NT


NT - 04.12.1984, Side 24

NT - 04.12.1984, Side 24
ill- Úllönd Fu mdað i im vín- hafið í Dyflinni - við lítinn fögnuð lýðveldissinna ■ Leiötogar Efnahagsbanda- lagsríkja funda nú í Dyflinni við litla hrifningu írskra lýðveldis- sinna, sem sérstaklega þykir lítið til heimsóknar Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, koma. 1 gær tilkynnti írski þjóð- frelsisherinn að hann hefði komið fyrir sjö sprengjum í miðborg Dyflinnar til að mótmæla fundin- um. Hann sagði þó að sprengjurn- arværu ekki hættulegar mönnum. Strðng öryggisgæsla var höfð um Margaret Thatcher og kom hún i þyrlu á fundarstað og var hleypt inn um hliðardyr, ólíkt hinum leiðtogunum sem komu í bílum eftir almennum þjóðvegum. Eitt aðalmálið sem er til um- ræðu á fundinum er vínhafið svo- kallaða, umframbirgðir Efnahags- bandalagsins af víni, sem nú eru svo miklar að EBE gæti gefið hverju mannsbarni í bandalags- ríkjunum flösku af víni á hverjum degi fram að jólum. Vínhafið kostar EBE stórar fjárhæðir í niðurgreiðslum og stendur mjög í vegi fyrir inngöngu Portúgals og Spánar, mikilla vín- framleiðsluríkja, í bandalagið. m &&0P ,SV' 9* V° >0^ AVjÓ^ Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Smn 91 35200 Ólympíuskákmót fjórða hvert ár í Grikklandi Saloniki-Keuter ■ Þing FIDE, alþjóða- skáksambandsins, sam- þykkti einróma um helg- ina að Ólympíumótið í skák yrði haldið í Grikklandi fjórða hvert ár. Grikkir buðust til þess að hafa þennan háttinn á, en þeir leggja nú mikla áherslu á að sem mest af Ólympíu- leikum- og Ólympíu- mótum verði flutt til Grikklands. Grikkjum hefur tekist mjög vel upp með skipu- lagningu Ólympíuskák- mótsins sem nú er haldið í Saloniki og hefur það án efa styrkt málstað þeirra hjá FIDE. Ólympíuskákmótið er haldið á tveggja ára fresti og verður það því í Grikklandi í annað hvert skipti. ■ Fulltrúar vestrænna ríkja munu m.a. ræða hungursneyð- ina í Eþíópíu á fundi sínum í París. Kannski ákvarðanir þeirra hafi áhrif á framtíð þessa barns sein sefur við brjóst móður sinnar í flóttainannahúðunum í Senbette íEþíópíu.símamynd: Polfoto. Iðnríki funda um mat- væla* og þróunaraðstoð París-Kvutcr. ■ Háttsettir fulltrúar vest- rænna iðnríkja funda nú í París urn leiðir til að auka þróunarhjálp og koma í veg fyrir að hungursneyðin í vest- anverðri Afríku endurtaki sig. Fundurinn sem stendur í tvo daga, er haldinn á vegum OECD, sem er samtök 24 vestrænna iðnríkja. Yfirlit yfir þróunaraðstoð OECD-ríkjanna sýnir að fæst þeirra hafa náð því ntarki sem Sameinuðu þjóð- irnar hafa sett fyrir þróunar- aðstoð sem er 0,7 prósent af heildar þjóðrframleiðslu við- komandi ríkja. Aðeins Svíþjóð, Noregur, Danmörk og Holland hafa náð þessu marki. Bretar verja aðeins 0,35% af þjóðarframleiðslu sinni til þróunaraðstoðar og Bandaríkjamenn aðeins 0,24%. Heildarupphæð þróunar- aðstoðar þessara ríkja á síð- asta ári var 27,5 milljarðar dollara sem er svipað og árið 1982 og 0,36% af þjóðar- framleiðslu þeirra. Á fundinum í París, sem hófst í gær, verður m.a. rætt hvernig hægt sé að nota þró- unaraðstoðina til að efla landbúanað landanna, sem taka við henni, og hjálpa þeim að vinna bug á efnahagskreppu heimafyrir. Markmið fundarins er fyrst og fremst að samræma sterfnu iðnríkjanna í þróun- armálum auk þess sem hung- ursneiðin í Eþíópíu verður eflaust einnig nokkuð rædd. ■ „Við erum sérstaklega mótfallnir komu Margaret Thatcher, sem aldrei hefur sýnt írsku þjóðinni annað en fyrirlitningu. í þetta sinn ætlum við þó ekki að gera neina alvarlega tilraun til að taka þessa alræmdu stríðsæsingamanneskju af 1111,“ sagði í tilkynningu írskra lýðvcldissinna í tilefni af fundi leiðtoga EBE-ríkja í Dyflinni. Hér sést sökudólgurinn sjálfur, Thatcher, ræða við Meuve Hillery, konu írlandsforseta við komuna til Dyflinnar. símamynd-POLFOTO Þriðjudagur 4. desember 1984 24 Hallar undan fæti hjá Ariel Sharon? Hermenn vöruðu hann við blóðbaði Jcrúsalcm-Rcutcr ■ Fyrrum majór í ísraelsher, Nahum Menachem, bar um helgina vitni í meiðyrðamáli Ariels Sharons, fyrrum varn- armálaráðherra ísraels, gegn bandaríska tímaritinu Time. Menachem bar vitni í Jerúsalem en upptaka af frásögn hans verður sýnd við réttarhöldin, sem fara fram í New York. Menachem segist hafa varað Sharon við því á fundi 12. september 1982 að líf óbreyttra borgara í Líbanon væri í mikilli hættu. Menachem, sem þá var yfirmaður ísraelska hersins í fjallahéraðinu Shouf í Líbanon, sagði: „Ég útskýrði fyrir Sharon að það væri hætta á hræðilegu blóðbaði. Slík varspennan, allir gátu fundið hatrið sem ólgaði undir.