NT - 04.12.1984, Side 27
Þriðjudagur 4. desember 1984 27
Loksins heil deild
Ársþing KSÍ:
-1. deild kvenna með 8 liðum - Ellert endurkjörinn - fyrsta konan
i stjórn KSÍ - refsistig afnumin
■ Á ársþingi Knattspyrnu-
sambands íslands um helgina
var ákveðið að keppni í 1. deild
íslandsmóts kvenna í knatt-
spyrnu yrði í heilli deild, þar
sem keppa mundu 8 lið. Síðast-
liðið ár kepptu 9 lið í fyrstu
deild, fimm í suðvesturlands-
riðli og fjögur í norðaustur-
landsriðli, og var sú breyting
Ellert Schram.
gerð vegna hins milda kostnað-
ar sem keppninni fylgdi, en
áður hafði verið ákveðið að 8
liö skyldu keppa í deildinni.
Ástæðu þess að fyrirkomu-
laginu sl. sumar þurfti að breyta
er að leita í því að mikill
styrkleikamunur var á riðlun-
um, og amk. þrjú sterkustu
liðin voru í suðvesturlandsriðl-
inum. Liðin sem munu keppa í
1. deild næsta sumar verða: ÍA,
Valur, Breiðablik, Pór, KA,
ísafjörður, Keflavík og annað-
hvort KR eða Súlan sem keppa
skulu um sæti. Eini sýnilegi
gallinn á þessu er að Fylkir
kemur hvergi við sögu, en lið
félagsins vann sér 1. deildarsæti
sl. sumar.
Ellert B. Schram var endur-
kjörinn formaður Knattspyrnu-
sambandsins á þinginu. I aðal-
stjórn voru kjörnir Þór Símon
Ragnarsson, Sigurður Hannes-
son, Sveinn Sveinsson, Gunn-
ar Sigurðsson, Helgi Þorvalds-
son og Gylfi Þórðarson, en þeir
Handknattleikur 2. deild:
Fylkir vann
og tapaði
- á Akureyri um helgina
Frá Gylfa Kristjánssyni frcttamann NT á
Akureyri:
■ Fylkismenn sóttu tvö stig
til Akureyrar um helgina af
fjórum sem barist var um þ ir í
annarri deildinni í handboltan-
um. Liðið lék gegn Þór á föst i-
dag og sigraði 22-19, en á laug-
ardag mátti Fylkir þola ósigur
er leikið var gegn KA.
Fylkismenn voru ávallt yfir
gegn Þór eftir að staðan hafði
verið 2-2. Þeir komust í 7-3 og
í hálfleik var staðan 11-9. Fylk-
ismenn komust mest í 6 marka
mun í síðari hálfleiknum er
staðan var 19-13, en Þórsarar
minnkuðu muninn í eitt mark,
19-20. Þá voru fimm mínútur
til leiksloka, en Þór tókst ekki
að skora fleiri mörk þótt liðið
fengi meðal annars vítakast.
Fylkir skoraði hins vegar tvö
síðustu mörkin og halaði inn
dýrmæt stig. Gunnar Baldurs-
Holland og Belgía:
Úrslit um helgina
■ Við birtum hér aftur úrslit
i hollenska og belgíska boltan-
um um helgina en þau skoluð-
ust eitthvað til í blaðinu í gær.
Hvort það var rigningu og mikl-
um leysingum um að kenna er
erfitt að segja en hér koma rétt
úrslit og staða efstu liða.
Eins og greina má þá hefur
Anderiecht afgerandi forystu í
Belgíu og vann um helgina
stóran sigur á liðinu í öðru sæti.
í Hollandi er slagurinn erfiðari
og tvísýnni en Ajax heldur þó
enn forystu:
Holland:
ÚRSLIT:
Breda-GA-Eagles............. 0-1
Twente-Zwoile................6-0
KWW-Haarlem..................0-2
Sparta-PSV....................22
Excelsior-Volendam ..........1-2
Ajax-Roda....................7'°
AZ 67-Feyenoord..............2-5
STAÐA EFSTU LIÐA:
Ajax
PSV Eindhoven
Feyenoord
Volendam
Groningen
Twente
Friðjón Friðjónsson og Árni
Þorgrímsson féllu. í varastjórn
voru kjörin Garðar Oddgeirs-
son, Ingvi Guðmundsson og
Svanfríður Guðjónsdóttir, og
er hún fyrsta konan sem tekur
sæti í stjórn Knattspyrnusam-
bands íslands.
