NT - 23.11.1984, Side 5
Úr stefnuræðu:
Kjarasamningarn-
ir felldu gengið
- segir forsætisráðherra; skynsemi næst
■ í stefnuræðu forsætisráð-
herra, Steingríms Hermanns-
sonar, sem flutt var á alþingi í
gær, sagði hann meðal annars
að hann teldi orsök gengisfell-
ingarinnar vera nýgerða kjara-
samninga.
„Þegar að er gáð, féll gengið
þegar skrifað var undir kjara-
samningana. Framhaldið var
formsatriði.“ Steingrímur sagði
einnig að ef ekkert hefði verið
að gert, hefði rekstrarstöðvun
orðið í fjölmörgum fyrirtækjum
í sjávarútvegi, vegna hækkaðs
launakostnaðar og hækkaðs
fiskverðs.
Steingrímur rakti einnig hluta
þeirra efnahagsráðstafana sem
ríkisstjórnin hyggst grípa til.
Þar kom meðal annars fram að
opinber gjöld af olíu verða að
verulegu leyti felld niður og að
uppsafnaður söluskattur í sjáv-
arútvegi verður endurgreiddur
frá og með næstu áramótum.
Þá kom fram í ræðu forsætis-
ráðherra að útlánareglur Hús-
næðisstofnunnar verði endur-
skoðaðar þannig að auka megi
fyrirgreiðslu við þá sem byggja
íbúðir af hæfilegri stærð og
byggja eða kaupa íbúðir í fyrsta
sinn.
Einnig að reynt verði að
draga úr áhrifum verðhækkana
með auknum greiðslum al-
Pyntingar er
hægt að stöðva
■ 18. nóvember 1982
dóu Kaduna Katanga og
Jona Hamukwaya, nokkr-
um stundum eftir að þau
voru handtekin af hinum
sérstöku lögreglusveitum
Suður-Afríkustjórnar,
Koevoet (Kúbein) í Nami-
bíu.
Dómsrannsókn leiddi
ekki í Ijós hverjir bera
ábyrgð á dauða Hamukw-
aya, en fjórir Koevoet
menn, sem létu Katanga
hlaupa marga kílómetra
og börðu hann, voru síðar
ákærðir.
Suður-Afríka er í hópi
98 ríkja þar sem pyntingar
eru stundaðar eða látnar
viðgangst af stjórnvöld-
um, samkvæmt heimildum
Amnesty International.
Þeim ríkjum fer fjölgandi.
Nú stendur yfir alþjóðlegt
átak Amnesty Internati-
onal gegn pyntingum.
Hver og einn hlýtur að
spyrja sig hvort hann geti
lagt málefninu lið og hvað
ísland geti lagt af
mörkum.
íslandsdeild Amnesty
International hefur skrif-
stofu í Hafnarstræti 15.
Síminn er 16940.
mannatrygginga, lækkun tolla
á nauðsynjum og lækkun tekju-
skatts. Munu þessar ráðstafanir
verða kynntar nánar við af-
greiðslu fjárlaga.
Nýskópun atvinnuvega
Steingrímur sagði í ræðu
sinni, að lítið svigrúm væri til
aðgerða á næsta ári, vegna
mikilla erlendra skulda og lítils
hagvaxtar, en þó sagði hann
ríkisstjórnina telja nauðsynlegt
að stíga byrjunarskref til ný-
sköpunar í atvinnulífi.
„Einna mikilvægast er að
skapa jarðveg fyrir nýjar og
háþróaðar atvinnugreinar.
Staðreyndin er sú að við íslend-
ingar höfum dregist verulega
afturúr öðrum þjóðum í allri
nýsköpun í atvinnulífi,“ sagði
Steingrímur.
„Líftækniiðnaður, sem vaxið
hefur gífurlega í nágranna-
löndum okkar, er talinn álitleg
iðngrein hér á landi. Unnið er
að rannsóknum á því sviði, sem
geta fljótlega leitt til byrjunar-
framkvæmda."
Þá greindi Steingrímur frá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
setja á stofn, með sveitarfé-
lögum og öðrum sem áhuga
hafa, sérstakt þróunarfélag til
stuðnings nýjum atvinnugrein-
um.
Steingrímur sagði að náðst
hefði samkomulag við samtök
bænda um að draga úr kjöt- og
mjólkurframleiðslu þannig að
útflutningsbóta verði ekki þörf
að fimm árum liðnum.
Hann kvaðst telja ólíklegt að
auka mætti sjávarafla að marki,
„hins vegar ber að leggja mikla
áherslu á aukna tæknivæðingu,
einkum í vinnslunni, þannig að
verðmætasköpun fyrir hverja
vinnustund aukist verulega."
Meginmarkmið
Steingrímur sagði ríkisstjórn-
ina hafa eftirfarandi markmið
að leiðarljósi:
1. Að rekstrargrundvöllur at-
vinnuveganna verði tryggður og
atvinnuöryggi haldist.
2. Að lífskjör verði ekki lakari
á árinu 1985 en í ár, og hagur
þeirra sem lægstar tekjur hafa,
verði sérstaklega tryggður.
3. Að gæta ýtrasta aðhalds með
erlendum lántökum.
4. Aðúrverðbólguverðidregið
að nýju á seinni hluta ársins
1985.
