NT


NT - 04.12.1984, Side 3

NT - 04.12.1984, Side 3
Þriðjudagur 4. desember 1984 3 Axel Thor- steinsson látinn ■ Axel Thorsteinsson, rithöfundur og blaðamað- ur er látinn. Hann var fæddur í Reykjavík 5. mars 1895, sonur Stein- gríms Thorsteinssonar skálds og rektors og konu hans Birgittu Guðríðar Eiríksdóttur. Eftir skólagöngu hér heima og erlendis helgaði hann ævi sína ritstörfum. Dvaldi í Bandaríkjunum og Kanada árin 1918 til 1923 og var sjálfboðaliði í her Kanadamanna fyrstu tvö árin þar ytra. Frá 1924 til ’38 veitti hann frétta- stofu blaðamannafélags íslands forstöðu eða til þess tíma að hún var lögð niður. Gaf út Sunnudags- blaðið 1923 en hóf sama ár störf hjá Morgunblaðinu. Var síðar við Vísi og að- stoðarritstjóri hans um nokkur ár frá 1961. Frá 1938 til '77 vann hann við fréttastörf og sem þulur hjá ríkisútvarpinu. Eftir Axel liggur mikill fjöldi þýðinga auk eigin skáld- sagna, leikrita og ljóða. Heilbrigðisyfirvöld í Reykjavík: Reyndu að stöðva sölu á borgf irskum gæsum þrátt fyrir að tilskilin leyfi væru fyrir hendi ■ Stríð hefur að undanförnu staðiö milli heilbrigðisyfirvalda í Reykjavík og gæsaræktar- bænda í Borgarfirði vegna slátr- unar hinna síðarnefndu í slátur- húsi þeirra á Kleppjárnreykj- um. Oddur Rúnar Hjartarson, yfirmaður Heilbrigðiseftirlitsins í Reykjavík, reyndi að stöðva slátrun þessa þrátt fyrir að til- skilin leyfi væru þá fengin. Telja bændur að með aðgerðum sín- um hafi Oddur stórminnkað sölumöguleika í Reykjavík. „Sala í verslanir í Reykjavík hefur gengið verr vegna alls þessa - og einn kaupmaður sagði við mig að þetta yrði erfitt fyrir okkur fyrst Oddur væri á móti þessum gæsum,“ sagði Þorvaldur Pálmason gæsabóndi í Runnum í Borgarfirði. Oddur Rúnar vildi ekki ræða þessi mál við NT, en kaupmenn sem blað- ið ræddi við staðfestu að þeir tækju helst ekki vörur í sölu sem Oddurog hans menn hefðu illan bifur á. Gæsabændurnir fengu bráða- birgðaleyfi hjá landbúnaðar- ráðuneytinu til gæsaslátrunar eftir að í Ijós kom að fuglaslátr- un ísfugls í Hreiðri gat ekki annað þessari slátrun. Var leyf- ið gefið að fengnum jákvæðum umsögnum heilbrigðisyfirvalda og dýralæknis í Borgarfirði. Þessari leyfisveitingu mótmælti Oddur Rúnar í bréfi til ráðu- neytisins og útbjó jafnframt dreifibréf til verslana í Reykja- vík þar um. Kaupmenn voru varaðir við að selja þessar gæsir. Mótmælum Odds var ekki sinnt í ráðuneytinu enda talið utan hans verkahrings að gefa umsögn um slátrun utan Reykjavíkur. Jafnframt var dreifing á umræddu dreifiriti stöðvuð og er ekki talið að það hafi farið út til verslana. Engu að síður telja bændurnir að Oddur Rúnar hafi .með aðgerðum sínum stórdreg- ið úr möguleikum þeirra til að selja vöru sína í Reykjavík. Nefndi Þorvaldur í Runnum því til stuðnings að gæsirnar hafi selst mjög vel í Hafnarfirði en í miklu færri verslanir í Reykja- vík. Ræktun á þessum gæsum, sem eru hreinræktaðar ítalskar aligæsir, er ný af nálinni og eru Borgfirðingar nýbyrjaðir í þess- ari gæsarækt. „Það er reiðarslag að fá svona viðtökur því hér er verið að fara í nýja búgrein og við höfunt lagt höfuðáherslu á að fá sem besta vöru. Þetta endar með því að menn gefast upp á þessu og það fyrir til- verknað eins rnanns," sagði Þor- valdur Pálntason í samtali við NT. Alls var slátrað um 600 gæsum frá 10 gæsabændum í sláturhúsinu á Kleppjárnsreykj- um. Sýni voru tekin úr kjötinu og það sett á markað eftir að sú niðurstaða hafði fengist úr rann- sókn að kjötið væri í lagi. ■ Starfsfólk sláturhússins á Kleppjárnsreykjum, talið frá vinstri: Þorvaldur í Runnum viðmælandi NT, Stefán Eggertsson, Sigríður Einarsdóttir, Hulda Kolbrún Guðjónsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Ragnhildur Gestsdóttir. ■ Myndarfugl, hvað sem heiIbrigðisyfírvöld segja. mmmmmmmar Nýtt met í skákeinvíginu: Stysta skákin - tefld í gær í Moskvu ■ Anatoly Karpov og Garri Kasparov fengu mjög góðar við- tökur áhorfenda í gær þegar þeir settust að 29. einvígisskák- inni íkeppninni um heimsmeist- aratitilinn í skák. Áhorfendur voru ekki jafn ánægðir þegar skákinni lauk með jafntefli eftir aðeins 13 leiki. Kasparov hafði svart og valdi Slavneska vörn í fyrsta sinn í einvíginu. En þó Karpov notaði talsverðan tíma í byrjun skákar- innar var samið um jafntefli eftir 13 leiki og er þetta stysta skák einvígisins til þessa. Skákin fer hér á eftir: 1. RO-d5; 2. d4-Rf6; 3. c4-e6; 4. Rc3-c6; 5. e3-Rbd7; 6. Bd3- dxc4; 7. Bxc4-b5; 8. Be2 Bb7; 9. a3-b4; 10. Ra4-bxa3; 11. bxa3- ■ Og fyrir börnin voru kökur, hattar og djús. Nr-mjnd sieinunn Kópasteinn 20 ára Be7; 12. 0-0 -0-0; 13. Bb2-c5. Og hér sömdu meistararnir um jafntefli. Háskólafyrirlestur: Staða íslands í öryggisstefnu Bandaríkjanna ■ William Arkin flytur fyrir- lestur í boði félagsvísindadeild- ar Háskóla íslands, þriðjudag- inn 4. desember og nefnist fyrir- lesturinn: Iceland’s Position in US Security Policy (staða ís- lands í öryggisstefnu Bandaríkj- anna). William Arkin starfar við In- stitute for Policy Studies í Was- hington DC, sem undanfarna tvo áratugi hefur staðið fyrir víðtæku rannsóknar- og útgáfu- starfi. Arkin hefur umsjón með rannsóknarverk.efni stofnunar- innar um „vígbúnaðarkapp- hlaupið og kjarnorkuvopn." Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 í stofu 102 í Lögbergi húsi Lagadeildar H.í. og er hann öllum opinn. ■ „Germönsk málfræðirit miðalda" nefnist fyrirlestur sem Fabrizio D. Rascellá flytur á miðvikudagskvöld í stofu 422 í Árnagarði í boði heintspeki- deildar Háskóla íslands og ís- ■ Mikil afmælishátíð var á dagvistarheimilinu Kópasteini í Kópavogi á föstudaginn. Börn og starfsfólk fagnaði 20 ára lenska málfræðifélagsins. Fyrir- lesturinn verður fluttur á ís- lensku. Fabrizio er lektor í ger- manskri málfræði við Flórenshá- afmæli heimilisins með því að hafa opið hús og bjóða öllum fyrrverandi börnum, starfsfólki, og einnig fyrirmönnum bæjarins skóla og dvelur nú á íslandi við rannsóknir. Hann hefur rn.a. séð um vísindalega útgáfu á annarri málfræðiritgerðinni í Snorra-Eddu. til veislu. „Við erum stolt af þessu fyrsta dagvistarheimili í Kópa- vogi“, sagði Heiðrún Sverris- dóttir fóstra m.a. í ávarpi sínu, en hún hefur verið forstöðu- maöur heimilisins sl. 6 ár. Þegar heimilið var opnað fyrir 20 árum voru þar 38 börn á tveim deildum. Núna eru deild- irnar 4 þar af ein leikskóladeild og þrjár dagheimilisdeildir. Á heimilinu eru nú 83 börn og þar vinna 25 starfsmenn í 19 stöðu- gildum. ( ávarpi bæjarstjóra, Krist- jáns Guðmundssonar, kom fram að árið 1972 biðu 17 börn eftir dagvistarplássum en þá voru dagvistarheimilin tvö í bæjarfélaginu. Nú rekur Kópa- vogsbær 8 dagvistir fyrir börn en það bíða 297 eftir plássum. Það er því Ijóst.að þróun dag- vistarmála hefur verið hröð, en langt er í Iand að bæjarfélagið fullnægi eftirspurn fyrir börn í dagvist. Germönsk málf ræðirit miðalda — Hverakippur í Hveragerði ■ Lítilsháttar jarð- skjálftakippur fannst í Hveragerði í gærmorgun og er talið að hann hafi átt upptök sín á svokölluðu Hengilssvæði norðan við Hveragerði. Að sögn Páls Einarssonar hjá Raunvís- indastofnun er talið að kippurinn hafi verið tvö til tvö og hálft á Richter- kvarða og standi ef til vill f sambandi við það jarð- hitasvæði sem þarna er.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.