NT - 05.05.1984, Qupperneq 3
VERH) VELKOMIN OG AOOVITAÐ VEROUR HEITT A KÚNNUNNI:
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
MFIRIHÁTTAR
I W 1 Kim 8 Wm 1 mm
bílasýningar laugardag og sunnudag kl. 2-5
TEFLUM FRAM GLÆSILEGUM GÆÐINGUM OG SYNUM
:AN CHERRY GL.3JADYRA.
U GLF 1800 4WD STATION MEÐ AFLSTÝRI.
UBG PICKUP.
Laugardagur 5. maf 1984 3
Pólskitannlæknir-
innviðnámíTann-
læknadeild:
Fullmenntaður í heimalandi
sínu - en einskis metinn hér
■ Háskólamenntun í A-Evrópu er ekki mikils virði á íslenskan
mælikvarða. Pólskur, landflótta tannlæknir stendur nú frammi fyrir því
að verða að setjast á bekk með byrjcndum í tannlæknadeild Háskóla
Islands, þrátt fyrir að teljast fullmenntaður tannlæknir í sínu heimalandi.
Tannlæknanám á Islandi tekur minnst sex ár.
Konan fær óljósar
upplýsingar
Hér er um að ræða pólska
flóttakonu sem ásamt fleirum kom
hingað til lands árið 1982.
Tannlæknismenntun hennarvar
ekki tekin gild af íslenskum heil-
brigðisyfirvöldum, svo þess var
farið á leit við tannlæknadeild
Háskólans að konan yrði prófuð
þar, áður en hún fengi leyfi til að
starfa sem tannlæknir.
Að eigin sögn, hóf flóttakonan
pólska, nám í tannlæknadeild í
október í fyrra, en þá var henni
sagt að námi hennar lyki um jól.
Þegar þar að kom, fékk hún þær
upplýsingar að námslok myndu
dragast til vors. Nú er komið vor
ársins 1984 og enn hefur konan
engar upplýsingar fengið um það,
hvaða námsframvinda henni er
ætluð. Hún mun þegar hafa lokið
nokkrum undirstöðunámskeiðum
auk verklegra þátta.
Haft var samband við deildar-
forseta tannlæknadeildar, Sigfús
Þór Elíasson, sem tjáði NT að
umrædd flóttakona væri „enn ekki
komin inn í kerfið." Hún hefði
verið prófuð á sínum tíma, en ekki
staðist öll próf. Því yrði hún að
taka sama námsefni og annars árs
nemar, til að byrja með, bæði
verklegt og skriflegt, auk munn-
legra prófa á íslensku. „Fyrr fær
hún ekki læknisleyfi" sagði deild-
arforseti.
íslenskum stúdentum
fækkað vegna málsins
Tannlæknadeild hefur lagt til
við Háskólaráð, að sjö nemendur
fari upp á annað ár í stað átta sem
verið hefur undanfarin ár. Pólska
flóttakonan mun vera áttundi
nemandinn sem á að koma í stað
íslensks stúdents.
Samkvæmt heimildum NT eru
stúdentar ókyrrir í kjölfar þessarar
tillögu tannlæknadeildar. Einn
heimildarmanna tjáði blm. að uppi
væru efasemdir um þrengslin í
verklegum greinum í tannlækna-
deild. Sagði hann að í uppkasti að
þróunaráætlun deildarinnar sem
lagt var fyrir deildarfund tann-
læknadeildar s.l. haust hafi þegar
verið búið að skipuleggja „vand-
ræði" á klínik fyrir haustið 1984, í
gervitannagerð. Sami heimildar-
maður taldi að um þær mundir
hefði þó engin ástæða verið til að
ætla annað en að allir myndu
uppfylla kröfur í greininni.
1 framhaldi gat heimildarmaður
þess að nemum á öðru og þriðja
ári hefði borist bréf, frá tann-
læknadeild, þess efnis að einhverj-
um þeirra yrði að seinka í námi
vegna þrenginga í verklegri
kennslu. Taldi heimildarmaður að
pólski tannlæknirinn væri liður í
„hernaðaráætlun" tannlækna-
deildar um að „fylla klínikina af
einhverju fólki öðru en nýnem-
um,“ og fá þar með framgengt að
í sjö. Hafa fleiri tekið í sama
streng.
Konan á aðeins að
taka fáa verklega þætti
Skv. þeim upplýsingum sem
Gunnar Þormar, form. Fél. ísl.
tannlækna og Jón Ásgeirsson,
frkv.stj. Rauða krossins hafa veitt
NT þá lágu þær upplýsingar fyrir
að pólska konan þyrfti einungis að
taka nokkra verklega þætti í tann-
læknadeild til að fullnægja forms-
atriðum. Gunnar Þormar tjáði
blm. að samkvæmt gildandi regl-
um ætti flóttakonan ekki að gang-
ast undir próf í öðru cn verklegum
þáttum. Taldi hann að konan væri
í lokaprófsáfanga sem ætti ekkert
skylt við það námsefni sem annars
árs nemar taka, jafnvel þótt tann-
læknismenntun í A-Evrópu teljist
ekki sambærileg við það sem tíðk-
ast hérlendis.
Eigandi reiðhjóls-
ins rændi þjófunum
Lögreglan í Hafnarfirði var
í fyrrinótt kölluð upp að skíða-
skálanum í Bláfjöllum þar sem
tveir fimmtán ára piltar biðu
þess að komast til Hafnarfjarðar
á ný eftir að hafa verið rænt og
þeim ekið upp að afleggjaran-
um að skálanum. Drengirnir
höfðu stolið reiðhjóli í Hafnar-
firði og fann eigandi reiðhjólsins
þá skömmu síðar. Þeir neituðu
þá öllum sakargiftum um stuld-
inn en samþykktu að koma með
hjóleiganda á lögreglustöðina.
í stað þess að halda á fund
lögreglunnar hélt bílstjórinn
upp að Sandskeiði þar sem hann
henti farþegum sínum út og
máttu þeir ganga fjögurra kíló-
metra leið að skíðaskálanum
Það var ekki fyrr en komið var
fram á dag að Rannsóknarlög-
reglunni tókst að fá fram játn-
ingu hjá piltunum. Maðurinn
sem ók þeim verður væntanlega
yfirheyrður eftir helgi og að
lokinni rannsókn mun lögreglan
scnda gögnin til sýslumanns.
Þaðan má svo búast við að þau
fari til ríkissaksóknara og verða
þá drengirnir ákærðir fyrir reið-
hjólastuld en reiðhjólaeigand-
inn fyrir mannrán.