NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 16.08.1984, Qupperneq 1

NT - 16.08.1984, Qupperneq 1
Verkfall hjá BSRB i byrjun október? ■ Allar líkur benda nú til þess að opinberir starfsmenn fari í verkfall á tímabilinu 2. til 10. október. í dag kl. 4 koma stjórn og samninga- nefnd BSRB saman til fund- ar að afloknum sáttafundi BSRB og ríkisins þar sem 10 menn frá hvorum hittast. Fari svo, eins og allar líkur benda tií, að engin jákvæð viðbrögð komi frá ríkinu. við kröfugerð bandalagsins, sem er um 30% kauphækk- un, mun samninganefnd ákveða dagsetningu sameig- inlegs fundar stjórnar- og samninganefndar bandalags- ins sem mun taka ákvörðun um verkfallsboðun. Líklegt er að BSRB boði til verkfalls í fyrstu viku september. Verkfall kæmi þá til framkvæmda í fyrstu viku október. Verkfall er boðað með hálfs mánaðar fyrirvara, en sáttasemjara ber að framlengja frestinn um hálfan mánuð og leggja fram sáttatillögu sent fer í allsherjaratkvæðagreiðslu. Fjármálaráðherra þarf einn- ig að samþykkja eða fella sáttatillögu. Forysta BSRB tekur því enga áhættu með verkfallsboðuninni, þar sem félagsmenn sjálfir taka hina endanlegu ákvörðun. Ástæðan fyrir því að BSRB menn hinkra fram yfir mánaðamótin er m.a. sú að þeir óttast að fjármálaráð- herra beiti sér fyrir bráða- birgðalögum um stöðvun kaupgreiðslna, en fastráðnir ríkisstarfsmenn fá laun sín greidd fyrirfram. Sjálfsbjörg Akureyri: Hótar lokun ■ Sjálfsbjörgá Akureyri hefur skrifað félagsmála- ráðuneytinu bréf þar sem farið er fram á að hið opinbera taki þátt í halla- rekstri endurhæfinga - stöðvar á síðasta ári ella verði stöðinni lokað á næstunni. Til þessa hafa endurhæfingastöðvar fengið tvo þriðju af halla í rekstri greidda úr vasa hins opinbera. Á síðustu áramótum var lögum um þessa hluti breytt og fékk endurhæfingastöðin því enga fjárveitingu á liðnu ári. „Það verður ekkert ann- að að gera,“ sagði Valdi- mar Pétursson fram- kvæmdastjóri stöðvarinn- ar þegar NT innti hann eftir hvort af lokun yrði en skuldir eru nú vel á aðra milljón. Aðspurður um ástæðu hallarekstursins sagðist Valdimar álíta að meðferðargreiðsla sem ákveðin er af tryggingar- stofnun væri alltof lág. „Þetta er alveg sama hjá okkur og Háaleitisstöð Styrktarfélagsins,“ sagði Valdimar. Sjá umfjöllun um vanda Háaleitisstöðvarinnar á baksíðu. Glæsilegt blaðsöluhappdrætti NT: SexblaðberarNTeru á leið til Stuttgart - sjá nánar frétt og viðtöl á bls. 4 Nýir hlífðargallar slökkviliðsins: Fyrstu notkun bar óvænt uppá ■ Fyrstu notkun á nýjum hlífðargöllum slökkviliðs Reykjavíkur bar óvænt uppá. Gallarnir sem ætlaðir eru til að verjast geislavirkni og hættu- legum efnum voru ennþá ósnert- ir þegar slökkviliðið var kall- að að efnafræðistofu Háskól- ans. Par hafði þá farið niður nokkurt magn af efninu acroline en það getur haft slæm áhrif á húð. Annar gallanna tveggja sem slökkviliðið fékk nýlega í vörslu sína var því tekinn fram og brunaverðir fundu brátt út hvernig nota ætti gripinn. „Þetta hefði tekið miklu lengri tíma og hugsanlega hefði einhver brunavörður skaðast á þessu ef við hefðum ekki haft gallann,“ sagði Hrólfur Jónsson varaslökkvistjóri í samtali við NT í gær. Aðspurður um notk- un gallanna sagði Hrólfur að öll notkun eiturefna og geislavirkra efna hefði stóraukist á undanföm- um árum. Þá gætu hlífðargallamir komið á miklum framförum við hreinsun á efnum sem verða til við bruna á gerviefnum. Gufa frá plasti og öðrum hliðstæðum efnum sest á ýmsa hluti og myndar þar skaðleg efni sem tæra upp málma og steypu. Til þess að hreinsa þau efni burt þyrfti enn önnur sterk efni sem ekki væri hægt að meðhöndla nema í hlífðargalla af þeirri tegund sem nú hafa verið keypt- ir. Gallarnir sem keyptir voru eru tveir og eru í eigu Álmanna- varnarnefndar Reykjavíkur en verða notaðir af brunavörðum. Verð þeirra hvors um sig var í kringum 60 þúsund krónur. Áætlað er að á hausti komanda verði sérstök þjálfun slökkvi- liðsmanna í meðferð hættulegra efna, viðbrögðum við mengun- arslysum og meðferð hlífðar- gallanna. /■ Hér er Bergsveinn Alfonsson kominn í nýja hlífðargall- ann en það var einmitt hann sem vann að hreinsuninni í Háskólanum nú í vikunni. Gallinn er tvöfaldur og halda þrýstikútarnir sem tengdir eru reykköfunargrímunni yfir- \þrýstingi á milli laganna. Því erþað að þó gat komi á ytra borðið kemur þrýstingurinn í veg fyrir að eiturgufur komist inn á milli laga. NT mvndir Svcmr Vésteinn Hafsteinsson féll á lyfjaprófi á ÓL: ■ Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþróttamaður hefur verið dæmdur í 18 mánaða keppn- isbann fyrir að taka inn lyf sem eru á bannlista Alþjóða Ólympíunefndarinnar. Vé- steinn fór í tvö lyfjapróf, svo- nefnd A- og B-próf eftir keppni á ÓL, og voru niður- stöður í báðum tilfellum já- kvæðar. í yfirlýsingu frá Vésteini Hafsteinssyni segir: „Fyrir fimm mánuðum tók ég lyf samkvæmt læknisráði vegna meiðsla í öxlum. Læknir minn tjáði mér, að það væri í lagi að nota þetta lyf, það myndi ekki koma fram á lyfjaprófi og væri þar að auki notað í læknis- fræðilegum tilgangi til að flýta fyrir uppbyggingu bandvefja. Mistök mín eru fólgin í því, að kanna ekki til fulinustu hvort þessar upplýsingar voru réttar varðandi verkun lyfj- anna m.ö.o. að þetta ætti ekki að koma fram á lyfjaprófi Ólympíuleikanna. Að öðru leyti get ég ekki sagt neitt annað en mér þykir þetta mjög miður. Ég vil biðj- ast afsökunar ef það er hægt. Ég vil biðja foreldra mína og fjölskyldu afsökunar/ vini mína og kunningja, Iþrótta- samband fslands, Frjáls- íþróttasamband íslands, Ól- ympíunefndina og íslensku þjóðina, sem styrkti mig til þátttöku á Ólympíuleikunum. Ég mun vitaskuld taka út mína refsingu en engu að síður halda ótrauður áfram og vona að mistök mín verði öðrum til aðvörunar.1' Er Island íhættu sem ferða- mannaland? NT-úttekt á bls. 6-7

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.