NT - 05.05.1984, Blaðsíða 9

NT - 05.05.1984, Blaðsíða 9
Itt' Laugardagur 5. maí 1984 9 um Hestamannafélagsins Sindra og jafnan virkur félagi og formaður þess um árabil. Þeim afa og ömmu varð fimmtán barna auðið. Þau eru þessi: Jakob, f. 1917, býr að Skafta- felli í Öræfum, kvæntur Guð- veigu Bjarnadóttur. Valgerður, f. 1918, Vík, gift Magnúsi Þórðarsyni. Jón, f. 1919, Reykjavik, kvænt- ur Margréti Ögmundsdóttur. Anton, f. 1920, Vík, kvæntur Charlottu, fædd Tilsner. Guðrún, f. 1922, Reykjavík, gift Sigursveini Jóhannessyni. Guðfinna, f. 1923, Reykjavík, gift Björgvini Ólafssyni. Sólveig, f. 1924, Reykjavík, gift Guðjóni Eggertssyni. Guðlaug Sigurlaug, Vík, gift Einari Bárðarsyni. Einar, f. 1927, Reykjavík, kvæntur Guðlaugu Höllu Jóns- dóttur. Guðbjörg, f. 1929, Vik, gift Ólafi Ögmundssyni. Ester, f. 1931, Vík, gift Guð- mundi Sigfússyni sem lést 1978. Erna, f. 1932, Reykjavík, var gift Birni Óskarssyni. Þorsteinn, f. 1933, Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Ágústsdótt- ur. Svavar, f. 1936, Reykjavík, kvæntur Steinunni Auði Guð- mundsdóttur. Guðlaug Matthildur, f. 1938, Sólheimum í Mýrdal, gift Þor- steini Einarssyni. Amma lést árið 1938. Hún var manni sínum og börnum mikill harmdauði. Hefur það verið þungt hlutskipti að standa einn uppi með þennan stóra barnahóp. Afa tókst þó að mestu að halda heimilinu saman með dyggilegri aðstoð tveggja elstu dætra sinná, þeirra Val- gerðar móður minnar og Guðr- únar sem þá voru nítján og sextán ára gamlar. Lögðu þær oft nótt við dag að halda heimil- inu gangandi. Oft var erfitt um vik sökum fátæktar og þröng- býlis. Einnig var mjög gest- kvæmt og hefur móðir mín sagt mér að nærri daglega hafi afi tekið með sér gesti heim í mat eða kaffi. Oftast voru það bænd- ur úr nærliggjandi sveitum sem áttu erindi til Víkur. En ein- hvern veginn tókst þetta nú allt saman og börnin komust öll til manns. Held ég að bjartsýnin og létta lundin hans afa hafi átt stóran þátt í því. Hann hafði þann hæfileika í ríkum mæli að sjá það jákvæða í tilverunni. Einnig voru systkinin ákaflega samrýmd og samhent. Samband milli afa og barna hans var einstaklega hlýtt og gott og var hann umvafinn ástúð þeirra í ellinni. Dóttir hans Ester og maður hennar Guð- mundur Sigfússon bjuggu í Guðlaugshúsi allan sinn búskap eða þar til Guðmundur lést fyrir fáum árum. Þau voru honum stoð og stytta í ellinni. Afi naut þess að geta verið á heimili sínu þar til aðeins nokkrum mánuð- um áður en hann lést. Var það m.a. að þakka ástúð og um- hyggju Esterar og barna hennar að slíkt var mögulegt. Má segja að hann hafi uppskorið eins og hann sáði, einnig í samskiptum við aðra en sína nánustu. Bænd- urnir og aðrir, sem hann vann svo vel fyrir á langri ævi, endur- guldu honum það með því að sækja hann heim í ellinni. Ég held að vart hafi liðið sá dagur að ekki hafi einhver litið inn og stytt honum stundir. Sama gilti þegar hann var kominn á sjúkra- hús í Reykjavík og síðast á Selfossi. Ótrúlegur fjöldi fólks kom og fór allan daginn til að heilsa upp á heiðursmanninn Guðlaug Jónsson. Hann lifði það að halda níræðisafmæli sitt á sjúkrahúsinu, umkringdur börnum sínum og vinum. Þegar hann svo lést aðfaranótt 24. apríl sl. á sjúkrahúsinu á Sel- fossi