“ Hann sagði að hann hefði sérstaklega talað um hættuna á blóðbaði milli kristinna og mú- hameðstrúarmanna, en Sharon á að hafa klappað honum á öxlina og sagt að allt væri í stakasta lagi. Fjórum dögum eftir fund þeirra Sharons og Menachems skipaði Sharon sveitum krist- inna falangista að fara inn í tvennar búðir palestínskra flóttamanna í Beirút. Par myrtu þeir meira en 500 óbreytta borg- ara. Sharon, sem nú er viðskipta og iðnaðarráðherra, krefst þess að Time greiði honum 500 millj- ónir dala í skaðabætur vegna frásagnar blaðsins um að Shar- on hafi hvatt til fjöldamorðanna í hefndarskyni fyrir Bashir Gemayel, myrtan forseta Lí- banons. Nahum Menachent er einn fimm manna sem bera vitni í málinu í Jerúsalem. Yitzhak Zamir, sem nú gegnir embætti dómsmálaráðherra, hefur synj- að bón Time um að fimm aðrir fái að bera vitni og að leyni- skýrslur verði gerðar opinberar. Menachem sagði að ísraelsk öryggisyfirvöld hefðu fyrirskip- að honum að þegja unt vissar staðreyndir í framburði sínum. Samskipti þýsku ríkj- anna enn á batavegi? - þrátt fyrir skakkaföll Bonn-Rcuter ■ Vestur-þýskir stjórnmála- menn telja enn að samskipti þýsku ríkjanna tveggja séu á batavegi, þrátt fyrir ýmis áföll upp á síðkast- ið. Til marks um þetta telja þeir meðal annars að austur-þýska stjórnin hefur staðið við loforð Erichs Honeckers frá 1983 um að fjarlægja um 60 þúsund sjálfvirkar byssur frá landamærum þýsku ríkjanna. Á föstudaginn var til- kynnt að síðustu byssurnar af þessari tegund, SM-70, væru á bak og burt. Með þeim hafa verið særðir eða drepnir um 50 flótta- menn á landamærunum síðan þær voru settar upp árið 1970. „Þetta sýnir að Honecker leggur mikla áherslu á að standa við orð sín,“ sagði Ottfried Henning, þingmaður úr Kristilega demó- krataflokki Kohls kanslara. Hann sagði ennfremur að við þetta yrðu landamærin mannúðlegri. Engu að síður er ekki auðveld- ara að komast yfir landamærin. Það sást um helgina þegar austur- þýskir landamæraverðir hófu skothríð og drápu, telja kollegar þeirra vestanmegin, mann sem var að reyna að strjúka yfir múrinn. Erick Honecker aflýsti heim- sókn sinni til Vestur-Þýskalands fyrir tveimur mánuðum. að því talið er vegna þrýstings frá Sovét- ríkjunum. Vestur-þýskir stjórn- málamenn telja að ekki sé ólíklegt að Honecker breyti ákvörðun sinni cf einhver marktækur árang- ur verður af viðræðum stórveld- anna um að hcfja á nýjan leik viðræður um takmörkun kjarn- orkuvígbúnaðar í Genf. Sumir telja ekki óhugsandi að Honecker láti verða af heimsókn sinni á síðari hluta næsta árs. Ýmsar blikur eru þó á lofti í samskiptum ríkjanna. Enn dvelja nær hundrað Austur-Þjóðverjar í sendiráðum Sambandslýðveldisins í Austur-Evrópu í þeirri von að fá vegabréfsáritun til að komast vesturyfir. En á sama tíma hefur fjöldi þeirra Austur-Þjóðverja sem fara vestur yfir múr á löglegan hátt Bclgrad-Kcutcr ■ Óþekktir árásarmenn sendu sprengju niður um reykháftnn hjá yfirmanni í júgóslavneska hernum í Kosovo þar sem oft hefur verið ófriðsamt vegna þjóðernisátaka. Innanríkisráðherrann í Kos- ovo sagði að árásin hefði verið gerð á miðvikudeginum í sein- aldrei verið meiri síðap múrinn var reistur. Kohl kanslan segir að fjöldinn verði orðinn nær 40 þús- und um jólaleytið. Ástæður fyrir þessu eru ekki síst aukin samskipti þýsku ríkjanna á efnahagssviðinu. Austur-Þjóðverjar hafa fallist á að létta nokkuð á ferðafrelsishöftum, en í staðinn hafa þeir fengið tvö stór bankalán frá Vestur-Þýska- landi sem alls nema um tveimur milljörðum marka. Síðara lánið, í júlí á þessu ári, var reyndar Sovét- mönnum lítt í geð og heyrðust þá þau hljóð úr horni Kremlverja að stjórnin í Bonn ynni markvisst að því að grafa undan kommúnism- anum í Austur-Þýskalandi. ustu viku þegar Júgóslavar héldu upp' á 39 ára afmæli lýðveldisins. íbúð herforingjans gjöreyðilagðist í árásinni. Éirin maður særðist og er nú á bata- vegi. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki tekist að finna tilræðis- mennina. Fékksprengjusenda niður um reykháfinn

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.