Heimilistíminn - 08.03.1981, Side 2
i nóvember fýrir rúmu ári
hóf tólf ára gamalt banda-
riskur drengur/ Mark
Shichtman, fréttaútsendingar,
sem sérstaklega eru ætlaðar
börnum. Fréttadagskrá
drengsins nefnist Mark
Shichtman's Kid News, og
samkvæmt upplýsingum hans
er þetta eina „alvarlega
fréttadagskráin í Bandaríkj-
unum," sem ætluð er börnum.
t Hér eru það börn, sem segja
börnum frá helztu fréttum lið-
andi stundar, jafnt innlendum
sem erlendum.
Mark Shichtman fékk hugmyndina
að þessari brnadagskrá þ$gar hann
vann að bekkjarverkefni með skóia-
félögum sínum. Þeim hafði veriö ætlað
að semja og setja saman
fréttadagskrá. Eftir það gekk hann á
milli sjónvarpsstöðvanna í New York
og sagöi frá hugmynd sinni, en fékk
litlar undirtektir. Loks kom hann til
Manhattan Cable TV, sem er sjón-
varpstöð i New York. Þar var honum
vel tekið, og hann ráðinn til þess að
hrinda hugmyndinni f framkvæmd.
Hann var fyrst látinn búa til tvær
tilraunadagskrár. Þær þóttu takast
svo vel, að Mark og félagar háns hafa
haft atvinnu við dagskrárgeröina
siðan. .
Ahverjum briðjudegi, klukkan 16:30
koma Mark og elagar hans og segja
frá helztú aiþjóöafréttum, innlendum
fréttum og New York — fréttum, allt
eftir þvi hvað er efst á baugi hverju
sinni. 1 hópnum eru sex vinir Marks og
eru þeir úr ýmsum skólum á Manhatt
an og i Queens, en hvort tveggja eru
eins og kunnugt er borgarhverfi i New
York.
„Barnafréttatiminn” hefur verið
sendur út á svo aö segja hverjum ein-
asta þriðjudegi frá þvi i nóvember
1979. Einu undantekningarnar hafa
verið sumarmánuðirnir, þegar allir
voru fjarverandi 1 sumarleyfi, og svo i
eitt skipti þegar kennarinn lét Mark
sitja eftir i skólanum af einhverjum
óþekktum ástæðum.
Fréttatiminn er vandlega undir-
búinn, en þó hefur komið fyrir, að
timasetningin hefur ekki staðizt full-
komlega. Til dæmis gerist það ekki
alls fyrir löngu, aö aðeins voru sjö
minútur eftir þar til þátturinn átti að
hefjast, og enn var ókominn i
sjónvarpsstöðina Jonathan Blumber
kvikmyndagagnrýnandi, 13 ára
gamall. Markæddiinnogútúr stúdió-
inu og fór meira að segja út á götu til
þess að skyggnast um eftir Jonathan,
sem hann sagðist einungis hafa getað
fengiö til þess að koma og taka þátt i
útsendingunni ef hann borgaði undir
hann leigubil á staðinn. Þrátt fyrir það
lét hann enn ekki sjá sig. Starfsliðið
var allt orðið býsmý'écólegt. — Við
getum einfaidlega ekki beðið lengur,
sagði Justín Page, 13 ára gamall
útsendingarstjóri.
Hljóðnemunum var komið fyrir á
sinum stað. 50 sekúndur voru þangað
til útsendingin átti aö hefjast. Þá kom
Jonathan og renndi sér fótskriðu inn
eftir gólfinu. Hann settist I stólinn
sinn, og allt fór vel.
Mark hóf útsendinguna.. — Gott
kvöld, ég er Mark Shichtmaii, og þetta
er „Barnafréttatiminn”. Vaxandi
likur eru á þvi, að til átaka komi milli
Iraks og Irans....
Þá tekur við af honum Jai Nanda,
10, ára sem segir stuttlega frá skrúö-
göngu og kjötkveðjuhátið. Jonah
Polsky, sem er I fimmta bekk segir
iþróttafréttirnar.
Rick Guberman er i áttunda bekk.
Hann flýtur veröurfréttirnar eftir aö
hafa aflað sér ýtarlegra upplýsinga
hjá fjórum verðurfræðingum.
Þfb.
2