NT - 05.05.1984, Blaðsíða 1

NT - 05.05.1984, Blaðsíða 1
Skotmaðurinn lá á lunningunni og beindi haglabyssunni yfir manngrúann og lét skotin ríða af í trekk og trekk. Skotbardagi í Daníelsslipp: Höglunum rigndi yfir vamariausa borgara! ■ Mesta mUdi var að ekki hlutust stórslys af þegar ölóður maður skaut úr haglabyssu að mönnum, húsum og akandi bif- reiðum við Vesturgötuna í gær- kvöldi. Meðal þeirra sem mað- urinn beindi byssu sinni að var ung kona með barn sem hann mætti á Vesturgötunni. Þá lentu að minnsta kosti tvö högl í skotheldu vesti lögreglumanns sem veitti manninum eftirför. Nokkrír bílar skemmdust er högl lentu á þeim og á einum stað hæfði maðurinn rúðu í íbúðarhúsi við Vesturgötu. Þegar NT fór í prentun í nótt var enn ekki fullkannað hvort einhverjir hefðu hlotið sár í kúlnaregninu sem dundi yfir svæðið .Víkingasveitir lögregl- unnar mættu á staðinn um klukkan tíu og tókst þá að yfirbuga manninn. Ekki var tal- ið fært að yfirheyra manninn í gærkvöldi vegna ölvunar og fékk hann að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar í nótt. Maðurinn er rúmlega þrí- tugur farandverkamaður og hef- ur áður lent í kasti við lögin. Það var um klukkan 9:05 í gærkvöldi að lögreglunni var tilkynnt um ölóðan mann á horni Vesturgötu og Framnes- vegar sem skaut úr haglabyssu í nærliggjandi hús. Maðurinn mun hafa skotið að minnsta kosti tveimur skotum þarna á horninu. Þegar lögreglan kom á vettvang um klukkan hálf tíu hörfaði maðurinn austur Vest- urgötuna og skaut í sífellu úr byssu sinni. Á leið sinni mætti hann konu með barn og beindi byssu sinni að henni en skotið hljóp á vegg þar nærri. Lögregl- an stöðvaði bifreið sína á móts við söluturn á götunni og hleypti maðurinn þá af skoti á bifreið í návígi. Því næst hljóp hann áfram eftir götunni og beygði niður að svokölluðum Daníels- slipp þar sem þrjú skip lágu í dráttarbrautinni. t>ar fór hann um borð í bátinn Jón Jónsson SH 187 sem lá austastur af skipunum þremur. Úr bátnum hélt hann uppteknum hætti og skaut að minnsta kosti 20 skotum í nærliggjandi hús, bíla, að lögreglunni og mannfjöldan- um sem dreifað- Skotbardagi við lögregluna Meðan maðurinn kom sér fyrir í bátnum nálgaðist Er- lendur Sveinsson lögregluvarð- stjóri slippinn úr vesturátt vopn- aður haglabyssu og dreif höglin að honum þegar hann var að koma sér fyrir í brotajárnshrúgu spölkorn frá bátnum. í skjóli af járnarusli reyndi Erlendur svo að tala manninn til. Hann neit- aði alfarið að sleppa byssunni en bað Erlend að koma nær sér. Þegar hann svo steig nokkur skref fram úr fylgsni sínu gerði ódæðismaðurinn sig líklegan til „Maðurinn ölóður og sagðist myndi drepa sjálfan sig“ - Sjá nánarí frásögn á baksíðu fs Þungbúnir vfkingasveitarmenn leggja til atlögu við byssumanninn. Tíu mínútum eftir að víkingasveitin öll kom á vettvang var ógnvaldurinn yfirbugaður. hins versta svo Erlendur hörfaði að nýju og dreif þá höglin að honum. Að minnsta kosti tvö högl smugu í gegnum hrúguna sem Erlendur faldist bakvið og lenti í skotheldu vesti sem hann bar innanklæða. Erlendur skaut þá nokkrum, skotum á byrðing bátsins og virtist þá heldur sljákka í árásarmanninum um tíma að sögn Erlendar. Úr bátnum skaut maðurinn mörgum skotum í átt að mann- fjöldanum sem stóð við götuna og fylgdist með. Höglin hæfðu nærliggjandi hús og bíla en ekki er kunnugt um að nokkur hafi fengiðhögl í sig.Nokkrir bíleig- endur tilkynntu lögreglunni skemmdir á bílum sínum í gærkvöldi og á að minnsta kosti einum stað brutu höglin glugga í íbúðarhúsi en ekki er kunnugt um hvert frekara tjón varð í þeirri íbúð. Víkingasveitir lögreglunnar mættu svo á staðinn um klukkan tíu. Á meðan Erlendur talaði við manninn sem stóð á bak- borða læddust þrír vopnaðir menn úr sveitinni upp í bátinn á stjórnborða og beindu byssum sínum að manninum sem lét þá bugast og sáu áhorfendur uppi á götunni þegar hann lét hagla- byssuna falla fyrir borð. Hann var síðan fluttur með lögreglu- bíl niður í fangageymslur lög- reglunnar þar sem maðurinn fékk að gista í nótt en yfirheyrsl- ur hefjast í dag. „Heppinn að ekki var skotið inn um glugga hjá mér - sjáábaksíðu

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.