NT - 04.12.1984, Page 1
Ráðist á flugvélaræningja
■ Þessi mynd sýnir skyttur frá bandarísku alríkislögregl-
unni FBI yfirbuga tvítugan flugvélaræningja sem hélt
flugmanni og farþegum í gíslingu í fjóra tíma á Atlanta-flug-
velli. Pilturinn er sagður eiga við eiturlyfjavandamál að
Stríða. Símamynd: Polfoto.
Gæsabændur og
heilbrigðisyfir-
völd í stríði
Sjá bls 3.
Sauðaketið verður að duga á jólunum:
Svínakjöt upp-
urið í landinu
■ Svínakjöt í landinu er nú
víðast hvar á þrotum þar
sem salan á svínakjöti i ár
hefur verið talsvert meiri en
í fyrra þegar enn voru til
birgðir um áramót.
I ár hafa verið framleidd
sextánhundruð tonn af
svínakjöti en fyrir um hálf-
um mánuði voru aðeins eftir
um fimmtíu tonn og þau eru
nú vafalaust horfin eða um
það bil að hverfa út til neyt-
enda. Nóvember og enn
frekar desember hafa verið
helstu sölumánuðir svína-
kjöts og því má búast við að
margir eigi eftir að sakna
þess að hafa ekki svínakjöt á
borðum um jólin.
Að sögn Halldórs H.
Kristinssonar hjá Svínarækt-
arfélagi íslands var ársfram-
leiðsla á svínakjöti í fyrra
ekki nema um þrettánhundr-
uð tonn en þá voru fimmtíu
tonn afgangs um áramótin.
En, góðir íslendingar, þá
er það bara sauðaketið á
jólunum...
Lóð fyrir tón*
listarhús ákveðin:
Öskjuhlíð
vann með
yfirburðum
■ Öskjuhlíðin vann með yfir-
burðum í atkvæðagreiðslu á fundi
samtaka um byggingu tónlistar-
húss í gærkvöldi, sem æskilegasti
staðurinn af þeim þrem sem til
greina komu tjfcað byggja á tónlist-
arhús í Reykjavík. Aðrir staðir
sem til greina komu voru Laugar-
dalur við Glæsibæ og Vatnsmýrin
í grennd Norræna hússins. At-
kvæði féllu þannig að Öskjuhlíð
hlaut 41 atkvæði, Laugrdalur 18
atkvæði og Vatnsmýrin 11 at-
kvæði. Samtökin munu því sækja
um lóð í Öskjuhlíðinni.
Á fundinum í gærkvöldi færði
starfsmannafélag Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands samtökunum 30
þús. krónur í húsbyggingarsjóð
tónlistarhúss. Á döfinni er nú út-
boð um samnorræna samkeppni
um að teikna tónlistarhús, en áætl-
að er að það verði um 6.000
fermetrar-
■ í gær var sett upp jólatré við bústað borgarstjiórnar, Höfða. Fyrst borgin er farin að halda jól, ætli við hin getum þá ekki leyft okkur
líka að byrja að brosa út í annað og farið að fara í jólaskap , enda stutt til jóla, aðeins 21 dagur og ekki ýkja langt þar til fyrsti „jólinn“
mætir í bæinn hress og kátur. NT-mynd: Róberi.
Arnarflug:
Keypti og seldi
flugvél sama dag
- og græddi 14 milljónir!
■ Ný farþeeaþota bættist í
flugvélaflota Isiendinga fyrir
helgina en stóð ekki lengi
þar við þvf vélin var seld
sama dag fyrir hærra verð en
kaupverðið var.
Arnarflug tók þessa vél,
sem er af gerðinni Boeing
727, á leigu frá bandarísku
fyrirtæki í byrjun ársins en
endurleigði hana síðan nýju
flugfélagi í Nígeríu. Eftir tvo
mánuði var þeirri starfsemi
hætt og þá leigði Arnarflug
vélina til Tunis Air til loka
október.
Þegar því verkefni lauk
ákvað Arnarflug að nýta sér
kauprétt á vélinni. Kaup-
samningar voru undirritaðir
í Bandaríkjunum á föstudag
og var kaupverðið 2.378.500
dollarar. En sama dag seldi
Arnarflug vélina öðru
bandarísku fyrirtæki fyrir
2.727.000 dollara og þannig
hækkaði vélin um 350 þús-
und dollara á einum degi eða
um 14 milljónir íslenskra
króna.
í samtali við NT í gær-
kvöldi sagði Agnar Friðriks-
son, framkvæmdastjóri Arn-
arflugs, að skýringin á þess-
unt mismun lægi í því að
kaupverð vélarinnar er mið-
að við daginn sem kauprétt-
arákvæðið var sett í leigu-
samning Arnarflugs og fyrri
eigenda vélarinnar sem var
fyrr áþessu ári, en söluverðið
miðast við markaðsverð nú.
Eftirspurn eftir þessum vél-
um er mikil nú og sagði
Agnar að nokkrir aðrir aðilar
hefðu óskað eftir að kaupa
þessa vél.
Vélin verður afhent nýjum
eigendum20. desembern.k.
Ólympíumótið í skák:
Jón vann Hecht
í 120 leikjum!
- og enn er von um gott sæti
■ Jóni L. Árnasyni tókst
það, sem fáir höfðu búist við,
að vinna biðskák sína við V-
þýska stórmeistarann Hecht
úr 12. umferð Ólympíumóts-
ins í Grikklandi, en skákin fór
tvisvar í bið. Jón hafði peð yfir
er skákin fór í bið í fyrra sinnið
og í seinna sinnið voru aðeins
drottningarnar eftir og tvípeð
Jóns á gJínu. Vestur-Þjóðverj-
inn gaf skákina þegar 120 leikir
höfðu verið tefldir.
Eftir jafnteflið við Dani í
13. umferð er íslenska sveitin
í 16.-19. sæti ásamt Frökkum,
Pólverjum og Áströlum. Búist
er við að karlasveitin mæti
Albönum í síðustu umferð-
inni, en það var þó ekki öruggt
í gærkvöldi.
Ef góður árangur næst á
íslenska sveitin ennþá von um
að ná góðu sæti, því að hver
vinningur getur fært hana upp
um mörg sæti. Besti árangur
íslenskrar sveitar á Ólympíu-
móti í skák náðist á mótinu í
Havanna 1966, en þá urðu
íslendingar í 11. sæti. Enn er
möguleiki á að það met verði
slegið. Þess má geta að íslend-
ingar eru nú efstir Norður-
landaþjóðanna.
Sovétmenn hafa þegar
tryggt sér sigur í mótinu, þótt
ein umferð sé eftir. Þeir hafa
38>/2 vinning, en Bandart'kja-
menn, sem koma næstir, hafa
34 vinninga.