NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 16.08.1984, Qupperneq 3

NT - 16.08.1984, Qupperneq 3
 msr Fimmtudagur 16. ágúst 1984 3 yj Fwr^áÉMmwr Nýir samningar um 6-7% kauphækkun: Aðeins tímaspursmál hvenær samið verður ■ Það er aðeins tímaspursmál hvenær samið verður á þessum nótum var álit nokkurra forystu- manna úr verkalýðshreyfing- unni aðspurðir um hvort samn- ingar sem fælu í sér 6-7% kaup- hækkun, launaflokkaröðuno.fl. væru í burðarliðnum. Menn hafa rætt þetta í ASI og það er aðeins spursmál í hvaða form- lega farveg þetta rennur, en aðildarfélögin semja nú hvert fyrir sig. Pað sem um er rætt er að framlengja núgildandi samning fram í apríl. I stað þriggja % hækkunar 1. september komi 6-7% hækkun og leiðrétting á bónusgreiðslum og áfanga- hækkun 1. jan. Einnig yrði gert samkomulag um að setja launa- flokkaröðun og önnur stór mál í sameiginlega nefnd aðila með það markmið að niðurstaða liggi fyrir í apríl. Heimsmeistaramót unglinga í skák: Karl í þriðja sæti Guðmundur og Margeir ofarlega í Gausdal ■ Karl Porsteins er í þriðja til fjórða sæti á heimsmeist- aramóti unglinga, sem nú stendur yfir í Finnlandi, ásamt Sovétmanninum Igor- sov, en þessir tveir gerðu jafntefli sín í milli í gær. Báðir tefldu mjög varlega og lögðu ekkert undir. Karl og Igorsov hafa 7 'A vinning, en efstir og jafnir eru Daninn Curt Hansen og Sovétmað- urinn Andreev með 8 lá vinning. Tvær umferðir eru eftir og er því ljóst að heims- meistaratitillinn verður tor- sóttur fyrir Karl, þrátt fyrir mjög góða frammistöðu. I Gausdal í Noregi tefldi Guðmundur Sigurjónsson í gær við Lars Karlsson frá Svíþjóð, sem hefur leitt mótið, og gerðu þeir jafn- tefli. Margeir Pétursson vann Piu Cramling. Svíinn Ernst er í efsta sæti fyrir síðustu umferðina með 6 'A vinning úr 8 umferðum og hefur konjið mjög á óvart. í öðru til fjórða sæti eru stórmeist- ararnir Guðmundur, Sax og Jansa með 5 'A vinning og fleiri eiga möguleika á að komast í þann hóp þegar biðskákir hafa verið tefldar. Margeir hefur 5 vinninga og eiga þeir félagar því báðir möguleika á verðlaunasæt- um og Guðmundur fræðileg- an möguleika á sigri vinni hann Ernst í síðustu umferð. ■ Frá setningu málþings um skoska heimspekinginn Hume á Hótel Loftleiðum í gær. Á litlu myndinni er Mikael M. Karlsson aðalskipuleggjandi þingsins í ræðustól. NT-myndir: Róbert Hume í Reykjavík: Málþing hófst í gær ■ Málþing um skoska heirn- spekinginn David Hume hófst á Hótel Loftleiðum í gær og stendur það til 20. ágúst nk. Heiðursgestur þingsins er Páll S. Árdal prófessor við Queens- háskóla í Kanada, en milli 70 og 80 erlendir fulltrúar sækja þing- ið auk íslenskra fræðimanna og áhugafólks um heimspeki. Mikael M. Karlsson dósent í heimspeki við Háskóla íslands setti þingið, sem er það þrett- ánda í röðinni af málþingum Hume-félagsins, og kvaðst hann vonast til að enginn gerðist hjátrúarfullur tölunnar vegna. Síðan tók David Fate Norton formaður Hume-félagsins til máls og þakkaði undirbúnings- nefndinni á íslandi fyrir vel unnin störf og gerði grein fyrir því hvers vegna málþing um Hume væri haldið á íslandi. Kvað hann rit Hume um pólitísk málefni tengjast íslandi, þar sem hann hefði rætt um hið fullkomna lýðræði, hvort sem Hume hefði gert sér grein fyrir því eða ekki. Annars kom fram hjá Norton að þingið væri að þessu sinni haldið á íslandi til heiðurs Páli S. Árdal, en hann hefur ritað fjölda verka um Hume. Páll hélt síðan upphafserindið á þinginu í gær og talaði um siðferðilega frumspeki Hume. Auk Páls niunu íslensku heirn- spekingarnir Eyjólfur Kjalar Emilson, Porsteinn Gylfason og Kristján Guðmundsson halda fyrirlestra á málþinginu. Pátttaka á málþinginu er öllum heimil og innritunargjald er 150 kr. fyrir meðlimi í Félagi áhugamanna um heimspeki og er það öllurn opið. Árgjald er 300 kr. Annars er þátttökugjald 1200 kr. og þcss ber að geta að allir íyrirlestrar eru haldnir á ensku. Aftur stopp á trillurnar ■ í gærdag gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð sem bannar þorskveiðar báta undir 10 brúttólestum frá 25. ágúst til 31. sama mánaðar. Segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins að þetta sé gert vegna þess að sýnt sé að afli smábáta fari nokkuð yfir viðmiðunarmörk. Sams konar bann var gefið út í nokkra daga um verslunarmanna- helgina. Leitaði á stúlkubarn ■ Liðlega tvítugur Húsvíkingur hefur ver- ið sendur til geðrannsóknar í Reykjavík eftir að hafa leitað á 10 ára vangefna stúlku á heimili sínu. Að sögn sýslufulltrúa þar nyrðra var ekki um nauðgun eða kynmök að ræða en „afbrigðileg kynferðisafskipti", eins og fulltrúinn orðaði það. Dýrasti fyrirlestur á Islandi! Boðskapur Fried- mans kost- ar 1200 krónur ■ Pað verður ekki gefinn aðgangur að boðskap prófessors Friedmans þegar hann kemur til Reykjavíkur urn mánaðamótin. Seldir verða aðgöngumiðar að fyrirlestri Friedmans í Súlnasal Hótel Sögu þann 1. september fyrir litlar 1200 krónur. Er þetta án efa dýrasti fyrirlestur á íslandi til þessa. Geta þeir sem hafa áhuga og peninga snúið sér til Bókaverslunar Sigfúsar Eymundsson- ar. Vonbrigði í Safari ■ Hljómsveitirnar Vonbrigði, Svart-hvít- ur draumur og Slagverkur munu spila á hljómleikum í Safari í kvöld. Grammið og Vonbrigði standa að þessum tónleikum, en Vonbrigði hyggur nú á plötuupptöku.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.