NT - 05.05.1984, Qupperneq 29
Forsetakosningarnar í El
Salvador munu litlu breyta
Bretland:
Kínverskir
leiðtogar
heimsækja
Norður-Kóreu
■ Hu Yaobang, aðalritari
Kommúnistaflokks Kína, kom
í gær til Norður-Kóreu.
Heimsókn Hu til Norður-
Kóreu er í beinu framhaldi af
heimsókn Reagans til Kína en
Hu Yaobang og Reagan ræddu
m.a. um leiðir til að minnka
spennu á Kóreuskaganum.
Kínverjar hafa ítrekað lýst
yfir stuðningi sínum við tillögur
Norður-Kóreu um viðræður
milli fulltrúa frá Bandaríkjun-
um, Suður-Kóreu og Norður-
Kóreu um framtíð Kóreu.
Bandaríkjamenn hafa fjöl-
mennt herlið í Suður-Kóreu.
Par er m.a. mikið magn banda-
rískra kjarnorkuvopna.
Norður-Kóreumenn segja að
þátttaka Bandaríkjanna sé þess
vegna nauðsynleg í öllum við-
ræðum um framtíð Kóreuskag-
ans.
Kínverjar hafa öldum saman
litið á Kóreu sem sérstakt
verndarsvæði sitt. Þeir álíta að
ófriður á Kóreuskaganum sé
óhjákvæmilega ógnun við Kína.
Það er talið að Kínverjar hafi að
undanförnu lagt hart að leið-
togum í Norður-Kóreu að sýna
meiri samningavilja í viðræðum
við Suður-Kóreumenn. Kín-
verjar eru nú líka smám saman
að auka tengsl sín við Suður-
Kóreu, sérstaklega á sviði
íþrótta. En þeir verða að gæta
þess að styggja ekki Norður-
Kóreumenn svo að þau leiti
ekki til Sovétmanna.
Með heimsókn Hu Yaobang
til Norður-Kóreu leggja Kín-
verjar áherslu á tryggan stuðn-
ing sinn við Kim Il-Sung, leið-
toga Norður-Kóreu, en hann
mun heimsækja Sovétríkin síð-
ar í þessum mánuði.
Belgía:
Uppsetning
kjarnavopna
undirbúin
Belgía-Reuter
■ í gær komu bandarískir
tæknifræðingar til Belgíu til að
undirbúa uppsetningu Cruise-
eldflauga þar. _
Tæknifræðingarnir, sem eru
fimmtán hafa þegar byrjað í
herstöðinni við Florennes sem
er í 70 km fjarlægð frá Brussel.
Belgísk stjórnvöld gera ráð fyrir
að taka við kjarnaeldflaugum af
Cruisegerð frá og með næsta
ári. Þau eiga samt enn eftir að
ganga formlega frá samningum
um uppsetningu eldflauganna.
Verði eldflaugarnar settar
upp má búast við því að banda-
rískum hermönnum og hernað-
arsérfræðingum fjölgi mjög í
Belgíu og þeir verði orðnir um
fímmtán hundruð árið 1987.
Laugardagur 5.maí 1084 29
Ihaldsmenn missa fylgi
London-Reuter
■ Úrslitbæja-ogsveitastjóma-
kosninga í Bretlandi í gær voru
mikið áfall fyrir stjórn Margrét-
ar Thatchers. íhaldsmenn töp-
uðu fylgi á 266 stöðum á móti
135 stöðum þar sem þeir bættu
fylgi sitt.
Stjórnarandstaðan má hins
vegar vel við una. Fylgi Banda-
lags sósíaldemókrata og frjáls-
lyndra var yfirleitt mun meira en
sicoðanakannanir höfðu spáð.
Formaður Sósíaldemókrata-
flokksins, David Owen, sagði í
gær að úrslitin sýndu svo að
ekki væri um villst að flokkur
sinn hefði náð öruggri fótfestu í
breskum stjórnmálum. Útkoma
Verkamannaflokksins var líka
nokkuð góð og styrkti stöðu
hins nýja formanns flokksins,
Neil Kinnocks.
