NT - 05.05.1984, Blaðsíða 28

NT - 05.05.1984, Blaðsíða 28
 HY' Laugardagur 5.maí 1984 28 LlL Útlönd Arafat: Vill beina samninga við ísrael París-Reuter ■ Yasser Arafat leiðtogi PLO, frelsissamtaka Palistínu- manna sagði í blaðaviðtali að hann væri reiðubúinn að hafa beinar viðræður við ísraels- menn um deilumálin. Hann kvaðst ekki vilja afskipti ann- arra aðila en að Sameinuðu þjóðirnar tryggðu að sam- komulagið yrði haldið. Viðtalið birtist í hinu vinstrisinnaða blaði Le Nouvel Observateur og lagði Arafat á það áherslu að hann óskaði þess í einlægni að friður kæmist á í Miðausturlöndum en Pali- stínumenn munu ekki leggja niður vopn sín á meðan f sraels- menn láta ekki af hermdar- verkum sínum, eins og hann kallaði það. Þegar leiðtoginn var spurður nánar um hvernig hann hugs- aði sér samningaviðræðurnar svaraði hann að þær ættu að fara á milli „okkar“ og Isra- elsmanna undir eftirliti Sam- einuðu þjóðanna. Hann skil- greindi ekki nánar hverjir „við“ erum, en ísraelsmenn hafa ávalit harðneitað að eiga neinar viðræður við PLO, sem þeir kalla hermdarverkamenn sem hafa það stefnumark að eyðileggja Ísraelsríki. Arafat kvaðst mundu fallast á að gagnkvæm viðurkenning fengist á tveim ríkjum, það er ríki Palistínumanna og Israel. Embættismaður í ísrael sagði um viðtalið að PLO væri ekki hæfur samningsaðili gagn- vart ísrael og væri viðtalið ekkert annað en haugalygi. Arafat kemur til Kína í dag, en þangað er honum boðið í þriggja daga heimsókn. Diana Dors er látin London-Reuter ■ Hin heimsfræga breska leikkona, Diana Dors, lést í gærkvöldi 52 ára að aldri. Fyrir 30 árum var Diana ein af vinsælustu kvik- myndaleikkonunum í Hollywood. Hún varhæst- launaða leikkona Breta á þeim tíma með þriggja milljón dollara árslaun. Diana lést á sjúkrahúsi eftir að læknar höfðu reynt að bjarga lífi hennar með skurðaðgerð. tilkynningar „Lukkudagar“ Vinningsnúmer frá 1. apríl-30. apríl 1984: 1 57343 11 10208 21 4730 2 10005 12 27566 22 33071 3 41832 13 20417 23 10946 4 22240 14 911 24 44880 5 24312 15 19402 25 5005 6 43510 16 39994 26 2235 7 34403 17 37746 27 855 8 43617 18 58450 28 23530 9 20008 19 13440 29 41116 10 4021 20 25222 30 7005 Vinningshafar hringi í síma 200068. Sumardvöl fyrir fatlaða Á vegum svæðistjórnar Norðurlands vestra verð- ur á komandi sumri rekið sumardvalarheimili fyrir fatlaða að Egilsá í Skagafirði. Um er að ræða tvö tímabil. 1. 3-16 júní einkum ætlað einstaklingum inan 20 ára. 2. 20. júní- 3. júlí einkum ætlað 20 ára og eldri. Tekið skal fram að þessi aldursskipting er ekki bindandi. Þátttökugjald fyrir einstakling hvort tímabiler kr. 2000. Umsóknarfresturertil20. maí. Umsóknir sendist formanni svæðisstjórnar, Páli Dagbjartssyni, Varmahlíð, Skagafirði. Svæöisstjórn Norðurlands vestra. Vorfagnaður Skaftfellinga- félagsins og hinn árlegi konsert Söngfélags Skaftfell- inga verða haldnir í Skaftfellingabúð Lauga- vegi 178 laugardaginn 5. maí. Skemmtunin hefst kl. 16.30 með kaffiveiting- um, Kór Söngfélagsins syngur undir stjórn Violetu Smidova undirleikari er Pavel Smid. Þá mun gestakór koma fram á konsertinum er það karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit, sem syngur undir stjórn Helga R. Einarsson- ar. Einnig munu Violeta og Pavel Smid leika fjórhent á píanó. Um kl. 18.30 verður gert hlé á samkomunni til kl. 22.00, en þá verður komið saman að nýju í Skaftfellingabúð þar sem allir samein- ast um að Ijúka vetrarstarfi félaganna og heilsa sumri. Lyfjatæknaskóli íslands Auglýsing um inntöku nema Lyfjatækninám er þriggja ára nám. Umsækjandi um skólavist skal hafa lokið tveggja ára námi í framhaldsskóla (fjölbrautaskóla). Umsækjendur, sem lokið hafa prófi tveggja ára heilsugæslubrautar framhaldsskóla eða hlið- stæðu eða frekara námi að mati skólastjórnar, skulu að öðru jöfnu sitja fyrir um skólavist. Skólastjórn er heimilt að meta starfsreynslu umsækjanda og er einnig heimilt að takmarka fjölda þeirra nema, sem teknir eru í skólann hverju sinni. Vísað er til Reglugerðar um Lyfja- tæknaskóla (slands, nr. 196/1983, um náms- greinar og námsskipan. Einnig eru allar upplýs- ingar veittar í skólanum f.h. alla virka daga. Umsókn skal fylgja eftirfarandi: 1. Staðfest afrit af prófskírteini. 2. Heilbrigðisvottorð á eyðublaði, sem skólinn lætur í té. 3. Sakavottorð. 4. Meðmæli skóla og/eða vinnuveitenda. Umsóknarfresturertil 16. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans. Umsóknir skal senda til: Lyfjatæknaskóla íslands, Suðurlandsbraut 6, 105 Reykjavík. Innritun nýrra nemenda í grunnskóla í Mosfellssveit skólaárið 1984— 1985 fer fram dagana 7. og 8. maí kl. 9-14. Skráning í 7.-9. bekk (13-15 ára) er í gagnfræðaskólanum sími 66186. Skráning forskólanemenda og nemenda í 1.-6. bekk (6-12 ára) erí Varmárskóla sími 66154. Skólastjórar. Skrásetning stúdenta til náms á 1. námsári í Háskóla íslands, háskóla- árið 1984-85 fer fram frá föstudegi 1. júní til föstudags 13. júlí 1984. Umsókn um skrásetningu skal fylgja staðfest Ijósrit eða eftirrit af stúdentsprófsskírteini og skrásetn- ingargjald sem er kr. 1600.- Skrásetningin fer fram í aðalskrifstofu háskólans kl. 9-12 og 13-16 og þar fást umsóknareyðublöð. Athugið lengingu á skrásetningartíma- bili. Háskóli íslands. Frá 7. maí - til 1. september Loka skrifstofur félagsins kl. 16.00. Verslunarmannafélag Reykjavíkur Húsi Verslunarinnar 8. hæð. Nám í uppeldis- og kennslu- fræðum til kennsluréttinda við félagsvísindadeild Háskóla íslands Ákveðið hefur verið að auk reglulegs vetrar- náms í ofangreindri kennslugrein við félags- vísindadeild verði gefinn kostur á að stunda námið að hluta að sumarlagi. Sumarið 1984 verða eftirtalin námskeið kennd: Þroski barna og unglinga (5 ein.), Nám og námsáhugi (5 ein.), Hagnýt kennslu- fræði (að hluta). Auk þess verða kennslu- æfingar skipulagðar. Kennt verður 13. júní til 20. júlí. Próf fara fram með haustprófum háskólans um mánaðamótin ágúst-septem- ber. Nám þetta er ætlað þeim sem þegar hafa lokið háskólaprófi eða eru í háskólanámi. Skrásetning fer fram í aðalskrifstofu háskól- ans kl. 9-12 og 13-16 dagana 21. -25. maí n.k. og þar fást umsóknareyðublöð. Skrá- setningargjald er kr. 1600.- og gildir skráningin einnig fyrir næsta vetur. Nám- skeiðaskráningin fer fram í nemendaskrá háskólans sömu daga. Nánari upplýsingar veitir Gerður G. Ósk- arsdóttir dagana 7. til 11. maí kl. 13-14 í síma (91) 17717. Háskóli íslands. Styrkur til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Bretlandi Breska sendiráðið í Reykjavík hefur tjáð íslenskym stjórn- völdum að The British Council bjóði fram styrk handa (slendingi til náms eða rannsóknastarfa við háskóla eða aðra vísinda- stofnun í Bretlandi háskólaárið 1984-85. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi og að öðru jöfnu vera á aldrinum 25-35 ára. Gert er ráð fyrir að nám sem tengist enskri tungu komi að öðru jöfnu sérstaklega til álita, en það er þó ekki skilyrði. Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 22. þ.m. Umsókn skulu fylgja staðfest afrit prófskírteina og meðmæli. Tilskilin eyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig I breska sendiráðinu, Laufásvegi 49, Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 4. maí 1984.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.