NT - 15.05.1984, Qupperneq 5
Þriðjudagur 15. maí 1984 5
■ Frá slysstað við Eiðistorg. Örin sýnir að pilturinn flaug milli ljósastaursins og biðskyldumerkisins
eftir áreksturinn. Eins og sést á myndinni er aðeins um 2ja metra bil milli stauranna.
NT-mynd Sverrir
■ Það nálgaðist kraftaverk hvað pilturinn slapp vel frá slysinu, því ekki mátti miklu muna að hann
fengi harkalegri lendingu.
NT-mynd Sverrir
„Hann er greinilega ekki feigur“
- Flaug 10 metra af skellinöðrunni, milli tveggja staura og hafnaði á símaviðgerðartjaldi
■ „Hann hefur greinilega ekki
verið feigur“ sagði Sæmundur
Pálsson lögreglumaður á Sel-
tjarnarnesi um 15 ára gamlan
pilt sem slapp með lærbrot eftir
að hafa flogið af skellinöðru um
10 metra vegalengd, milli Ijósa-
staurs og umferðarmerkis, og
lent ofan á símaviðgerðartjaldi
sem menn höfðu yflrgefið 5
mínútum áður.
Pilturinn lenti í árekstri við
bíl á mótum Eiðsgranda og
Eiðistorgs á laugardag. Öku-
tækin komu úr gagnstæðum átt-
um og ökumaður bílsins, sem
sveigði í veg fyrir piltinn á
skellinöðrunni, varð piltsins
aldrei var fyrr en áreksturinn
varð. Við áreksturinn tókst pilt-
urinn á loft en slapp eins og
áður sagði við bæði staurinn og
merkið og lenti tiltölulega
mjúkri lendingu á tjaldinu.
Pilturinn var með öryggis-
hjálm og taldi Sæmundvr Páls-
son að það hefði bjargað honum
frá alvarlegri meiðslumþar sem
höfuð hans hefði líklega rekist í
súlurnar sem báru tjaldið uppi.
Pilturinn gekkst undir aðgerð
vegna lærbrotsins á laugardags-
kvöld en líðan hans var góð eftir
atvikum í gær.
■ Bflarnir voru báðir mikið skemmdir eftir áreksturinn á gatnamótum Háaleitisbraut-
ar og Miklubrautar aðfaranótt laugardags. NT-myndir Sverrir
Ekið yfir á gulu blikkandi Ijósi:
Far|>egi mjög illa
skorinn í andliti
■ Tvennt var flutt á slysadeild eftir Áreksturinn varð með þeim hætti að
harðan árekstur tveggja bíla á gatna- Citroenbíl var ekið eftir Háaleitisbraut,
mótum Miklubrautar og Háleitisbrautar þvert yfir Miklubrautina, í veg fyrir
aðfaranótt laugardagsins. Kona sem var annan bíl sem ók vestur Miklubraut. Gul
farþegi í öðrum bílnum reynist illa skorin blikkljós loguðu við gatnamótin.
í andliti.
Eldur á helsta útivistarsvæði
Norðfirðinga:
Tókst að koma í veg
fyrir náttúruspjöll
■ Eldur kom upp í svokölluðum
Kirkjuhólsteig í Norðfjarðarsveit, um 10
kílómetra frá Neskaupstað, á sunnudag.
Eldsins varð vart um sjöleytið og er að
var komið var auðséð að um var að ræða
eld af mannavöldum.
Fólk sem átti leið um dreif að og tókst
því að slökkva eldinn á tiltölulega
skömmum tíma. Talið er að það hafi
bjargað miklu hve hægur vindur var, en
nóg eldsneyti var allt í kring þannig að
ekki hefði þurft mikið til að breiða eldinn
út.
Kirkjubólsteigur er eitt helsta útivistar-
svæði Norðfírðinga og sækja þeir þangað
mikið á sumrin. Þar er stórt skógi og
kjarrivaxið svæði sem sannarlega var í
stórhættu.
■ Hálfbrunnar spýtur voru á víð og
dreif sem benti til þess að eldurinn hefði
kviknað af mannavöldum.
NT-mynd Svanfríður
Hljómleikar
Heiðrum Hauk Morthens
á 40 ára söngafmæli í Háskólabíói
fimmtudaginn 17. maí kl. 23.00.
Fram koma:
1. Ha ukur Morthens
2. Big Band undir stjórn Paul
Gotske
3. Lúðrasveit Laugarnesskóla.
4. Barnakór Fellaskóla
\5. Sigríður Ella Magnúsdóttir og
Haukur
I 6. Bubbi Morthens
7. Lögreglukórinn
8. Tvíleikur: Hrönn Geirlaugs
dóttir, fiðla, Guðni Guð-
mundsson, píanó.
Kynnir: 9. Eyþór Porláksson
Jónas Jónasson 10. The Mistake, dans.
11. Björn Thoroddsen, jassgítar
sóló.
Melodíur minmnganna
með Hauk sextugum í
Háskólabíói fimmtud. 17. maíkl. 23.00.
Haukur aldrei betri
Miðaverð kr. 300