íhaldsflokkurinn missti meiri-
hluta sinn í 14 borgum, þar á
meðal í Birmingham þar sem
íhaldsmenn höfðu fylgt stefnu
sem margir litu á sem fyrirmynd
stjórnarstefnunnar. Þótt fhalds-
mönnum tækist að halda meiri-
hluta sínum í aukaþingkosning-
um í kjördæmum, sem talin
hafa verið meðal öruggustu
kjördæma þeirra, minnkaði
meirihluti þeirra þar mjög
mikið.
Verkamannaflokkurinn fékk
meirihluta í Edinborg, höfuð-
borg Skotlands, í fyrsta skipti á
þessari öld. Fjórar stærstu borg-
ir Skotlands eru því núna undir
stjórn Verkamannaflokksins. í
Liverpool fékk Verkamanna-
flokkurinn 17 sæta meirihluta
en flokksdeild hans þár hefur
heitið að brjóta lög íhaldsstjórn-
arinnar um hámarksútgjöld.
Það er ekki ólíklegt að mikill
sigur róttæka arms Verka-
mannaflokksins í Liverpool
verði til þess að andstaða flokks-
ins við stjórn Margrétar Thatc-
hers harðni.
■ Margrét Thatcher lætur fylgistap flokks síns ekki aftra sér í
stjórnarstörfum. I gær kom hún í heimsókn til Parísar þar sem
Mitterrand, forseti Frakklands, tók
á móti henni. Þau munu ræða
fjárhagsvanda Efnahagsbandalagsins.
Stmamynd- Polfoto
viiuui
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
hvaða skilmálum sem er. Þá
verði heldur barizt áfram.
Hann lofar að áfram verði
haldið skiptingu stórjarða.
Bæði yfirmenn hersins og
stórjarðaeigendur hafa horn í
síðu Duarte. Þeir hafa einu
sinni áður hrakið hann frá
Skoðanakannanir eru hliðhollar Duarte
d’Aubuisson treystir á Reagan
Þær gætu jafnvel gert ástandið enn verra
■ Á MORGUN fer fram síð-
ari umferð forsetakosninganna
í E1 Salvador. Þá keppa tveir
þeirra, sem fengu flest atkvæði
í fyrri umferðinni, sem fór
fram 25. marz. Þá fékk enginn
frambjóðandi meirihluta at-
kvæða og varð því samkvæmt
stjórnarskránni að kjósa aftur
um þá tvo, sem voru atkvæða-
hæstir.
í fyrri umferðinni fengu þeir
Napoleon Duarte, frambjóð-
andi Kristilega flokksins, og
Roberto d’Aubuisson, fram-
bjóðandi Þjóðlega viðreisnar-
flokksins, flest atkvæði. Duar-
te fékk 43% greiddra atkvæða,
en d’Aubuisson 29%.
Það er milli þessara tveggja,
sem kosið verður á morgun.
Þriðji atkvæðahæsti fram-
bjóðandinn í kosningunum 25.
marz var Francisco Guerrero,
frambjóðandi Einingarflokks-
ins, sem er hinn gamli íhalds-
flokkur E1 Salvadors, en vill
nú telja sig miðflokk, sem
beitir sér fyrir þjóðarsátt, en
þó ekki við skæruliða.
Guerrero, sem nýtur mestra
vinsælda hjá Bandaríkja-"
mönnum og hernum í E1 Salva-
dor, fékk 19% atkvæða.
Talið var fyrst eftir fyrri
umferð kosninganna, að Gu-
errero kynni að snúast til fylgis
við d’Aubuisson og tryggja
kosningu hans. d’Aubuisson
hefur dregið úr ýmsum öfga-
fyllstu yfirlýsingum sínum og
var það talið gert til að vinna
hylli Guerreros.
Þetta hefur þó ekki borið
tilætlaðan árangur, enda munu
Bandaríkjamenn hafa lagzt
eindregið gegn því. Guerrero
hefur nú lýst yfir því, að hann
sé hlutlaus og gefi flokki sínum
engin fyrirmæli, enda myndu
fylgismenn hans ekki fara neitt
eftir því. Þeir vilji hafa frjálst
val
Eftir þessa yfirlýsingu Gu-
erreros hefur d’Aubuisson
snúið sér til ýmissa leiðtoga
flokksins og boðið þeim sæti í
stjórn sinni. Hann gefur nú til
kynna, að hann muni hljóta
stuðning meginþorra fylgis-
manna flokksins.
Duarte ber á móti þessu og
heldur því fram, að Guerrero
muni kjósa sig. Guerrero hefur
ekki borið á móti því.
