NT - 05.05.1984, Blaðsíða 23

NT - 05.05.1984, Blaðsíða 23
Laugardagur 5. maí 1984 23 „Staðráðin í því að verða leikkona“ - segir Eleanor Mondale ■ „Ég er mjög ánægö með sjálfa mig og þaö líf sem ég liH“. Það eina, sem á vantar, er að mér bjóðist hlutverk í kvikmynd eða sjónvarpi og pabbi minn verði Bandaríkja- forseti“. Þetta segir Eleanor Mond- ale, 23ja ára gömul dóttir Walters Mondale, sem nú stefnir stíft að því að verða forsetaefni demókrata í kosn- ingunum í nóvember næst- komandi. Hún er nú um þessar mundir að reyna að koma undir sig fótunum í kvikmynd- aheiminum í Hollywood, en hefur enn sem komið er haft minni árangur en erfiði. Eleanor segir það tvíbent að bera svona frægt nafn. Það haldi sumir, að henni standi allar dyr opnar, þegar hún nefndir nafn sitt, en hún segir það allt eins algengt, að hún mæti bara grettum og fussi og sveii. Hún hafi að vísu láfið sér detta í huga að skipta um nafn, þegar hún ákvað að leggja leiklistina fyrir sig, og fjöl- skyldan hafi m.a.s. sest á rökstóla til að finna sláandi og heppileg nöfn fyrir verðandi stórstjörnu, en á endanum hafi orðið ofan á hjá sér að halda sínu góða og gamla nafni. Henni þykir greinilega vænt urn fjölskyldu sína og hún lætur ekki sitt eftir liggja við að vinna að því að koma föður sínum í Hvíta húsið. Samt segist hún aldrei muni koma til með að búa þar, jafnvel þó að svo færi að faðir hennar réði þar ríkjum. Þó að Eleanor þyki hafa þá góðu kosti til að bera, sem með þarf til að ná langt í kvikmyndaheiminum, og hafi þar að auki nokkurt leiknám að baki, hefur henni ekki enn gengið sem skyldi að koma sér á framfæri í Hollywood. En hún er ekki á því að láta deigan síga og hefur bjargfasta trú á því, að einn góðan veðurdag eigi hlutverkin eftir að snúast við, þá verði það framleiðend- ur, sem fari bónarveg að henni, en ekki öfugt. sínar vítt og breitt um Banda- ríkin. Öldungar kirkjunnar og háskólayfirvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að fáránlegur klæðaburður Boy George og enn afskræmdari framkoma á sviði leiði til aukinnar útbreið- slu hómósexúalisma og ann- arra óvelkominna afbrigða í kynferðismálum. Þeir hlusta eícki á þann vitnisburð söng- varans sjálfs, að útgangurinn á honum sé eingöngu valinn með tilliti til að vekja athygli og segi í rauninni ekkert um kynferð- islega stöðu hans sjálfs. Sálfræðingur einn, sem tjáði sig um málið, sagði mjög lík- legt að Boy George ætti eftir að eiga í útistöðum við mor- móna víðs vegar um Bandarík- in, og reyndar fleiri. Hann segir flesta, einkum og sér í lagi foreldra, vera mjög á varðbergi gegn því unga fólki í skemmtanaiðnaðinum, sem stingur í stúf við hugmyndir fólksins, ■ en nýtur ómældrar aðdáunar unglinganna, sem - ÍFX'-.kV ' ' : ■ r ■e-i. ■ Marilyn -Boy George er ekki mín týpa! gera sitt besta til að apa eftir þaðöskraði yfirsigafhrifningu átrúnaðargoðunum sínum. - og féll í öngvit yfir Bítlunum Og, bætir hann við, þetta fólk og Elvis Presley. Það er löngu er búið að gleyma því, þegar búið að gleyma, ef það hefur ,þá nokkurn tíma tekið eftir því, að þegar Elvis Presley kom fyrst fram í sjónvarpi var myndavélunum eingöngu : beint að brjóstkassa hans og upp úr, því að mjaðmahreyf- ingar hans þóttu of djarflegar á þeim vettvangi! En þó að Boy George beri af sér allt óvenjulegt í kynferð- ismálum, hefur vinur hans, Marilyn, ekki verið tunguheft- ur um líferni hans. Þeir deildu húsnæði hér áður fyrr og fór ekki framhjá Marilyn, hvernig Boy George hegðaði sér. Marilyn segir þá þó bara hafa verið góða vini og félaga, ekki meir, enda sé Boy George ekki sín „týpa“! Sjálfum verð- ur honum tíðrætt um að sitt kynlíf sé svo fjölskrúðugt að hann hneigist til beggja kynja. Boy George hefur leitt þess- ar umræður hjá sér. Og hann vill heldur ekki, enn sem kom- ið er, ræða þá stór- „frétt", sem gengur fjöllunum hærra í poppheiminum, að Michael Jackson hafi sett sig í samband við hann og stungið upp á því að þeir gerðu hljómplötu saman. Er sagt að hinum há- kristna og hreinlífa Michael leiki mikill hugur á að kynnast þessu nýja fyrirbæri, sem á upptök sín í Englandi, við- rinunum, sem virðast hvorki vera strákar né stelpur. Hann og fjölskylda hans hafa verið önnum kafin að undanförnu að hrekja þannorðróm, að Michael sjálfur hafi meiri áhuga á strákum en strákum, og það gerir fyrirbærið kannski ennþá forvitnilegra í augum hans. ? - ••# ■ Michael Jackson og Boy George eru sagðir hafa átt stefnumót - en þar voru bara rædd viðskipti! ■ Eleanor hefur ekki hugsað sér að flytjast til Washington, jafnvel þó að faðir hennar yrði kosinn forseti. ■ Þessa stundina er Eleanor í símanum, en sennilega hefur hún hringt sjálf. Henni fínnst framleiðendur í Hollywood heldur seinir á sér að veita henni vinnu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.