voru þrjú barna hans hjá honum. Hvíli hann í friði. Guðlaug Magnúsdóttir Helgi Haraldsson, bóndi á Hrafnkelsstöðum Fæddur 12. júní 1891 Dáinn 27. apríl 1984 Ég var ungur að árum þegar mér fór að þykja vænt um Hrafnkelsstaði í Hrunamanna- hreppi. Það var upphaflega vegna þess að ráðskonan í Ása- skóla, þegar ég var þar í barna- skóla var Guðrún Haraldsdóttir frá Hrafnkelsstöðum, mikil ágætis manneskja, jafnlynd og vel gefin. Nokkrum árum seinna kynntist ég Hrafnkelsstaða- heimilinu af eigin raun, og þó að ég væri barn að aldri duldist mér ekki, að þar ríkti mikil vinnusemi samfara fjölþættri menningarstarfsemi bæði með lestri góðra bóka ásamt þátt- töku í göfgandi félagsstörfum, þar sem fram fór erindaflutning- ur og umræður og svo leiklistar- starfsemi . Einnig var þar vel sótt kirkja að Hruna. Það mun hafa verið árið 1928, sem ég hitti Helga á Hrafnkels- stöðum fyrst. Hann var fæddur þar 12. júní 1891, sonur þeirra gagnmerku hjóna, er bjuggu á Hrafnkelsstöðum frá árinu 1888-1927, Haraldar Sigurðs- sonar frá Kópsvatni, mikils öndvegis bónda, og Guðrúnar Helgadóttur frá Birtingaholti. Guðrún var systir þeirra lands- kunnu bræðra, sr. Guðmundar í Reykholti, sr. Kjartans í Hruna, sr. Magnúsar, skóla- stjóra Kennaraskólans og Ág- ústs í Birtingaholti og systir hennar var frú Katrín á Stóra- Núpi, kona sr. Ólafs Briem. Guðrún er þeim sem muna hana ógleymanleg mannkosta kona. Það var í lok mikilla harð- inda, sem Helgi var borinn í þennan heim. Lífsbaráttan var hörð, og bændur börðust í bökkum og Ameríkuferðirnar voru enn í fullum gangi. En þó að fátækt væri yfirleitt mikil, þá var um aldamótin, eins og væri að rofa til fyrir nýjum degi, og það er staðreynd, að æska þessa lands, sem var að koma til vits og ára um þetta leyti var gædd mikilli bjartsýni á framtíð lands og þjóðar. Þetta voru sannkall- aðir vormenn íslands, staðráðn- ir í að berjast fylktu liði til að skapa nýja gullöld á íslandi. Helgi á Hrafnkelsstöðum heillaðist af boðskap aldamóta- skáldanna og andlegum foringj- um þjóðarinnar og sá vorhugur sem þá fyllti brjóst hans yfirgaf hann aldrei, þó að árin yrðu næstum 93. Helga bjó í brjósti mikil menntaþrá eins og mörgum öðrum frændum hans, en það gat nú ekki orðið, að hann gengi menntaveginn, eins og hann' sagði mér síðar á æfinni, þá átti hann sér enga ósk heitari á unglingsárum sínum, en að læra til prests. Én Helgi fékk að fara í bændaskóla og árið 1911 út- skrifaðist hann búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Helgi var mikill námsmaður og á Hvanneyri drakk hann í sig bæði allt það, sem laut að bú- fræði, en hann lærði einnig sögu og íslensku ásamt nýjum lífsvið- horfum, sem hinir víðsýnu og menntuðu kennarar skólans fluttu þessum námsþyrstu og gáfuðu ungu skólapiltum. Þegar Helgi kom heim aftur, vann hann ötullega að marg- þættu félagsstarfi sveitarinnar og veit ég, að enginn hinna mörgu hæfileikamanna, sem þá voru að alast upp í Hruna- mannahreppi, hafi átt stærri þátt í uppbyggingu þess fjöl- þætta og frjóa félagsstarfs, sem hefur blómstrað og borið ávöxt þar á undangengnum áratugum en Helgi á Hrafnkelsstöðum. En Helgi hafði brennandi áhuga á að læra meira og sjá meira af landinu. Þetta auðnað- ist honum er hann réðst til