NT - 23.11.1984, Page 4
Ólympíu-
mótið í skák:
Góður
sigur á
Argentínu
■ Þó úrslit 1. umferðar-
innar á Ólympíumótinu í
skák hafi ekki verið eins
og best var á kosið fyrir
íslerrsku karlasveitina,
jafntefli við Túnis, hafa
úrslit tveggja næstu um-
ferðanna bætt það upp og
gott betur. ísland vann
Honduras í annarri um-
ferð með fjórum vinning-
um gegn engum og lék svo
sama leik í þriðju umferð-
inni gegn Argentínu.
Argentína var hér áður
fyrr stórveldi í skák meðan
Najdorf og Pilnik voru
upp á sitt besta. En Arg-
entínumennirnir eru farn-
ir að dala og að auki eru
þeir ekki með sitt besta lið
á Ólympíumótinu, en
þrátt fyrir það var árangur
Islendinganna góður gegn
þeim.
Jóhann Hjartarson var
greinilega í vígahug en
hann er sá eini í íslensku
sveitinni senr hefur tapað
skák á mótinu til þessa.
Gegn Argentínu tefldi
Jóhann á öðru borði við
Gomez-Baillo og vann
liann mjög skemmtilega.
Skák þeirra fer hér á eftir.
Hvítt: Jóhann
Svart: Gomez-Baillo
Slavnesk vörn.
1. c4-c6
2. d4-d5
3. RI3-RÍ6
4. Rc3-dxc4
5. a4-Bf5
6. e3-e6
7. Bxc4-Bb4
8. O-ö-ö-ö
9. Rh4-Bg4
10. Í3-Rd5
11. fxg4-Dxh4
12. e4-Rb6
13. Bb3-c5
14. Ra2-Ba5
15. d5-exd5
16. exd5-R8-d7
17. Rc3-Re5
18. h3-Rb-d7
19. Re4-h6
20. Bc2-De7
21. g5-hxg5
22. d6-De8
23. Rxg5-g6
24. Ha3-Bd8
25. h4-f6
26. Rh3-Kg7
27. Rf4-f5
28. Dd5-Df7
29. Re6+-Kg8
30. Hg3-Bxh4
abcdefgh
(Það má segja að liðsflutn-
ingum sé lokið og nú er
aðeins eftir að reka enda-
hnútinn á sóknina. Það
gerir Jóhann skemnrtilega
í næsta leik:
31. Hxf5-Bf6
32. Hxf6-Dxf6
33. Rxf8+-Kxf8
34. Bh6+-Ke8
35. Dg8+-Rf8
36. Bxf8
Og svartur gafst upp
enda er nú orðið fátt til
Föstudagur 23. nóvember 1984 4
■ Erlingur Gíslason og Ketill Larsen í hlutverkum Skugga-Sveins og Ketils skræks, ■ Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverki heimasætunnar í Dal.
útilegumannanna ógurlegu.
Þjóðleik-
húsið
frumsýnir
Skugga-Svein:
■ „Þjóðin hefur fagnað
Skugga-Sveini sem andófí við
hvers konar kúgun. Þessi þjóð
okkar, sem hélt dauðahaldi í
hetjuímynd fornaldarinnar og
nærðist á sögum, ævintýrum og
Ijóðabálkum. Þjóðsögur, hetju-
sögur, rímur og rómantík héldu
lífínu í fólkinu.“
Með þessum orðum lýsir
Brynja Benediktsdóttir leik-
stjóri því, sem m.a. hefur höfð-
að svo sterkt til íslendinga í
leikriti Matthíasar Jochumsson-
ar, Skugga-Sveini, sem Þjóð-
leikhúsið frumsýnir í kvöld. En
Brynja talar um fleira:
„Skemmtileg þjóðlífsmynd
„Andóf við hvers
konar kúgun“
leiksins verður umgerð um vel
heppnaðan alþýðuleik," segir
hún.
Skugga-Sveinn hefur verið
sýndur oftar en önnur leikrit
íslensk og er það vitnisburður
urn erindi það, sem verkið á við
þjóðina. Skugga-Sveinn kom
fyrst á fjalirnar í Reykjavík árið
1862 og leikmyndin í þeirrj
sýningu var máluð af Sigurði
Guðmundssyni málara. Hlaut
sýningin afar góðar undirtektir
og naut vinsælda.
í frétt frá Þjóðleikhúsinu
segir, að Skugga-Sveinn sé hinn
dæmigerði alþýðugamanleikur,
persónusafnið skýrt mótað og
þar séu hið góða og illa. Ástin
gengur þó eins og rauður þráður
í gegnum allt verkið og samein-
ar og miðlar sátt í lokin.
