Heimilistíminn - 25.09.1975, Blaðsíða 14
29. ágúst.
Allt stórkostlegt og furðulegt i tilver-
unni heillar þig. Kimnigáfa þin ætti að
geta leitt þig farsællega framhjá mörgum
gildrum i lifinu. Þú hefur sagt sjálfum
þér, að ef þú hlærð, þá hlær heimurinn
með þér. Þetta getur komið sérlega vel
að gagni, ef þú hefur atvinnu af að skrifa
eða ert leikari. Þar sem þú hefur „frétta-
nef” geturðu orðið fyrirtaks blaðamaður
eða fréttaritari. Þú hefur ómettandi
áhuga á öllu dularfullu og dulrænu, og er
þvi eðlilegt að þig langi til að takast á
hendur ferð til Austurlanda og grúska i
vissum hlutum þar. Þar sem þú kemst að
raun um að hugboð þitt er sérlega sterkt,
og þú þarft sjaldan að breyta fyrstu skoð-
un þinni á hlutum og fólki, sérðu fljótt, að
fólk fætt i merki vogarinnar, sporðdrek-
ans eða bogmannsins hentar þér bezt sem
maki, og eru beztu vinir þinir i lifinu. Þú
ert tilfinninganæmur og lætur þær auð-
veldlega i ljós. Þótt liklegt sé, að þú krefj-
ist mikils af þeim, sem þú elskar, ertu
reiðubúinn að leggja jafn mikið af mörk-
um. Konur fæddar þennan dag eru góðar
eiginkonurog mæður, þar sem þær eru að
eðlisfari gefnar fyrir hvers konar
heimilisánægju.
28. ágúst.
Þú hefur til að bera vott af snilligáfu,
tilhneigingu, sem þarf að finna sinn rétta
farveg i lifi þinu, svo hægt sé að þroska
hana á sem bestan hátt. Þú hefur mikinn
viljastyrk og trúir á hæfileika þina. Þú
getur lokið hverju verki sem þú byrjar á,
á besta hátt, þar sem þú lætur aidrei kylfu
ráða kasti, en gerir alltstigaf stigi og af
mikilli nákvæmni.
Bókmenntir, leiklist og tónlist eru svið,
þar sem allt stendur þér opið. Veldu þér
leið, meðan þú ert ungur og haltu þig fast
á henni. Þótt lifið verði þér ekki auðvelt,
missirðu aldrei móðinn. Þótt hlutunum
seinki og öðru hverju hrökkvi allt i baklás,
berstu óhikað áfram, þar sem þú vilt ná
takmarkinu eins fljótt og hægt er. Bjart-
sýni þin og þolinmæði er þér til mikillar
hjálpar. Þar sem þú elskar bækur og hef-
ur áhuga á visindum og kannt að meta
andlega verðleika, er eðlilegt fyrir þig að
stunda einhvers konar rannsóknir og
grúsk og þú vilt alltaf hafa allar upp-
lýsingar réttar, áður en þú notar þér þær.
Þú lest mikið og safnar þér sennilega
miklu af bókum um ævina. Þú hefur gam-
an af að ferðast og vilt sjá allan heiminn,
svo þú getir borið saman menningu og
lifnaðarhætti hinna ýmsu þjóða.
Farðu varlega i ástum og rómantik. Þig
þyrstir i ást, en verður aldrei fullkomlega
hamingjusamur nema þú giftist mann-
eskju, sem hefur áhuga á sömu hlutum og
þú.
14
30. ágúst.
Þú ert glaðlyndur að eðlisfari og tekur
lifinu eins og það kemur fyrir og reynir að
gera sem mest úr þvi. En undir glaðlegu
yfirborðinu eralvarleg sál og þú ert ekki i
neinum vafa um, hvað það er sem þú vilt
og hvers vegna. Þú ert fús til að leggja út i
stórt verkefni og sýslar oft við hluti, sem
aðrir halda að þú ráðir ekki við. Þú ert
hugaður, fordómalaus og framfara-
sinnaður. Vegna þessa muntu komast
fljótt áfram i lifinu. En hvort þú heldur
þigá tindinum, erundir þvikomið, hversu
vel þú vinnur að þvi.
Stjörnurnar hafa gefið þér það skap-
lyndi, sem gerir það að verkum, að þér
kemur vel saman^ við hvers konar fólk,
sem þú hittir. Þrátt fyrir striðni þina i
tima og ótima, halda vinir þinir fast við
þig, þar sem þeir vita, að þú vilt ekki særa
eða skaða neinn viljandi. Þú ert tryggur
vinur og verður góður og skilningsrikur
maki og foreldri. Stundum ertu strangur
og ósveigjanlegur, en það er yfirleitt öll-
um fyrir beztu.
Ef þér finnst hert að þér, geturðu verið
eitilharður og það er erfitt að hafa þig of-
an af áætlunum þinum um hvað þú viljir.
Ef einhver segir nei, langar þig til að
segja já, bara til að vera á öndverðum
meiði. Fyrir þér er það þannig, að gott
rifrildi lifgar upp á tilveruna. Ef til vill
óskarðu aðeins eins: að þér leiðist aldrei.