fjárræktarnáms norður í Mý- vatnssveit árið 1921-1922. Helgi lærði þar bæði margt og mikið. Hann hreifst af félagsþroska Þingeyinga, og hann sannfærð- ist um, að með markvissum kynbótum mætti stórbæta hag bænda og bæta framleiðsluvörur þeirra. Arið 1923 keypti Helgi dálítinn hóp af völdu fé úr Mývatnssveit og Bárðardal og flutti það suður að Hrafnkels- stöðum í Hrunamannahreppi og stofnaði þar kynbótabú, þar sem hann rak stofnrækt á þing- eysku fé, að mestu byggt á þessum stofni í nærri 30 ár, þangað til fjárskiptin fóru fram á Suðurlandi árið 1951. Allir sem til þekkja, og tel ég mig til þeirra, eru á einu máli um það, að þetta framtak Helga hafi orðið til að stórbæta fjárstofn- inn í mörgum sveitum á Suður- landi. En það sem var þýðingar- mest við stofnun og rekstur fjárræktarbúsins á Hrafnkels- stöðum var sú áhuga vakning fyrir kynbótum, sem Helgi kom af stað, og um leið kenndi hann mönnum að trúa á gagnsemi kynbótarstarfsins, þegar mark- visst væri að því staðið. Helgi tók við búsforráðum á Hrafnkelsstöðum árið 1928 og bjó félagsbúi við mág sinn Svein Sveinsson og systur sína Sigríði til ársins 1951, en frá 1951 til 1966 rak hann þar sjálfstætt bú. Hann var 75 ára er hann brá búi og enn við allgóða heilsu, en að baki ótrúlega mikið lífsstarf við bústörf og á sviði félagsmála. Þannig hafði Helgi verið í 30 ár í stjórn Ungmennafélags Hrunamanna og þar af 7 ár formaður, hann var um áratuga- skeið í stjórn nautgriparæktar- félagsins, hann var í m-eira en áratug eftirlitsmaður fóður- birgðafélagsins, í mörg ár í hreppsnefnd, í áratugi í stjórn Sláturfélags Suðurlands og fleiri trúnaðarstörf mætti telja. Helgi var góður bóndi, átti alltaf kostamikið búfé og nægilegt fóður fyrir það. Hann seldi mikinn fjölda lambhrúta á hverju hausti og kostaði kapps um það, að selja þá ekki dýrari en sem svaraði frálagsverði." Helgi átti einnig mjög gott kúa- kyn og seldi frá sér nokkur naut til kynbóta. Þegar Helgi lét af störfum sem bóndi, fékk hann systurson- um sínum sinn jarðarhluta til eignar, en bjó rneð systur sinni- Sigríði, sern var orðin ekkja fyrir allmörgum árum, í skjóli Sveins systursonar síns og Sjafn- ar konu hans. Síðan Helgi hætti að búa eru nú liðin bráðum 18 ár, og hefur Helgi mest allan þennan tíma búið við allgóða heilsu og á margan hátt notið vel elliáranna. Þarna gafst hon- um loksins kostur á að sinna fjölmörgum hugðarefnum sín- um, eins og ritstörfum, en hann hefur eins og alkunnugt er ritað fjölda blaða og tímarits- greina um margskonar efni, allt frá því er hann var innan við miðjan aldur, og nú fyrir nokkr- um árum voru gefnar út 2 bækur með úrvali þessara ritgerða. Á þessum árum gafst Helga einnig ráðrúm til að sinna einu mesta hugðarefni sínu, en það var að sjá leiksýningar hjá atvinnuleik- húsum þjóðarinnar. Hann sótti einnig kvikmyndasýningar þeg- ar tækifæri gafst og skildi betur en margur af eldri kynslóðinni menningargildi kvikmyndaiðn- aðarins. Þá var Helgi óþreyt- andi að sækja opinbera fyrir- lestra, sérstaklega um bók- menntaleg eða sagnfræðileg efni. Á þessum árum gafst Helga tækifæri á því að ferðast mikið um landið og rn.a. fór hann í nokkur sýningaferðalög um fjarlæg héruð með mér og verður mér ætíð minnisstætt hið einstaka