Skoðanakannanir benda til
þess, að Duarte muni bera
sigur úr býtum, en varlega ber
þó að treysta því.
ÁSTÆÐAN er meðal ann-
ars sú, að d’Aubuisson er
slunginn áróðursmaður og
kann að tala eins og áheyrend-
ur hans vilja helzt heyra. Hann
kom fram á sjónarsviðið í
þingkosningunum 1982 og
varð flokkur hans óvænt annar
stærsti flokkurinn. Þegar á
þing kom, tókst honum að
tryggja sér sæti þingforseta
með því að semja við aðra
hasgri sinnaða flokka.
I þingkosningunum 1982
boðaði d’Aubuisson mjög öfga-
fulla hægri stefnu. Hann lofaði
þá að uppræta skæruhernað í
landinu á þremur mánuðum.
Hann hefur heldur dregið úr
þessum yfirlýsingum nú, eink-
völdum eða eftir að hann sigr-
aði í forsetakosningum 1972.
Herinn kom þá í veg fyrir, að
hann gæti tekið við forseta-
embættinu. Hann fór þá í
útlegð, en var kvaddur heim
aftur 1980 af blandaðri stjórn
hershöfðingja og borgara og
gegndi forsetaembættinu
næstu tvö árin.
MARGIR fréttaskýrendur
telja, að herinn muni steypa
D.uarte af stóli, ef hann verður
kosinn forseti og reyni að fram-
kvæma loforð st'n.
Að dómi þeirra flestra munu
kosningarnar litlu breyta.
Sama uppreisnarástandið
muni haldast áfram. Kosning-
arnar séu fy rst og fremst haldn-
ar til að fullnægja þeirri ósk-
hyggju Bandaríkjastjórnar að
geta haldið því fram, að lýð-
ræði sé ríkjandi í E1 Salvador.
Skæruliðar segja, að það sé
vitað fyrirfram, hver verði sig-
urvegarinn í kosningunum
hvernig sem þær fara. Það
verði Reagan. Hann muni
jafnt geta stjórnað d’Aubuis-
son og Duarte. Þeir tala litlu
betur um Duarte en d’Aubuis-
son. Sá fyrmefndi sé sorgleg
fígúra, sem allir hlægi að og
enginn taki lengur mark á.
Hinn síðarnefndi sé fasisti,
sem sækist eftir að þjóna lund
sinni í skjóli Reagans.
Því miður bendir flest til
þess, að forsetakosningarnar í
E1 Salvador verði til lítilla
bóta, eins og allt er í pottinn
búið þar. Þær geti jafnvel-gert
illt verra, ef d’Aubuisson
sigrar.
■ Guerrero getur orðið lóðið á metaskálunum
um fyrir síðari umferð kosn-
inganna.
d’Aubuisson er yfirleitt tal-
inn aðalmaðurinn bak við
dauðasveitirnar svonefndu,
þó að hann beri á móti því.
Dauðasveitirnar eru sagðar
hafa tekið þúsundir manna af
lífi. Bandaríkjastjórn hefur
hvað eftir annað krafizt þess af
stjórn E1 Salvadors og yfir-
mönnum hersins þar, að dauða-
sveitirnar yrðu upprættar.
Ekkert hefur þó gerzt í þeim
efnum.
Svo mjög hefur d’Aubuisson
verið bendlaður við dauða-
sveitirnar, að Bandaríkjamenn
neituðu honum um vegabréfs-
áritun, þegar hann ætlaði að
fara til Bandaríkjanna á síðast-
liðnu hausti. Þetta notar d’Au-
buisson mjög í kosningabarátt-
unni sem sönnun þess, að hann
láfi ekki Bandaríkjamenn
stjórna sér. Hann húðskamm-
ar Bandaríkjamenn, að Reag-
an undanskildum. Hann segist
biðja til guðs um að Reagan
verði endurkosinn. Hann seg-
ist geta haft samvinnu við
hann.
d’Aubuisson gerir mjög lítið
úr andstæðingi sínum, kallar
hann ýmist vesaling eða
kommúnista.
Duarte svarar með því að
kalla d’Aubuisson fasisia og
kennir hann óspart við dauða-
sveitirnar. Duarte segist muni
bjóða vinstri mönnum sættir,
en hann muni ekki ganga að