Af öðrum málum sem komu
upp á þinginu má nefna, að
reglur um refsistig vegna gulra
spjalda voru felldar niður, og
gildir nú eingöngu fjöldi gulra
spjalda til leikbanna. Þá var
samþykkt að Huginn Seyðis-
firði skyldi leika sem níunda lið ■
í þriðju deild norðausturs næsta
sumar, en átta lið leika í suð-
vesturriðli.
■ Formaður dómaranefndar Alþjóðahandknattlcikssambandsins, IHF, Erik Elias frá Svíþjóð sést
hér í hópi íslenskra handknattleiksdómara er líkamlegt próf þeirra var gert í Laugardalshöll á
dögunum. Útkoman úr prófínu var all góð, en þó féllu nokkrir á prófinu og verða að taka sig á.
Aftur verður gert slíkt próf eftir áramót, og að því loknu verður dómurum raðað niður í flokka.
son var markahæstur Fylkis-
manna með 7 mörk, Einar
Einarsson skoraði 5. Hjá Þór
var Guðjón Magnússon með 6,
Oddur Sigurðsson og Rúnar
Steingrímsson með 4 hvor.
KA átti í hinu mesta basli
með Fylkismenn á laugardag..
Allan fyrri hálfleikinn var
leikurinn í járnum, staðan 8-7 í
hálfleik fyrir Fylki og Fylkir
komst í 9-7 í upphafi síðari
hálfleiks. En þá tók leikurinn
aðra stefnu, KA skoraði jafnt
og þétt en Fylkir ekki, og er
upp var staðið var staðan 17-11
KÁ í hag. Fylkir skoraði því
ekki nema 3 mörk í síðari
hálfleik og slíkt nægir ekki til
að vinna leik.
Jón Kristjánsson var at-
kvæðamestur KA-manna með
6 mörk, Reynir Einarsson með
3 fyrir Fylki.
Sittard-Utrecht...................1-0
Den Bosch-Groningen...............0-0
1000 sigurinn
hjá Lloyd
■ Bandaríska stúlkan
Chris Evert Lloyd vann sigur
á frönsku stúlkunni Pascale
Paradis í þriðju umferðá
Opna-ástralska tennismót-
inu á sunnudag. Þetta er svo
sem ekki til frásagnar nema
af því að þetta var sigur
númer 1000 hjá Lloyd á ferl-
inum sem hefur verið langur
og sigurmikill.
Lloyd er 29 ára og hefur
unnið alls 15 svokallaða
„Grand Slam“-titla en það
felst í því að sigra á ákveðn-
um stórmótum á ári.
Þess má geta að sú besta í
heiminum í dag Martina
Navratilova sigraði einnig í
viðureign sinni í þriðju um-
ferð sama móts og hver veit
nema að þær stöllurnar mæt-
ist í úrslitum. Sigur Navarat-
ilovu var hennar 73 í röð og
sá 843 á ferlinum. Má búast
við að hún nái því að sigra í
1000 leikjum áður en hennar
ferill er allur.
Atak í dómaramálum
■ „Heiminum verður ekki
breytt á einum degi, en við
erum hægt og sígandi að lag-
færa það kerfi sem viö höfum
haft á dómaramálum í hand-
boltanum, og stórt skref í því
er heimsókn Eriks Elias, for-
manns dómaranefndar Alþjóð-
ahandknattleikssambandsins
hingað til lands. Hann hélt hér
námskeið í tvo daga og prófaði
mannskapinn bæði skriflega og
líkamlega", sagði Kjartan K.
Steinbach formaður dómara-
nefndar Handknattleikssamb-
aúds íslands í saintali við NT í
gær.
Kjartan sagði að framundan
væri skipting dómara í þrjá
flokka, sem dæmdu í hverri
deild. Kæmi sú skipting í beinu
framhaldi af prófum þeim sem
dómararnir gengust undir hjá
Svíanum. Annað líkamlegt
próf yrði haldið eftir áramót og
endanleg ákvörðun um skipt-
inguna og um það „hverjir
kæmust í liðið" yrði tekin eftir
það. Jafnframt yrði unnið að
undirbúningi undir næsta ár,
en þá verða talsverðar breyt-
ingar á reglum í handknattleik,
breytingar sem þó mest sneru
að dómurum.
Erik Elias leist allvel á ís-
lensku dómarana að sögn
Kjartans. Þó þyrfti að laga
ákveðna hluti, eins og myndug-
leika dómara á leikvelli, en
aftur á móti hefði þekking á
relgum verið í mjög góöu lagi.