lífsjör, sem hann var gæddur fram í háa elli. Helgi var heiðraður á margan hátt fyrir sín gagnmerku félags- málastörf. Þannig var hann heiðursfélagi Ungmennafélags Hrunamannahrepps, Búnaðar- sambands Suðurlands og Bún- aðarfélags íslands. Hann fór í gær síðustu förina að Hruna, sóknarkirkjunni sinni, þar sem hann hafði í æsku mótast að góðum málsmekk og víðsýni af hinum gagnmerku prestum sem þjónuðu þar hvor fram af öðrum, þeim sr. Stein- dóri Briem og Kjartani Helga- syni. Margir fylgdu honum að Hruna, sveitungar, vinir og samferðamenn með þakklátum huga fyrir hans óeigingjarna lífsstarf og dyggu félagsmála- störf. Við hjónin þökkum hon- um margar ánægjulegar heim- sóknir og vottum Sigríði systur hans bestu þakkir fyrir alla hennar umönnun við hann. Ég vil svo að lokum f.h. Búnaðarsambands Suðurlands færa hinum látna heiðursfélaga þakkir fyrir líf hans og starf. Blessuð sé minning hans. Hjalti Gcstsson. Halldór Gunnlaugsson, Kiðjabergi Fæddur 20. sept. 1892 Dáinn 24. apríl 1984 í dag kveðjum við Grímsnes- ingar aldinn heiðursmann Hall- dór Gunnlaugsson í Kiðjabergi. Hann varfæddur20. sept. 1892, sonur hjónanna Soffíu Skúla- dóttur og Gunnlaugs Þorsteins- sonar bónda og hreppstjóra í Kiðjabergi. Halldór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík árið 1913 og guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1917. Hann gerðist bóndi í Kiðja- bergi 1924 og var það til dauða- dags og var þá elsti bóndi í Arnessýslu og sá sem lengst hefur búið eða tæp 60 ár. Soffía móðir Halldórs stóð fyrir búi hans til dauðadags 1954 og hafði þá verið húsmóðir í Kiðjabergi í 68 ár. Heimilið í Kiðjabergi var þekkt fyrir myndarskap og velvild, einkum margvíslega að- stoð við heimili í sveitinni, þar sem fátækt og veikindi voru, sem títt var fyrr á árum. Grímsnesingar heiðruðu minningu foreldra Halldórs með því að stofna minningar- sjóð á áttræðisafmæli frú Soffíu í Kiðjabergi. Sjóðurinn heitir Sveitarprýði og beitir sér m.a. fyrir hverskonar fegrun um- hverfis býli sveitarinnar og við kirkjur, eftir því sem efni sjóðs- ins leyfa. Halldór var hreppstjóri frá 1932 til 1976 og í hreppsnefnd Grímsneshrepps frá 1924 til 1958. Sáttanefndarmaður og umboðsmaður skattstjóra og úttektarmaður, jafnframt hreppstjórastörfum. Búnaðarfélag Grímsnes- hrepps gerði hann að heiðurs- félaga áttræðan og hreppsnefnd að heiðursborgara Grímsnes- ið heilla Þorsteinn Sveinsson kaupfélagsstjóri, sextugur 2. maí Þorsteinn Sveinsson kaup- félagsstjóri á Egilsstöðum varð sextugur 2. maí. Undirritaður getur ekki látið hjá líða að senda honum kveðju á þessum tímamótum. Þorsteinn hefur helgað sam- vinnuhreyfingunni starfskrafta sína frá því að hann komst til fullorðinsára. Hann hefur verið kaupfélagsstjóri frá því árið 1949 er hann tók við stjórn Kaupfélags Berufjarðar á Djúpavogi og til þessa dags, en hann kom til starfa hjá Kaup- félagi Héraðsbúa árið 1967. Ég vil fullyrða það að það er mikið lán fyrir samvinnuhreyf- inguna í landinu að fá menn eins og Þorstein til starfa. Manni með hans hæfileika og atorku hefði verið í lófa lagið að ná frama á öðrum vettvangi. Hann nýtur þess að vinna í þágu heildarinnar. Það veit ég af langri viðkynningu við hann. Eg ætla ekki að skrifa um Þorstein