Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 25.09.1975, Qupperneq 28

Heimilistíminn - 25.09.1975, Qupperneq 28
Sitt af hverju í svanginn Tortilla í morgunmat Þessi tortilla er matarmikil og ekki þarf annað með henni en sardinudós, sitrónu- sneiðar, brauð og smjör. 2-3 kartöflur, olia, salt, pipar, 1 laukur, rosmarin, 6 egg, 6 msk vatn, salt, hvitur pipar. Steinselja. Flysjið kartöflurnar og skerið þær i þunnar sneiðar og steikið þær sfðan þunnt skorinn lauk og rosmarin með. Þeytið eggin með vatni og kryddi og hellið yfir. Látið þetta stifna yfir hægum hita og lyft- iðeggjahrærunni öðru hverju. Tortillan á að vera mjúk. Til að lifga upp á útlitið, má klippa steinselju yfir um leið og hún er borin fram. 28 Piperade í morgunmat 200 til 250 gr bacon, svolítið smjörliki og olia, 1/2 kg. laukur, 2-3 rauðir piparávext- ir, 2-3 grænir piparávextir, 1/2 kg tómat- ar, 1 tesk þurrkuð basilikum eða oregano, salt og pipar eftir smekk, 6 samanþeytt egg, söxuð steinselja. Baconsneiðarnar eru steiktar þar til þær eru harðar og siðan teknar upp Ur feitinni. Smjörliki og olia er sett saman við baconfituna og i þvi er sfðan hitt steikt, fyrst laukurinn, saxaður fremur smátt, en hann má ekki brúnast, aðeins linast vel. Þá eru fint sneiddir pipar- ávextirnir og niðurskornir tómatarnir settir i og allt látið malla, þar til það er mjúkt. Þá er kryddað. Samanþeyttum eggjunum er hellt út i og siðan er hrært i öllusaman yfirhægum hita, þar til eggja- hræran er stifnuð. Borið fram með bacon- sneiðunum og þvi græna söxuðu yfir. Gott er að hafa gróft brauð með. Fiskur í álpappír 1 þennan rétt er notaður pakki af frosnum þorskflökum. Hægt er að hafa fisk i ál- pappir margs konar. Nota má sildarflök, rauðsprettuflök, beinlausan þorsk og reykta sild, svo eitthvað sé nefnt. Fiskur- inn er settur á allstór stykki af álpappir, mátulega mikið á hvert handa einni manneskju. Með fiskinum er sett ýmiss konar grænmeti og krydd, smjörklípur, salt og pipar. Hér er notað tómatar, pip- arávöxtur f ræmum, salt, pipar, smjör og svolltið esdragon. Alpappirnum er siðan vafið vel um fiskinn og pakkarnir eru lagðir á grillið, þannig að samskeytin snúi upp. Það tekur um hálftima að steikja pakkana, ef fisk- stykkin eru þykk. Grænt salat, brauð og kalt hrisgrjónasalat er gott með.

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.