NT


NT - 04.12.1984, Side 15

NT - 04.12.1984, Side 15
15 Texti: Ólína Þorvarðardóttir, blm. " Hvar í veröldinni hafa mamma eða pabbi efni á að vera heima - hvar á ég að vera? arsvæðinu. Á síðasta ári voru þeir þrjátíu og fimm talsins og voru 165.759 börn sem þar dvöldu hluta úr degi. Aðsókn að gæsluvöllum borgarinnar hefur talsvert minnkað síðustu ár, og má sem dæmi nefna að árið 1976 voru rúmlegahelmingi fleiri börn á gæsluvöllum borg- arinnar en á síðasta ári. Að sögn Margrétar Sigurðardóttur þá má m.a. leita orsakanna fyrir þessu í breyttri stöðu kvenna í at- vinnulífinu. „Þjóðfélagið hefur tekið talsverðum breytingum á þessum tíma, það er staðreynd“ sagði Margrét. „Við höfum vissulega of fáa leikskóla og dagheimili, en engu að síður sinna þeir ákveðinni þörf. Nú eru mæður teknar að vinna utan heimilis, í ríkara mæli en áður, og þá nýtast gæsluvellirnir ekki á sama hátt og þeir gerðu. Á meðan mæðurnar voru heima gátu þær notfært sér gæsluvell- ina en það geta þær hinsvegar ekki þegar þær vinna úti allan daginn og þurfa að treysta á gæsluna. fslensk veðrátta úti- Tokar það algjörlega" sagði hún ennfremur. Margrét gat þess einnig að í ár benti flest til þess að ekki yrði frekari fækkun á gæsluvöll- um borgarinnar, þrátt fyrir þá nýbreytni að taka gjald fyrir gæslu á leikvöilum. „Leikvellir eiga virkilega hlutverki að gegna, þó þeir séu enganveg- inn fullnægjandi lausn og leysi ekki önnur dagvistarform af hólmi" bætti hún við. Ríkið hefur ekki staðið við sínar skuldbindingar „Ríkið hefur dregið svo stór- lega úr fjárveitingum til dagvist- armála að það hefur ekki einu sinni getað greitt það sem það sem skuldbatt sig til í kjara- samningunum 1980, þ.e. að full- nægja 70% dagvistarþarfarinn- ar næstu tíu árin“ sagði Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi Kvennafram- boðsins í borgarstjórn, þegar NT ræddi þessi mál við hana. „Ríkið á að borga helming af stofnkostnaði þeirra heimila sem þeir hafa samþykkt sjálfir, en þeir hafa ekki staðið við sinn hlut. Fjárveitingar síðustu ár hafa farið stöðugt lækkandi, og enganveginn haldið raungildi. Árið 1982 hefði ríkið þurft að leggja fram fimmtíu milljónir til að anna 70% af dagvistarþörf barna á aldrinum 0-5 ára. Það árið lagði ríkið fram fimmtán milljónir. Ef þessar fimmtíu milljónir eru framreiknaðar til ársins í ár, myndi sú upphæð nema 126,4 millj. í stað 31,6 millj. króna sem er framlag ríkisins að þessu sinni. Það vantar tæpar hundrað milljónir á milli" bætti hún við. Aðspurð um hvaða afleiðing- ar þessi fjárveitingastefna hefði, sagði Guðrún að þetta kæmi verst niður á minni sveitarfé- lögunum. „Reykjavík er hins- vegar það stórt sveitarfélag að við teljurn eðlilegt að borgin leggi meira fram á móti ríkinu en helming til dagvistarmála. Hér eru það margar útivinnandi konur, að það er lífsspursmál að hafa dagvistarmálin í lagi. í okkar augum eru dagvistarmál- in forgangsverkefni, því allar tölur og ástandið almennt benda til þess að svo sé“, sagði Guðrún. Þreföldun dagvistarrýma er raunhæft markmið Ástand þeirra dagvistarstofn- ana sem reknar eru á Reykja- víkursvæðinu, er þokkalegt, að sögn Guðrúnar. „Hinsvegar beinist allur reksturinn að því að spara, og hafa allt sem ódýr- ast, án tillits til þess hvað kemur börnunum betur. Það er ekki hugsað um þetta sem uppeldis- ' stofnanir, heldur eru fjárhags- legu sjónarmiðin látin ráða ferð- inni,“ sagði hún. „Skortur á fóstrum er talsverður, enda er mikið vinnuálag á fóstrum og þær fá illa borgað. Það má cflaust líta á þetta sem afleið- ingu þeirrar stefnu sem rekin hefur verið.