NT


NT - 16.08.1984, Side 14

NT - 16.08.1984, Side 14
Fimmtudagur 16. ágúst 1984 14 Rás 2, kl. 16. Jóreykur að vestan Einar Gunnar Einarsson lítur á bandaríska kántrílistann ■ Jóreykurað vestan,country & western-þáttur Rásar 2 er á dagskrá klukkan 4 í dag. Það er Einar Gunnar Einarsson sem sér um þáttinn og hann var beðinn um að skýra frá efni hans. „Ég er nú ekki svo mikið byrjaður að raða saman þættin- um, en ég reikna með að verða með efni sem nú er ofarlega á ameríska kántrílist- anum.“ Hvað er þar efst á baugi? „Það er Don Williams sem er í efsta sæti. Síðan eru það The Judds, sem eru mæðgur, og The Kendalls sem einnig eru ættmenni. Það er töluvert um fjölskyldufólk í kántrí- hljómsveitum og tónlistin gengur jafnvel í ættir. Önnur nöfn sem sjá má á listanum núna eru þekkt og gömul, Waylon Jennings, Kenny Ro- gers og Dolly Parton. Það er alltaf eitthvað að gerast á þessum lista, en maður sér að sömu frægu nöfnin skipa 80% af sætunum á listanum. ■ Lionel Ritchie: Konungur grátballöðumnar nr. 41 á banda- ríska kántrílistanum! Ég er nokkuð hrifinn af Judds-mæðgunum. Þær eru al- veg nýbyrjaðar, hafa gefið út 6 laga mini-LP, og tvö af lögun- um á þeirri plötu hafa komist inn á topp 20, þar af annað í efsta sætið. Þetta er nokkuð gott hjá fólki sem er að byrja í þessari tónlist. Þær spila líka og leika ekta og upprunalega kántrítónlist, en nota ekki flóknar útsetningar og popp- trix til að ná vinsældum. Það er nokkuð merkilegt að , í 41. sætinu er Lionel Ritchie, sem er mjög þekktur úr popp- inu. Hann er með rólega ball- öðu með kántrí-undirtón.“ Er ekki lítið um negra í kántrítónlist? „Jú, það er nú frekar, þetta hefur verið kölluð tónlist hvíta mannsins. En Pointers-systur komust í 1. sætið fyrir nokkr- um árum, og Charlie Pride er þekktur negri í kántrítónlist. Það hafa ýmsir slæðst þarna inn, þótt þeir passi ekki alveg í stereótýpuna af kántrísöngv- ara.“ Tónlistar- krossgátan ■ Tónlistarkrossgáta Jóns Gröndal birtist hér í dag til þess að tryggja að allir þeir sem kaupa NT og fá blaðið seint geti setið við útvarpið á mánudag og ráðið gátuna. Þetta er Tóniistarkrossgáta nr. 8, og lausnir sendist til Ríkisútvarpsins Rás 2, Hvassaleiti 60,108 Reykja- vík, merkt Tónlistarkross- gátan. Rás 2, kl. 15. Nú er lag Gunnar Salvarsson með djarflegan kokteil ■ í dag er á dagksrá Rásar 2 þátturinn „Nú er lag“. Það er Gunnar Salvarsson, þekktur af poppskrifum sínum í DV og umsjón með þættinum Listapopp sem sér um þennan þátt. Til að fá að vita hvað yrði í þætti- num í dag var hringt í manninn. „Ég er búinn að vera með þrjá þætti undir þessu nafni. Ég hleyp í skarðið vegna sumarfría á Rásinni, en þessi þáttur á annars að vera á dagskrá annan hvern miðvikudag. Þetta er mjög blandaður þáttur, það er farið vítt og breitt um tónlistarsöguna, allt að 60 ár aftur í tímann. Ég spila gömul dægurlög, jass, og allt fram í nýja rokkið. Þetta er tilraun til að blanda saman góðri tón- list frá ólíkum tímum.“ Hvað á að spila í dag? „Ég tek fyrir eitt lag í hverjum þætti, venjulega frekar gamalt lag, og leik það í þremur ólíkúm út- setningum. Lagið sem ég hef valið fyrir þáttinn í dag er Gloomy Sunday. Þetta er ungverskt lag, samið árið 1933. Það hefur á tveimur síðustu árum heyrst í flutn- ingi tveggja breskra hljóm- sveita, Swans Way og Ass- ociates. Ég spila þær útgaf- ur og síðan útgáfu Bille Hollyday á laginu. Ég spila síðan lag með Fats Waller, og annað með Bill Coleman. Síðan spila ég'af þessu nýrra efni með Any Trouble og Thomas Dolby. Af svona milli gömlu efni spila ég lög með Joan Armatrading, Com- modores og Blondie. Ég geng semsagt út frá því að blanda saman ólík- um tímum í þættinum, og margt af þessu efni er ■ Sérvitri prófessorinn Thomas Dolby verður spilaður í þættinum hjá Gunnari Salvarssyni í dag. jasskennt.“ Þetta blandast ekkert illa? „Það er enginn vandi að blanda þannig að úr þessu verði óskapnaður, en með tengingum og réttri niður- röðun á þetta að takast. Það er ansi mikið gert af því á Rásinni að taka fyrir ákveðið form eða stefnu í hverjum þætti, en minn þáttur er tilraun í aðra átt. Það kemur líka til að mikið af þessum ungu tónlistar- mönnum er að fikta við gömul lög, og það er margt í gömlum lögum sem á fullt erindi til unga fólksins. Dægurlagatónlistin byrjaði ekki með Bill Haley.