NT - 23.11.1984, Side 10
Föstudagur 23. nóvember 1984
10
Robinson
melódískur
- Tom Robinson
Backinthe
old country
■ „Sing if you’re glad to be
gay“ söngTom Robinson forð-
um og réttiætiskenndin var að
drepa kappann í hverju einasta
lagi. Lögin voru kraftmikil og
full af sannfæringu og hvers
kyns misrétti var tekið fyrir í
lögum hans. Þá var nú gaman
að hlusta á Tom Robinson.
Nú hefur Robbi breyst.
Hann er orðinn mun melódísk-
ari eins og allir menn í dag en
ekki gengur honum jafnvel að
selja plötur sínar og á árum
áður.
Nýjasta breiðskífa hans
skartar á A hlið laginu Back in
the old country sem er
skemmtilegt og sérlega vel út-
sett með á tíðum suðrænum
blæ. Á hlið B er eitthvað lag
sem heitir Begging og er
slappt. En lagið á hlið A er
nett og létt og fær sex (en
soldið saknar maður gamla
Robba)
(6 af 10)
í ræktinni:
Áheyrileg plata
sem lofar góðu
Jól.
GfORGIO M0R0DER
as*6**-!
Track Theme From
ne Ofítcial Muslc Of The ISB4 Gamcs
Ææogóó...
Giorgio Moroder/
Reach Out
■ Nei nú er Moroder karlinn
orðinn þreytulegur. I’etta er
hörmulegt lag að öllu leyti.
Einhæf útsetning og það virð-
ist sem Moroder kunni bara
eina aðferð til að útsetja þessa
dagana. Reach Out nýjasta lag
kappans er alveg eins og Flash-
dance hvað útsetningu og blæ-
brigði varðaren laglínan mörg-
um sinnum daprari.
Ætli Goggi ieiki ekki á allt
sjálfur? Hann er með þreytt
synthasánd sem allir eru búnir
að fá leið á nema hann sjálfur
kannski.
Annars er þetta citthvað fyr-
ir Ólympíuleikana í LA í
sumar og þetta er e.t.v. fínt í
kanann. Lummóogleiðinjegt.
Það má dansa við þetta. Það
er kosturinn við lagið en svo er
það búið.
(3 af 10) Jól
■ Kan nefnist ung og óreynd
hljómsveit sem um þessar
mundir er að gefa út sína fyrstu
plötu; í ræktinni. Hljómsveitin
er skipuð þeim Herbert Guð-
mundssyni, söngvara, Magnúsi
Hávarðarsyni, gítarleikara,
Finnboga Kristjánssyni, bassa-
leikara, Alfreð Erlingssyni,
hljómborðsleikara og Hilmari
Valgarðssyni, trommara.
Hljómsveitin Kan hetur
haslað sér völl á Vestfjörðum,
um nokkurt skeið, einkum í
Bolungarvík og á ísafirði.
Meðlimir hennar eru þó fæstir
af þeim slóðum og sennilega er
söngvarinn Herbert Guð-
mundsson þeirra þekktastur,
en hann var áður meðlimur
hljómsveitarinnar Pelican,
sælla minninga.
í ræktinni er áheyrileg létt-
rokk plata, og lögin eru öll
frumsamin af meðlimum
hljómsveitarinnar. Hljóðfæra-
leikur, útsetningar og söngur
eru með því skárra sem gerist
á íslenskum vettvangi. Lögin
eru flest nokkuð grípandi og
melódísk, hæfileg blanda af
hressu rokki og kliðmjúkum
melódíum. Herbertstendu'rsig
vel í söngnum. Hann hefur
hljómgóða rödd sem hann
beitir af nokkurri kunnáttu og
leikni, ekki of ágengur en þó
blessunarlega laus við alla
væmni. Þá má geta saxófón-
leiks Einars Braga sem aðstoð-
ar þá félaga. Hann puntar
skemmtilega upp á plötuna og
gefur góða fyllingu.
Ekki verður sagt um þessa
plötu að hún marki nein þátta-
skil enda ekki brotið upp á
neinum nýjungum. Engu að
síður lofar hún góðu og á
líklega eftir að heyrast víða
um jólin.
Gjörsamlega
heillandi...
Einkunnaskali plötudóma NT:
10 Meistaraverk
9 Frábært
8 Mjöggott
7
6
5
4
3
2
Gott
Ágætt
Sæmilegt
Ekkert sérstakt
Lélegt
Afburða lélegt
1 Mannskemmandi
■ Hér höfum við annað 01-
ympíulag með þekktu stefi sem
eitthvað var notað á Olympíu-
leikunum. Höfundur er Phil
Picket en sá hefur verið viðrið-
inn Culture Club. Lagið er
Destiny og er með þrurnu-
sándi, skemmtilega útsetningu
og einvalalið hljóðfæraleikara.
T.d. Terry Britten gítarristi,
Jon Moss á trommur og Helen
Terry í bakröddum. Phil Pick-
ett syngur og leikur á hvítu og
svörtu nóturnar.
Pó ég hafi nú hrósað þessu
dulítið þá hef ég ekki enn sagt
að laglínan sé mjög skemmti-
leg fyrir minn smekk. Þetta er
samt vel danshæft og allt í lagi.
Maður hefur heyrt margt verra
á þessu ágæta ári, 1984.
Ef þig vantar Olympíulag
nett og létt þá er það þetta til
dæmis.
(6 af 10)
Súltúrslúbb
á 0L í LA ’80
- Phil Pickett/
Destiny
- FIXX/Less cities,
more moving people
■ Þetta er klassaband þetta
FIXX. Hér beita þeir gamal-
kunnu bíti. Gamla twistið
dunkar undir niðri í laginu
Less Cities More Moving
People.
Hér á Islandi er FIXX
þekktust fyrir lagið One Thin
Leads To Another sem Hann-
es nennti aldrei að spila.
Þetta er gæðapopp, fram-
sækið að mörgu leyti og snyrti-
leg beiting svuntuþeysa hefur
mikið að segja.
Upp með seðlana og kaupa
þetta lag. Einn tveir og þrír.
Þetta er heillandi tónlist...
(8 af 10) jói