NT - 23.11.1984, Page 8
IU
Föstudagur 23. nóvember 1984
8
\ A.
v.
Viðbrögð
Vöru-
markaö-
arins í
kartöflu
máflnu:
>((
„Frjálsar kartöflur
skemmast ekki síður
en hinar „einokuðu
- og það á ótrúlega skömmum tima
í_J
t
>**\
/
, s’iirAi ! <’>' il<t 'laliii'l®1'1
B ,.1’K‘r <ru ur ' |,;irf „mmrU-Ba <Ui ■"> '<>'•"
þcjíar han.. »l>"<'ílM".,1'jnn "tl ,,^.r
fram'aii ha„» háfrti ahr« luir "r'
hiilii <»>l»
■ I rjiilsar Uartiiflur" l>»rli>
sklsí <».til<«=' "" !K'.n
m'\sl„<i>ri> <» ..|>rirfl»>fl“r •
„mliroUuflar". ..ts„Ui»\»r
■> MÍHII hli'i'iill".'
.....i >m|iniui U1111 n*ml
»,„.11 lr;> <»„„>» k.„'»fl'"",.A
liwru hiii'
ióhiiiii kunna íu'
lilv. u'H"
uvlanii
„i l;uuHMina«^ann> cins
.cnj.i lictui ncu«'
I. ... L ;»| nCIU ■••••....... ■ i
1 , u ... i 11,i atuii anuai> in.u
,, m.iika^num <m P^ss 1
Ii jaUar ci •
<1 "'r kt'inn.n
kiulftlmuai vmi •'
uniii \ i'' t"iuni l'c-'ii
limnkii
liailcxli
It.illl kil"
n
Tilraun til ritskoðunar“
■ Neytendasíðunni hefur
horist stuðningsyflrlýsing frá
Neytendasamtökunum, vegna
umfjöllunar NT um skemindar
kartöflur í Vörumarkaðunum
seinni partinn í sumar og þó
einkum vegna viðbragða versl-
unarinnar.
Eins og lesendur NT rekur
vafalaust í minni til voru við-
brögð verslunarinnar við
skrifum NT ærið harkaleg.
Tildrög málsins voru þau að
Neytendasíðunni barst ábend-
ing um að Vörumarkaðurinn
við Ármúla seldi stórskemmd-
ar „frjálsar" kartöflur. Þessi
ábending barst hingað að
kvöldlagi, en þegar NT fór á
stúfana daginn eftir og athug-
aði ntálið voru þessar kartöflur
enn til staðar í versluninni og
var engin athugasemd gerð við
það af hálfu verslunarinnar
þegar við keyptum poka af
þeim, þótt nýjar og óskemmd-
ar kartöflur væru þá komnar í
verslunina.
Farið var með kartöflupok-
ann beint ti yfirmatsmanns
garðávaxta sem lýsti kartöfl-
urnar ónýtar. Frá þessu var
síðan að sjálfsögðu skýrt hér á
síðunni og þess vandlega gætt
að halla hvergi réttu máli.
Viðbrögð Vörumarkaðarins
við þessari umfjöllun voru þau
að hætta að selja NT í lausa-
sölu og hætta að auglýsa í
blaðinu. Vorublaðinusímleið-
is gefnar skorinorðar yfirlýs-
ingar um þetta hvort tveggja af
Vörumarkaðarins hálfu.
Stuðningsyfirlýsing
Neytenda-
samtakanna
í sambandi við þetta mál
hefur NT nú borist yfirlýsing
frá stjórn Neytendasamtak-
anna, þar sem viðbrögð Vöru-
markaðarins eru fordætnd og
sér stjórnin meira að segja
ástæðu til að nota um þau orð
eins og „tilruun til ritskoöunar"
og „fjármagnskúgun".
Yfirlýsingin er á þessa leið:
Fyrir skömmu gerði ný-
stofnuð neytendasíða eins dag-
blaðanna könnun á vörugæð-
um í verslun í Reykjavík.
Litlu síðar var fullyrt í sama
blaði, að verslunin hefði
brugðist við niðurstöðunum
með því að neita að selja
blaðið í lausasölu og hætta að
auglýsa í blaðinu.
Neytendasamtökunum er
kunnugt um að tilraunir selj-
enda til ritskoðunar af þessu
tagi hafa átt sér stað hérlendis.
Neytendasamtökin fordæma
harðlega slíka verslunarhætti
og benda á, að þegar frjáls
verslun tíðkast er eina von
neytenda til þess að hún skili
tilætluðum hagsbótum, ört
flæði upplýsinga um verð og
vörugæði. Par geta fjölmiðlar
sinnt veigamiklu hlutverki,
enda sé umfjöllun þeirra með
faglegum og sanngjörnum
hætti.