“ i Fimmtudagur 16. ágúst 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. í bítið. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð Bjarni Sigurðsson talar 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Eins og ég væri ekki til“ eftir Kerstin Johansson Sigurður Helgason les þýðingu sína (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Tvær smásögur a. „Tarot" eftir Jón Pál. Viðar Eggertsson les. b. „Þegar amma deyr“ eftir Guð- rúnu Jacobsen. Höfundur les. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Við bfðum“ eftir J.M. Coutz- ee 14.30 Afrívaktinni 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Siðdegistónleikar a. Chanson Anglaise eftir Emanuel Adriaens- en. Narciso Yepes leikur ágítar. b. Kvintett nr. 5 eftir Victor Edwald. The Mount Royal blásarakvintett- inn leikur. c. Næturljóð eftir Claude Debussy i útsetningu Maurice Ravel. Anne Shasby og Richard McMahon leika á tvö pianó. 17.00 Fréttir á ensku 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál Eirikur Rögnvalds- son talar. 19.50 Við stokkinn Sljórnandi: Gunnvör Braga. 20.00 Sagan: „Júlia og úlfarnir" eftir Jean Graighead George Geirlaug Þorvaldsdóttir les þýö- ingu Ragnars Þorsteinssonar (4). 20.30 Undir yfirborðið Þáttur um mál kynjanna og viðhorfiö til karl- manna og stöðu þeirra, gerður í tengslum við dönskukennslu i Há- skóla íslands af Bjarna Þorsteins- syni, Ríkharði Hördal og Valgerði Kristjánsson undir stjórn Lisu Schmalensee lektors. 21.30 Frá kammertónleikum Sin- fóniuhljómsveitar íslands i mars s.l. Páll P. Pálsson stj. a. Þættir kúr óperunni „Brottnámið úr kvenna- búrinu" eftir Mozart í útsetningu Johann Nepomuk Wendt. b. Svita úr „Túskildingsóperunni" eftir Kurt Weill. 22.15 Veðuriregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Fimmtudagsumræðan Stjórn- andi: Rafn Jónsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 16. ágúst 10.00-12.00 Morgunþáttur Fyrstu þrjátíu mínúturnar helgaðar ís- lenskri tónlist. Kynning á hljóm- sveit eða tónlistarmanni. Viðtöl ef svo ber undir. Ekki meira gefið upp. Stjórnendur: Jón Ólafsson og Sigurður Sverrisson. 14.00-15.00 Eftir tvö Létt dægurlög. Stjórnandi: Jón Axel Ólafsson. 15.00-16.00 Nú er lag. Gömul og ný úrvalslög aö hætti hússins. Stjórn- andi: Gunnar Salvarsson. 16.00-17.00 Jóreykur að vestan Lit- ið við á bás-2, þar sem fjósa- og hesthúsmaðurinn, Einar Gunhar Einarsson litur yfir farinn veg og fær helstu hetjur vestursins til að taka lagið. 17.00-18.00 Gullöldin - Lög frá 7. áratugnum Vinsæl lög frá árunum 1962 til 1974 = Bitlatimabilið. Stjórnendur: Bogi Ágústsson og Guðmundur Ingi Kristjánsson. Föstudagur 17. ágúst 19.35 Urnhverfis jörðina á áttatíu dögum. 15. Þýskur brúðumynda- flokkur. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. Sögumaður Tinna Gunn- laugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Augiýsingar og dagskrá. 20.35 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. 20.45 Skonrokk. Umsjónarmenn Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín Hjartardóttir. 21.05 Var 007 njósnaflug? Bresk fréttamynd. Fyrir einu ári grönduðu Sovétmenn kóreskri farþegaþotu með 269 manns innanborðs. I myndinni eru atburðir þessir raktir og reynt að varpa nýju Ijósi á þá. Þýðandi Einar Sigurðsson. 21.40 Kampútsea. Stutt bresk frétta- mynd. Þýðandi og þulur Einar Sigurðsson. 21.55 Kona utan af landi (La Prov- inciale) Frönsk-svissnesk bíó- mynd frá 1981. Leikstjóri Claude Goretta. Aðalhlutverk: Nathalie Baye, Angela Winkler, Bruno Ganz og Pierre Vernier. Ung kona fer til Parisar i atvinnuleit. Kynni hennar af borgarlifinu og borgar- búum valda henni ýmsum von- brigðum en hún eignast vinkonu sem reynir að kenna henni að semja sig að nýjum siðum. Þýð- andi Ragna Ragnars. 23.45 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.