift eftir aft berustykkin sikka. 4. Sportjakki vift siðbuxur, þröngar aft neftan. Lengd jakkans virftist stytta buxurnar. 5. Beinn frakki. Takift eftir hvernig siddir á jökkum og piisum raftast saman. 6. Dragtir meft karimannafatasnifti. Stig- vélin frá I fyrra eru nú úr sögunni. 1 næstu blöftum munum vift kynna vetrartlzkuna i kvenfatnafti. Þaft er Nina Gautadöttir, sem stundar nám vift Beaux Arts myndiistarskólann i Paris, scm sendir okkur myndir og skýringar vift þær. Hún hefur undan- farift litift inn á kynningarsýningar tizkuhúsanna I Paris og kynnt sér þar, hverju konur eiga aft kiæftast I vetur, ef þær vilja tolla I tizkunni. 10

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.