“ Guðrún var innt eftir því hversu mikil aukning dagvistar- stofnana þyrfti að koma til svo anna mætti þeirri þörf sem fyrir er. Hún sagði að tvöföldun eða þreföldun væri það mark sem stefna bæri að, einkum varðandi dagheimilin. „Það eru í rauninni allir sammála uni; þetta, og það hafa ekki komiðl fram nein rök gegn þessu,“ sagði hún „svo þetta er spurning um vilja, og spurning urn forgang. Að mínu mati er þetta mál orðið það knýjandi, að við núverandi ástand er uppeldis- skilyrðum barna stefnt í hreina hættu. Þörfin fyrir heilsdagsvist- un er brýnni nú en nokkru sinni, enda hefur útivinnandi mæðrum fjölgað mjög ört síðustu ár. Við höfum viljað að bygging dag- heimila og rekstur tækju mið af þessum raunveruleika." Rekstrarkostnaðurinn sá sami og á borgarskrifstofunum Rekstrarkostnaður borgar- innar við allar dagvistarstofn- anir í Reykjavík er jafnmikill og rekstrarkostnaður borgar- skrifstofanna í Austurstræti og Skúlatúni, að sögn Guðrúnar Jónsdóttur. Guðrún hefur tví- vegis, ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, lagt fram tillögu þess efnis í borgarstjórn, að tekin verði stefnumarkandi ák- vörðun um að verja ákveðnum prósentuhluta af útsvarstekjum (4%) til dagvistarheimila. Hefði tillaga þessi verið samþykkt í fyrra, að sögn Guðrúnar, þá hefði það þýtt 38,5 milljónir til dagvistarmála frá borginni það árið, í stað 16,3 millj. sem veittar voru. í ár hefði sama hlutfall getað þýtt einar fimmtíu milljónir. „Við eigum við stórt félags- legt vandamál að stríða þar sem dagvistarmálin eru,“ sagði Mar- grét Sigurðardóttir hjá Dagvist- unarheimilum. „Þau dagvistar- rými sem þegar eru til staðar eru ófullnægjandi og veita ekki varanlega úrlausn. Hinsvegar er engin ein lausn á þessu máli. Það þarf til að koma stöðug fjölgun barnaheimila og leik- skóla, og það þarf að gera þau sem best úr garði. Eins geta heimilin þjónað mjöggóðu hlut- verki, þar sem börn eru tekin í einkagæslu. En þegar skortur- inn á dagvistarrýmum er svona mikill er hinsvegar talsverð hætta á því að heimilin oflilað- ist. Leikvellir eru líka prýðilegir og anna vissri þörf. Aðalatriðið er að vel sé að þessum málum staðið og sé það vel gert þá er ég ekki hrædd um uppeldið á börnunum, jafnvel þótt móðirin fari út á vinnumarkaðinn," sagði Margrét. Biðin getur verið dýr Einstæðir foreldrar fá niður- greiðslur á dagvistargjöldum til dagmæðra, þannig að vistunar- kostnaður greiddur úr eigin vasa er hinn sami og á dagheimilum. Á síðasta ári námu niðurgreiðsl- ur Reykjavíkurborgar 3.770.538 krónum. Samkvæmt núgildandi taxta dagmæðra, þá kostar daglöng vistun eins barns með heitri máltíð og hressingu 5.380 kr. á mánuði, hafi dag- móðirin farið á námskeið og fengið tilsögn. Mánaðargjald á dagheimili er helmingi minna, þannig að barnmargt fólk eða efnalítið á talsvert undir því að koma börnum sínum á dagheim- ili fremur en í einkagæslu. Mar- grét Sigurðardóttir gat þess jafnframt að þurfi fólk lengri gæslu en átta tíma á dag hjá dagmóður - sem er nokkuð algengt - þá bætist yfirvinnu- kaup ofan á fyrrgreint verð. „Því miður er það oft efna- minnsta fólkið sem þarf á svo langri gæslu að halda, svo þetta getur verið talsvert vandamál," bætti hún við. Samkvæmt framansögðu þurfa hjón með þrjú börn að játa af hendi rakna rúniar sextán þúsund krónur á mánuði í einkagæslu. Sú upphæð er ekki fjarri líklegum tekjum útivinn- andi húsmóður. Gera má ráð fyrir að þessi sömu hjón hafi leitað til dagmóður á meðan beðið er eftir leikskóla- eða dagheimilisplássi, en sú bið get- ur orðið allt að tvö ár, a.m.k. hjá þeim hópum sem stærstir eru, t.d. námsmönnum. Enn aðrir fá ekki inni á stofnun fyrir börn sín. Þegar svo er komið, fer að verða álitamál hvort það borgi sig fyrir eitt heimili að hafa tvær fyrirvinnur, - nú, eða að eiga börn yfirlcitt. Dagheimili Leikskóli Skóladagheimili Samtals 1981 1983 1981 1983 1981 1983 1981 1983' Dagvistar- stofnanir 17(5) 19(6) 17(5) 17(6) 8 10 47 52 vistunarrými 979 1.082 1.983 2.059 170 207 3.132 3.342 umsóknirá árinu 687 700 1.310 1.250 51 50 2.048 2.010 biðlisti í lok árs biðtími: 398 462 1.247 1.138 0 0 1.645 1.600 einst.for. 3,2m 3,45m námsfólk 8,6m 11,Om börn einst. 574 693 59 36 170 204 803 933 börn námsm. 262 269 83 113 345 382 börngift. 115 124 1.770 991 0 0 1.885 1.115 vistanir á árinu 475 574 991 1.066 81 105 1.547 2.045 ■ Tölulegt yfírlit yfír ástandið í dagvistarmáluni höfuðborgarinnar. Heimild: Skýrsla um dagvistun barna á vcgum Reykjavíkurborgar 1981 og 1983.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.