Allar tilraunir til fjármagns-
kúgunar gagnvart fjölmiðlum
eru jafnframt tilræði við hags-
muni neytenda.
Fjölgun í Neytendasamtökunum
■ Jóhannes
næsti formaður?
Gunnarsson;
■ ÞingNeytendasamtakanna
verður haldið á Ftótel Hofi í
Reykjavík á sunnudaginn.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður rætt um sam-
keppnishömlur, hringamynd-
anir og neytendavernd.
Núverandi formaður sam-
takanna, Jón Magnússon, hef-
ur ákveðið að draga sig í hlé,
en eftir því sem NT hefur
fregnað, mun Jóhannes Gunn-
arsson, fyrrverandi formaður
Neytendafélags Reykjavíkur,
hafa ákveðið að gefa kost á sér
til starfans.
í fréttatilkynningu frá Neyt-
endasamtökunum segir að veru
leg sókn hafi verið í neytenda-
starfi á þessu ári og félags-
mönnum fjölgað um 25% síð-
an í apríl.
Þrjú ný neytendafélög hafa
verið stofnuð að undanförnu á
Hellissandi, í Búðardal og
Vestmannaeyjum.
Sern kunnugt er létu Neyt-
endasamtökin allmikið að sér
kveða s.l. vor í kartöflumálinu
fræga en upphaf þess máls má
rekja til könnunar samtak-
anna á finnskum kartöflum í
Grænmetisverslun landbúnað-
arins og reyndist stór hluti
þeirra lítt neysluhæfur eins og
menn muna.
Ekki virðist ósennilegt að
aukinn áhugi almennings fyrir
Neytendasamtökunum og
starfsemi þeirra megi rekja til
kartöflumálsins og þeirrar
miklu umfjöllunar sem það
fékk í fjölmiðlum.
Jón Magnússon hættir.
Alit Vörumarkaðarins:
Yfirlýsing-
in réttmæt
■ „Yiirlýsingin er réttmæt
sem einangrað plagg - en
ekki í samhengi málsins,"
var áiit Ásgeirs Eiríkssonar,
skrifstofustjóra, þegar yfir-
lýsing stjórnar Neytenda-
samtakanna var borin undir
hann.
Ebenezer Ásgeirsson, for-
stjóri Vörumarkaðarins var
erlendis þegar NT hugðist
leita álits hans á yfirlýsingu
Neytendasanitakanna en í
stað hans varð Ásgeir Eiríks-
son, skrifstofustjóri, fyrir
svörum.
Ásgeir sagðist í sjálfu sér
persónulega geta fallist á
hvert einasta atriði í þessari
yfirlýsingu. „En hin hliðin á
málinu er sú," sagði Ásgeir,
„að við töldum að ekki væri
satt og rétt farið með í
freftinni. Það var mikið mál
gert úr því sem í raun var
smá handvömm hér hjá
okkur. Það hafði gleymst að
færa þessar kartöflur til
hliðar. vegna þess að við
ætluðum að sjálfsögðu ekki
að selja þessa vöru. Það var
það sem hleypti hér illu blóði
í menn, en ekki það að það
væri verið að stjórna frétta-
flutningi blaðsins eða fjár-
kúga það á einn eða annan
hátt."
Ásgeir viðurkenndi að frá
þessum sjónarmiðum versl-
unarinnar hefði verið skýrt í
fréttt NT en sagði að engu
síður hefði fréttinni verið
slegið upp með hinu sem
aðalefni.
Ásgeir var því næst spurð-
ur hversu mikið mark Vöru-
markaðurinn tæki á Neyt-
endasamtökunum í þessu
samhengi og hvort yfirlýsing-
in breytti í einhverju afstöðu
fyrirtækisins.
Ásgeir sagði að sér fyndist
það annað mál. „Eins og ég
sagði strax í upphafi, þá get
ég fallist á hvert einasta orð
í þessari yfirlýsingu. En hitt
er svo annað mál, sem hvergi
kemur fram í henni, og það
er meðhöndlun blaðsins á
fréttaefninu. Og það mál
stendur upp úr ennþá, að
okkur finnst.
Yfirlýsingin er réttmæt
sem einangrað plagg - en
ekki í samhengi málsins."
sagði Ásgeir Eiríksson að
lokum.
SRYHPÍMHM
SOLUBOÐ
...vöruverö í lágmarki