Eins og áður segir telur for-
sætisráðherra eina meginorsök
gengisfellingarinnar vera ný-
gerðir kjarasamningar. „Ríður
því á miklu, að betur takist til
við næstu kjarasamninga en í
þeim síðustu. Þá verður að
leggja áherslu á að gera
skynsamlega samninga sem
sluðla að hjöðnun verðbólgu og
batnandi lífskjörum á traustum
grunni 1986 og árin næst á eftir.
Ríkisstjórnin mun bjóða aðilum
vinnumarkaðarins til viðræðna
um undirbúning slíkra samn-
inga.“
I ræðu Steingríms kom fram
að viðskiptahalli þjóðarinnar tr
talinn verða um 5% en stefnt var
að 1-2%. „Vaxandi viðskipta-
halli er nú eitt helsta cfnahags-
vandamálið."
Hins vegar munu erlendar
skuldir haldast nær óbreyttar,
sem hlutfall þjóðartekna.
Föstudagur 23. nóvember 1984 5
Verkfallssjóður BSRB:
Úthlutun
er lokið
■ Ráðstöfunarfé verk-
fallssjóðs BSRB er nú á
þrotum og ekki útlit fyrir
frekari greiðslur úr
sjóðnum. Uthlutað hefur
verið um 13 milljónum
króna til tæplega 2600 um-
sækjenda. í upphafi verk-
falls voru rúmar 5 milljón-
ir króna í sjóðnum, en 8
milljónir söfnuðust heima
og erlendis.
Stjórn verkfallssjóðs
BSRB vill koma því á
framfæri við þá umsækj-
endur, sem ekki hafa feng-
ið úrlausn mála sinna að
leita upplýsinga í síma
verkfallssjóðs 29212 kl.
13-17 fram til 27. nóvem-
ber.
Gallup-könnunin:
Flestir treysta
löggunni en sárafá-
ir trúa blöðunum
■ Lögreglan er efst á lista
hjá íslendingum sem spurðir
voru til hverra af níu „stofn-
unum" þjóðfélagsins þeir
beri mikið traust. Þrír aí
hverjum fjórum íslending-
um kváðust bera mjög mikið
eða nokkuð ntikið traust til
lögreglunnar, samkvæmt
niðurstöðum Gallup-
könnunar. Meðal annarra
Evrópuþjóða nýtur lögregl-
an jafnvel enn meira trausts
að undanskyldum þjóðum
S-Evrópu þar sem aðeins 2
af hverjum 3 eru sama sinnis.
Kirkjan kemur í öðru sæti
af traustverðum stofnunum,
að mati 71% þjóðarinnar,
þá menntakerfið og dómstól-
arnir með 68% traust. Vel
helmingur þjóðarinnar
kveðst bera traust til Alþing-
is, en tæplega helmingur til
opinberra stofnana og verka-
lýðsfélaganna. Ekki nema
þriðjungur íslendinga telur
stórfyrirtæki landsins eiga
traust skilið.
Hörmulegasta útreið fá
þó dagblöðin. Þótt íslend-
ingar séu með mestu dag-
blaðalesendum heims er það
aðeins einn af hverjum sex
sem segist bera mikið eða
nokkuð mikið traust til blað-
anna, þannig að fimm af
hverjum 6 hljóta að taka því
með fyrirvara sem í þeim
stendur. Það er um helmingi
lægra hlutfall en verst gerist
meðal annarra þjóða þar
sem 30-49% fólks segist
treysta blöðunum, sam-
kvæmt Gallup-könnunum.
■ Guðmunda les sögu fyrir börnin meðan þau borða
nestið.
■ Nýja húsnæðið í Snælandsskóla.
Nýjar kennslustofur í Snælandsskóla í Kópavogi:
Allar innréttingar
miðaðar við 6-9 ára
■ í nýja Snælandsskóla í kennt í bráðabirgðahúsnæði
Kópavogi voru nýlega teknar og þar var allt of þröngt fyrir
í notkunfjórarnýjarkennslu- nemendur. í þessum fjórum
stofur auk sameiginlegs rýmis kennslustofum eru um 120
í þriðja áfanga skólans. börn, fyrir hádegi eru þar 8
Reynir Guðsteinsson og 9 ára börn og eftir hádegi
skólastjóri sagði að aðstaða 6 og 7 ára. Allar innréttingar
til kennslu lagaðist að mun, eru miðaðar við þennan
þar sem áður hafði verið aldurshóp. í húsnæðinu þar
sem þessi börn voru áður, eru
nú tónmennta-, mynd-
mennta- og raungreinastofur
fyrir nemendur skólans.
í kjallara þriðja áfanga
Snælandsskóla verður einnig
íþróttasalur, sem væntanlega
verður tekinn í notkun í
september nk.
Sértilboð beint frá Hong Kong
Hundar sem labba og gelta, 6 gerðir.
Vélmenni m/sjónvarpi, músik og síma.
Bílabrautir rafm. kr. 990.-
Rafmagnsbílar-Bensínstöðvar-Smásjár.
Vélbyssur - Geimbyssur - Kúluspil.
Superman-föt - Spiderman-föt
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10. S. 14806.
LEIKFANGAHÚSIÐ
JL Húsinu v/Hringbr. s. 621040