Heimilistíminn - 18.01.1981, Page 11
hennar. Ekki vilduð þið vist, að hún lokaði
skýlinu, eða hvað.
— Nei-hei alls ekki, ungfrú Andy, sögðu
börnin i kór, og fóru aftur að leika sér og létu
sem þau tækju ekki eftir bilnum.
Um leið og Andrea stakk lyklinum i skrána á
ibúð sinni opnuðust dyrnar á móti og dr. Jor-
dan birtist og horfði á hana og frú Judson eins
oghann hefði orðið fyrir vonbrigðum. Frú Jud-
son hrópaði upp yfir sig: Er þetta ekki Jor-
dan læknir? Hvað ert þú að gera hér? Mikið
spyr ég kjánalega. Þú ert auðvitað i sjúkravitj-
un.
Steven heilsaði henni og var greinilega
glaður að sjá hana og svo fór hann að hlæja.
— Nei, ég er ekki i sjúkravitjun hér. Ég á hér
heima, svaraði hann.
Það kom á frú Judson og hún leit hissa i kring
um sig.
— Býrðu hérna? Hvers vegna, ég hélt — ertu
ekki enn starfandi hjá Dr. McCullers.
— Nei, ég hef opnað mina eigin stofu, svaraði
Steve, og svipurinn harðnaði.
— Þú ert svo sannarlega heppinn að vera i
sama húsi og þessi ágætishjúkrunarkona hún
Andrea, sagði frú Judson glaðlega, og svo sneri
hún sér að Andreu til þess að hún mætti taka
þátt i samræðunum.
— ó, hún mun ekki vinna með mér, sagði
Steve illskulega.
— Nei, ég verð ekki hjúkrunarkonan hans,
frú Judson. Hann er bara leigjandi minn, sagði
Andrea.
— Þú værir mikill kjáni, ef þú notfærðir þér
ekki hæfileika hennar, Jordan læknir! Hún er
dásamleg hjúkrunarkona, svaraði frú Jodson.
— Þvi miður er hún ekki nógu áreiðanleg.
Andrea hrökk undan, eins og hún hefði verið
slegin, en hún svaraði ekki en reigði aftur
höfuðið reiðileg á svip.
— Að segja annað eins og þetta, Jordan
læknir, andmælti frú Judson i flýti. — Við erum
þeirrar skoðunar, að hún sé bæði fær og dug-
mikil hjúkrunarkona —
—Ég veit að hún er það svo lengi sem hún er
ekki á öndverðum meiði við lækninn og sjúk-
dómsgreiningu hans. svaraði Steven kaldrana-
lega. — Ég er viss um, að hún vinnur sin störf
vel, enþegar læknir skilur sjúkling eftir i hönd-
um hjúkrunarkonu ætlast hann til þess að farið
sé i einu og öllu eftir þvi,sem hann hefur sagt
varðandi meðferð sjúklingsins. Ég er hræddur
um, að ekki sé hægt að treysta þvi, að ungfrú
Drake geri það.
— Mér þykir leitt að heyra, að þú skulir halda
þessu fram, Jordan læknir, sagði frú Judson
ákveðin. — Persónulega hefði ég verið hin
ánægðasta yfir að láta hana hjúkra mér þegar
ég var skorin upp hjá dr. McCullers.
— Þú mátt þakka fyrir að hún var ekki hjá
þér, sagði Steve hörkulega. — Það er að segja,
ef hún hefði ekki verið á sömu skoðun og
læknirinn varðandi meðferðina á þér.
— Mikið ertu óréttlátur, Jordan læknir.
—Það er allt i lagi, frú Judson, sagði Andrea
kuldalega. Reiðin var ekki horfin úr augunum, •
og hún var náföl. — Við dr. Jordan skiljum
hvort annað til fullnustu. Ég hef ekki meiri
löngun til þess að vinna fyrir hann en hann
hefur til að hafa mig i vinnu. Ég hef boðist til
þess að endurgreiða honum leiguna, ef hann
vildi flytja sig héðan svo þann þurfi ekki að
vera i námunda við mig.
— Mér likar ágætlega að vera hér, sagði
Steve þrákelknislega.
Andrea kinkaði kolli áhugalaust, og snéri sér
svo að frú Judson.
— Viltuekki koma inn fyrir? spurði hún. Hún
opnaði og bauð frú Judson inn i ibúðina, og lok-
aði svo að segja á nefið á Steve.
— Mikið er þetta ógeðfelldur ungur maður,
sagði frú Judson og var rauð i framan af reiði.
— Og mér sem féll svo vel við hann hjá dr. Mc-
Cullers.
— Við skulum ekki hafa áhyggjur af honum.
Mér stendur að minnsta kosti á sama, sagði
Andrea brosandi og benti svo á gráa veggina,
filabeinslitan: viðinn og vaxborið gólfið i her-
berginu og sagði: — Hvernig likar þér þetta?
— Mikið er þetta fallegt, Andrea, þetta er
bæði hressandi og ferskt. -
— Og svo er svefnherbergið auðvitað bleikt,
sagði Andreá hlæjandi og gekk á undan og
visaði veginn. — Þegar ég var að alast upp á
barnaheimilinu dreymdi mig aðeins um eitt og
það var að hafa mitt eigið herbergi, og auð-
vitað bleikt.
Þær gengu um og skoðuðu allt. Þegar þær
komu aftur fram i dagstofuna var stór flutn-
ingabill kominn að húsinu fullur af húsgögnum,
og frú Judson kvaddi og flýtti sér út til þess að
vera ekki fyrir, þegar mennirnir komu inn með
húsgögnin. Þetta voru ódýr húsgögn með bóm-
ullaráklæði, en þau fóru vel við gráa litinn á
veggjunum. Dagstofan tók algjörum stakka-
skiptum, þegar húsgögnin voru komin, og
Andrea var ánægð.
11
í