Upphaflega gerð leikritsins
var kölluð Utilegumennirnir og
þykir hún mergjaðri en seinna
tíma leikgerðir, en góðir og
grandvarir menn fengu höfund-
inn til að slæva broddinn í
stykkinu.
„Helstu einkenni þessarar
leikgerðar okkar Sigurjóns (Jó-
hannssonar leikmyndateiknara.
Innsk. blnt.) eru annars vegar
að inn er skotið köllum úr Uti-
legumönnunum til að skerpa
andstæður, og hins vegar eru
lengri atburðalýsingar teknar úr'
textanum. en sviðsettar í
staðinn. í leikgerðinnierauðvit-
að engan texta að finna nema
frá hendi Matthíasar," segir
Brynja Benediktsdóttir.
Álls koma hátt í 30 leikarar
fram í sýningunni. Með helstu
hlutverk fara Erlingur Gíslason,
sem leikur Skugga-Svein, Ketill
Larsen, sem leikur Ketil skræk,
Borgar Garðarsson, sem leikur
Sigurð í Dal, Sigrún Edda
Björnsdóttir, sem leikur Ástu,
Örn Árnason sem leikur Harald
útilegupilt, Árni Tryggvason,
sem leikur Grasa-Guddu qg
Randver Þorláksson, sem leikur
Gvend smala.
Leikstjóri Skugga-Sveins er
sem fyrr segir Brynja Bene-
diktsdóttir. Sigurjón Jóhanns-
son gerir leikmynd og búninga
og Asmundur Karlsson sér um
lýsingu. Jón Ásgeirsson hefur
samið tónlistina fyrir þessa upp-
færslu.
Hávaðareglur flugvéla í Ameríku:
Formlega gengið frá
undanþágu Flugleiða
■ Flugleiðir hafa fengið form-
lega undanþágu bandarískra
stjórnvalda til áframhaldandi
rekstrar DC-8-63 flugvéla til
Bandaríkjaflugs, þrátt fyrir
ákvæði sérstakra hávaðareglna,
sem taka gildi þar um næstu
áramót, og er fyrst fíugfélaga til
að fá slíka undanþágu.
Bandarísk yfirvöld settu sex
skilyrði, sem umsækjendur
þyrftu að fullnægja til þess að
eiga kost á undanþágu frá háv-
aðatakmörkunum. Meðal
þeirra er að umsækjandi hafi
framvísað bindandi kaupsamn-
ingi um hljóðdeyfibúnað á flug-
vélarnar og að hann verði af-
greiddur fyrir árslok 1985. Flug-
leiðir hafa samið um kaup á
slíkum búnaði fyrir tvær af DC-8
vélum sínum við fyrirtækið Aei -
onautical Acoustic Technology
International og verður hann
afhentur í nóvember á næsta
ári. Jafnframt fengu Flugleiðir
kauprétt á búnaði fyrir tvær
slíkar flugvélar til viðbótar,
Verð hvers búnaðar er 2.5 mill-
jónir dollara.
Af öðrum skilyrðum banda-
rískra yfirvalda má nefna, að
umtalsvert fjárhagslegt tjón
komi til, fáist ekki undanþága
frá reglunum, og að um sé að
ræða þýðingarmikið áætlunar-
flug sem falli niður eða skerðist
verulega, komi undanþágan
ekki til.
Alls hafa 105 flugrekendur
sótt um undanþágu frá hávaða-
reglunum og um síðustu helgi
hafði umfjöllun verið lokið um
52, auk Flugleiðaumsóknarinn-
ar, og var þeim öllum hafnað.
Flugleiðir hafa réttindi til
áætlunarflugs til fimm borga í
Bandaríkjunum og fyrstu 10
mánuði ársins höfðu verið fluttir
221.506 farþegar á Norður-At-
lantshafsleiðinni, sem er 18.8%
meira en á sama tíma í fyrra.
Menntaskólinn við Hamrahlíð:
Fridarpípu-
faktorían
í Norður-
kjallaranum
- söngleikur um ástir o.fl.
■ Söngleikurinn Friðar-
pípufaktorían eftir hljóm-
sveitina Jóa á hakanum
verður frumsýndur í
Norðurkjallara Mennta-
skólans við Hamrahlíð
næstkomandi mánudags-
kvöld, 26. nóvember, kl.
21.33. Þetta verður jafn-
framt eina sýning leiksins.
Friðarpípufaktorían
fjallar um ástir og örlög,
baráttu góðs og ills, og
mannkynið.