NT - 05.05.1984, Síða 2
yp - Laugardagur 5. maí 1984 2
1 lLi Fréttir
Minni niðurgreiðslur:
Mjólkin hækk
ar um 10%
■ Landbúnaðarafurðir
munu hækka f verði um 5 til
15% þegar áform ríkisstjórn-
arinnar um að draga úr
niðurgreiðslum öðlast gildi.
Þetta kom meðal annars
fram í ræðu Steingríms Her-
mannssonar forsætisráð-
herra er hann mælti fyrir
bandorminum svokallaða á
Alþingi í gær. Samkvæmt
heimildum NT hækkar verð
á hverjum lítra mjólkur um
10%, úr 18,70 í 20,50 krónur.
Skyrið hækkar um 15% og
ætti þá 500 gr. dós af skyri að
hækka úr 14,70 í tæpar 17
krónur. Þá mun ráðgert að
dilkakjöt hækki um 5%
kílóið. Líklegt er að niður-
greiðslur verði með öllu
felldar niður af rjóma, nauta-
kjöti og ostum. í ræðu for-
sætisráðherra kom fram að
vegna samdráttar sem orðið
hefur í neyslu landbúnaðar-
vara er áætlað að um 40
milljóna króna afgangur
verði af því fé sem verja átti
til niðurgreiðslna á árinu.
Þessu til viðbótar er stefnt að
því að minnka niðurgreiðslur
um 145 milljónir króna.
■ Þó komið sé fram í maí er ekki allstaðar óhætt að setja upp sumardekkin. í gærmorgun
varð harður árekstur á veginum milli ísafjarðar og Hnífsdals. Ökumaður rúgbrauðsins sem
var á leið til Isafjarðar missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann rakst á
olítiliíl sem kom á móti og skemmdust báðar bifrciðarnar mikið.
Hnífsdalsvegur:
Harður árekstur í hálku
- bílstjóri „rúgbrauðsins“ nýbúinn að setja upp sumardekkin
■ í gærmorgun varð harður
árekstur á veginum milli ísa-
fjarðar og Hnífsdals og er það í
annað skipti í þessarri viku sem
þar verður alvarlegt umferða-
óhapp.
Að kvöldi 1. maí gereyðilagð-
ist BMW bifreið þegar hún
rakst á Ijósastaur en engin slys
urðu á fólki. í gær voru það svo
rúgbrauðs bifreið og olíubfll frá
Olís sem rákust saman en ekki
urðu alvarleg slys á fólki. Öku-
maður rúgbrauðsbifreiðarinnar
missti stjórn á bfl sínum í hálku
en skipt hafði verið yfir á
sumardekk kvöldinu áður.
Samkvæmt heimildum NT á
ísafirði voru tildrög slyssins með
þeim hætti að ökumaður rúg-
brauðsins sem ók á 60 kílómetra
Hefur þú möguleika á að kynda
Ókeypis?
Parka miðstöðvarkatlarnir eru gerðir fyrir
olíukyndingu, rafmagnskyndingu og síð-
ast en ekki síst eru þeir með innbyggðan
„Lurkabrennara“. Ef þú hefur möguieika á
rekaviði og úrgangsviði. Þú slekkur þá á
olíu eða rafmagnskyndingu og sparar.
Ótrúlega hagstætt verð. Kr.
41.950.00 (9 kw rafmagns-
hitari fylgir en ekki olíu-
brennari)
Skoðið PARCA 3000 og 3100 á sýningu
„Orkusparnaðarátaks“ að Hallveigar-
stöðum
urmai
eiióban h.f.
Suðurlandsbraut 16
Sími (91) 35-200
Reykjavík
hraða rann til í beygju og sneris
á veginum í þann mund sen
Olísbíllinn kom á móti. Bílstjór
Olísbílsins mun hafa reynt ac
afstýra árekstri en rúgbrauði
rakst þá á afturenda bílsins me
þeim afleiðingum að Olísbíllin
valt og skemmdist nokkuð
bretti og hús bílsins skekktist.
Volkswagenn bíllinn hentis
aftur á móti til og lenti úti í kant
og er nær ónýtur.
í rúgbrauðinu voru tveir nem
endur úr Menntaskólanum ;
ísafirði á leið í próf. Ökumaður
inn missti meðvitund en meiðsl
hans voru ekki alvarleg. Félag
hans rifbeinsbrotnaði en öku
maður Olísbifreiðarinnar slapf
ómeiddur. Piltarnir voru báðii
fluttir á sjúkrahús ísafjarðar er
fengu að fara heim síðegis í gær.
Að sögn lögreglunnar á fsa-
firði er mikið um umferðaslys á
þessum slóðum. Sagði hún
helstu ástæðu þessa óvarlegan
akstur en á veginum eru vara-
samar beygjur sem ekki gefa
tilefni til mikils hraða þegar þar
er farið.
Forseti íslands:
Gróðurset-
ur tré
í Garðabæ
H Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir mun í dag kl. 13
koma að Flataskóla í Garðabæ
og gróðursetja þar tré ásamt
með skólabörnunum, foreldr-
um þeirra og kennurum.
Forsaga málsins er sú, að á 25
ára afmæli skólans í október s.l.
gaf Vigdís skólanum þrjár trjá-
plöntur og kvaðst koma aftur að
vori til aðgróðursetja þærásamt
fleiri trjám, og er sú stund nú
upp runnin. Foreldra- og kenn-
arafélag skólans stendur að
gróðursetningunni og hefur
trjáplöntur á staðnum en hvetur
börn og foreldra til að taka með
sér fotur og skóflur.
Húsbruni á Höfn í Hornafirði:
Einn hundur
lét lífid en
tveir sluppu
- úr mannlausu húsinu
■ Eldur kom upp í timbur-
húsi á Höfn í Hornafírði
síðdegis í gær og er innbú
hússins talið nær ónýtt. Þrír
hundar voru í húsinu og var
einn þeirra dauður þegar
slökkvilið kom að en hinir
tveir voru fluttir meðvitundar-
lausir til dýralæknis og var
líðan þeirra eftir atvikum góð
þegar NT fór í prentun í gær.
Húseigendur eru ung hjón
og voru þau í vinnu sinni
þegar atburðurinn átti sér
stað. Orsakir eru ekki kunn-
ar en samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar á Höfn virð-
ast eldsupptök hafa verið í
forstofu.
Það var vegfarandi sem
varð eldsins var og tókst
slökkviliðinu fljótt að ráða
niðurlögum eldsins. Innbúið
var lágt vátryggt og er tjónið
því tilfínnanlegt.
--- ------ 1
>E3m .- j