í eftirmælastíl. Hann er hér að störfum meðal okkar, jafnkraftmikill og áður, önnum kafinn við það að byggja upp starfsemi Kaupfélags Héraðs- búa með framtíð félagsins, og byggðarlaganna sem það nær til, í huga. Þannig hefur það verið þau ár sem hann hefur unnið fyrir félagið. Það starf hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Það þarf sterk bein og mikið úthald til þess að stýra fyritækj- um af þeirri gerð sem kaupfé- lögin eru í gegn um þá brotsjói sem koma vegna efnahagserfið- leika og ills árferðis. Kaupfélög- in snerta lífsafkomu fólksins svo náið. Stundum er sú mynd dregin upp af forstjórum fyrirtækja að þeir sitja fyrir innan stórt skrif- borð svo ábúðarmiklir að þeir þykja ekki árennilegir fyrir starfsfólk eða viðskiptavini. Þorsteinn er ekki maður slíkrar gerðar. Hann tekur ávallt þátt í starfinu með sínu starfsfólki eins og hver annar vinnufélagi, án þess að missa þá virðingu sem hæfileg er. Við sem vinnum hjá Kaupfé- lagi Héraðsbúa munum tímana tvenna í starfsaðstöðu félagsins. Mjög mikil uppbygging hefur verið hjá félaginu á síðari árum, og ég hygg að á engan sé hallað þótt sagt sé að Þorsteinn hefur verið drifkrafturinn bak við þessa uppbyggingu. Hann skilur eftir sig djúp spor í atvinnusögu þeirra byggðarlaga sem Kaup- félag Héraðsbúa nær til og von- andi fáum við að njóta starfs- krafta hans áfram. Ég veit að ég mæli fyrir munn starfsmanna Kaupfélags Héraðsbúa þegar ég þakka Þor- steini fyrir samstarfið það sem af er og óska honum alls hins besta. Við hjónin þökkum hon- um einnig persónulega fyrir langa og góða viðkynningu. -Jón Kristjánsson. hrepps á 90 ára afmælisdegi hans 20. sept. 1982. Ég man fyrst eftir Halldóri sem prófdómara í barnaskóla, hann gekk á milli borða, leit á verkefnin og með sérlega Ijúf- mannlegu fasi og framkomu fundum við börnin að þar fór vinur okkar, sem gjarnan vildi hjálpa okkur við úrlausnir. Seinna stundaði ég umferðar- vinnu og var þá í tvígang í Kiðjabergi og kynntist þá elda- mennsku Halldórs, sem var ein- stök og verður ekki annað séð en að hann hafi verið langt á undan sinni samtíð, en hann hafði aðstoðað móður sína, þegar aldurinn færðist yfir hana og lært af henni. Ekki var síður skemmtilegt að eiga samræður við Halldór um menn og málefni. Hnyttin tilsvör manna kunni Halldór og sagði einstaklega vel frá löngu liðnum atburðum. Þá langar mig að geta þess að Halldór var oftlega beðinn um að flytja líkræður yfir moldum sveitunga sinna og þóttu þær ræður áhrifamiklar og vel fluttar. Prestastétt landsins hefði eignast góðan kennimann ef Halldór hefði stigið skrefið til fulls og orðið prestur, eins og menntun hans gaf tilefni til, en við Grímsnesingar erum ánægðir með það hlutskipti að hafa átt bóndann Halldór í Kiðjabergi að samferðarmanni. I Kiðjabergi var löngum rekið stórt og gott bú. Þar naut Hall- dór góðra manna og vil ég geta tveggja, Þorsteins Stefánssonar sem var hans hægri hönd, á meðan líf og heilsa entust og nú í seinni tíð Þorláks Jónssonar, sem gerði Halldóri kleift að stunda búskap og vera heima á sinni ættarjörð, jörðinni og staðnum sem honum var kærast- ur hér í heimi. Halldór, hafðu þökk fyrir allt og allt. Böðvar Pálsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.