NT - 16.08.1984, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 16. ágúst 1984 4
Glæsilegt blaðburðarhappdrætti NT:
Sex blaðberar á leið
til Stuttgart með NT
■ Nú hafa verið dregin út
nöfn vinningshafa í hinu glæsi-
lega blaðburðarhappdrætti NT.
Úr'hópi blaðburðar-og biaðsölu-
fólks hafa verið dregin út 6 nöfn
og mun hópurinn halda til Sviss
með Arnarflugi 2. september
n.k. og skoða sig þar um og
halda síðan til Stuttgart, þar
sem m.a. verður fylgst með leik
Stuttgartliðsins með Ásgeir Sig-
urvinssyni í broddi fylkingar
gegn Bayern Múnchen í þýsku
Bundeslígunni. Ásgeir mun einnig
verja miklum tíma með
hópnum, sýna honum borgina
og bjóða honum heim. Farar-
stjóri verður Ólafur Sigurvins-
son, bróðir Ásgeirs. NT ræddi
við tvo vinningshafa og væntan-
lega ferðalanga í gær.
Annarvinningurinn
ísumar
Hún er ekki lánlaus hún
Hrafnhildur Hreinsdóttir, sem
ber út NT og Þjóðviljann í
Breiðholtinu. Hún fór í sína
fyrstu utanlandsferð nú fyrr í
sumar og þá sem vinningshafi
í blaðburðarhappdrætti bjóð-
viljans. Brátt leggur hún land
undir fót á nýjan leik sem
vinningshafi í NT happdrætt-
inu.
„Ég fór í Þjóðviljaferðina í
júlí, við dvöldum í Danmörku
og ferðuðumst þar um, vorum
mest í Karlslunde en skrupp-
um til Kaupmannahafnar og
fórum þar í Tívolí og fleira,“
sagði Hrafnhildur. „En til Sviss
og Þýskalands hef ég aldrei
komið.“
Eins og að ofan greinir munu
ferðalangarnir horfa á knatt-
spyrnuleik í Stuttgart og við
spurðum Hrafnhildi hvort hún
hefði áhuga á knattspyrnu. Það
kom þá upp úr dúrnum að hún
keppir með ÍR í meistaraflokki
í kvennaknattspyrnu, þótt ung
sé að árum. „Það hefur gengið
upp og niður,“ sagði hún að-
spurð uni hvernig liðinu hefði
gengið í sumar. Hins vegar sagði-
ist hún ekki horfa mikið á
knattspyrnu og aðeins einu
sinni farið á völlinn.
Þröstur Hallgrímsson, frá
Akranesi er annar vinnings-
hafi. Hann hefur borið út NT
og Tímann í þrjú ár og líkar
vel. „Það verður gaman að
hitta Ásgeir Sigurvinsson, al-
veg stórglæsilegt," sagði
Þröstur. „Við förum á leikinn,
og ætli maður skoði ekki borg-
ina eitthvað."
Hrafnhildur Hreinsdóttir
NT-mynd: Ari
Þröstur sagði að hann hefði
ekki átt von á að vinna í happ-
drættinu, en svo hefði Elsa um-
boðsmaður á Akranesi komið
með góðu fréttirnar.
Þröstur fer í áttunda bekk í
haust. Hann fullvissaði
blaðamann um að Skagamenn
vinni bæði íslandsmótið og
bikarinn þetta árið, en sagðist
sjálfur ekki leika knattspyrnu,
heldur spila badminton.
Góða ferð krakkar.
■ Dregið í blaðbera- og blaðsöluhappdrætti NT. Frá vinstri
Haukur Haraldsson, markaðsstjóri NT, Kjartan Ásmundsson
dreifingarstjóri NT og Stefán Halldórsson upplýsingafulltrúi Arn-
arflugs, en vinningshafarnir munu fljúga með Arnarflugi undir
fararstjórn Ólafs Sigurvinssonar. NT-mynd: Svemr
Ólympíuhapp'
drættið:
Drætti
frestað
■ Drætti í Ólympíu-
happdrættinu hefur verið
frestað til 8. september
n.k. en þar eru m.a. 14
bílar í vinninga.
í frétt frá Ólympíu-
nefndinni segir að ástæða
frestunarinnar sé að
margir hafi ekki náð að
gera skil vegna sumar-
leyfa.
■ Þröstur Hallgrímsson n r-mjnd: Ámí
Fimmtudagur 16. ágúst 1984
m<
(Q
0>
(fí
X
0)
(D
3
. ■§■
0)
0»
(Q
0
Q)
(/)
Hh
Q)>
(/)
X
-i
tmmu
■4i
Q)
3
o.
0)
o
z
H
Q> C Z
2. *
(D (n
^(Q Sf
í N N)
5- oi
* S
Q)> r«
2-
O Q)
0) c
^ (/)
0)
8^3
SL O:
5- c
Q)> TT
jO Cs
3 fo
0) 0)
3 *
O 0)
-r. ■n
31
3
(D
O
TT
-V
0)
o
(Q
(D
s
(0
Með því
að fylla út
þennan
seðil getur
þú fengið
sent til þín
nýtt eintak
af NT hlað-
ið fréttum
á hverjum
degi.