I undirbúningi er að íslenskir
dómarar afli sér alþjóðlegri
réttinda í framtíðinni og er stíft
unnið að þeim málum þessa
dagana.
Sundmót í Kanada
■ „Canada Cup“, al-
þjóðlegt meistaramót í
sundi sem haldið er árlega
í Kanada er nýafstaðiö í 8.
sinn.
Mótið var að þessu sinni
haldið í borginni Tórontó
og voru gestgjafarnir sigur-
sælir.
Kanadíska sundfólkið
fékk 14 gullverðlaun en
Austur-Þjóðverjar komu
næstir með 9 hlunka.
í allt tóku þátt í mótinu
yfír 700 sundmenn frá Kan-
ada, USA, A-Þýskalandi
og Ástralíu.
Sandy Goss, Kanada
vann óvæntasta sigurinn er
hún kom á undan Evrópu-
methafanum Jorg Woithe í
mark í 100 metra skrið-
sundi kvenna. Goss synti á
50.67 sek. en Woithe frá
A-Þýskalandi varð önnur á
50.73 sek.
Kornelia Gressler, A-
Þýskalandi vann 50 m, 100
m, og 200 m flugsundið.
Aðeins einn annar kepp-
andi hlaut þrenn gullverð-
laun og var það önnur
kona, Michele Richardson,
USA.
Hún sigraði í 200 in, 400
m og 800 m skriðsundi.
í allt hlaut bandaríska
sveitin 8 gullverðlaun en
Ástralíumenn höfðu 6
heim með sér í pússi sínu.
Belgía:
ÚRSLIT:
Lokeren-Beerschot................3-3 '
St. Liege-Liege..................2-0
Beveren-FC Brugge................0-0
Lierse-Waterschei ...............0-1
Antwerpen-Gent...................1-3
Kortrijk-Seraing.................3-0
Mechelen-Racing Jet..............1-0
Anderlecht-Waregem...............8-2
CS Brugge-St. Niklaas............1-0
STAÐA EFSTU LIÐA:
Anderlecht 16 12 4 0 56 14 28
Waregen 16 10 2 4 33 23 22
Ghent 16 9 3 4 37 21 21
Fc. Brugge 16 8 5 3 23 20 21
Fc.Liege 16 7 6 3 30 17 20
punktar...
Nantes vann stig
■ Nantes vann stig í toppbaráttunni við
Bordeaux í frönsku fyrstudeildarkeppninni í
knattspyrnu um helgina, þrátt fyrir að gera
aðeins jafntefli við botnlið Lille. Á meöan
töpuðu meistarar Bordeaux 0-3 í Mónakó.
Miöherji Lille, Pascal skoraði strax á 2.
mín. gegn Nantes, og Nantes rétt náði að
jafna á 75. mín. með marki Argentínumanns-
ins Victor Ramos.
Mónacó, sem var í toppbaráttunni við
Bordeaux í fyrra, vann meistarana örugglega.
Bernand Gcnghini skoraði þrennu. Þriðja
liðið, Auxerre, vann á með góðum sigri á
Racing París. Staða og úrslit í Frakklandi
voru í blaðinu í gær.
Foringjaskipti
■ Foringjaskipti urðu hjá Spánverjum á
knattspyrnusviðinu uin helgina í fyrstu „al-
mennu“ kosningunum sem fram fara um
embætti formanns knattspyrnusambandins
þar. Hinn fimmtugi formaður Pablo Porta
dró sig í hlé eftir að hafa verið formaður í
hámarkstíma þar í landi, 12 ár. Hinn nýi
formaður heitir Jose Luis Roca. Hann var
kosinn af dómurum, leikmönnum og formönn-
um félaga, en áður kusu formenn félaga
einir formann knattspyrnusambandsins.
Saudi-Arabar stálu stigi...
■ Saudi-Arabar, stórvinir Islendinga á
knattspvrnusviðinu stálu sigri af Suður-Kór-
eumönnum er landslið þjóðanna í knatt-
spyrnu mættust í Asíukeppninni um helgina.
Kóreumenn höfðu yfir 1-0 eftir mark Lee Tae
Ho þar til á 90. mínútu, en þá jafnaði
aðalhetja Arabanna, Majed Mohammad með
skalla eftir hornspyrnu, 1-1.
Masters-karlar 16 tegundir
Ljón - Yegdrekar - Tungldrekar
Eldflaugar 2 tegundir
Arnarhreiður m/hljómplötu
Hestar - Höll (Kastali)
Jólasending komin
Mjög takmarkað magn
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10. s. 14806
LEIKFANGAHÚSIÐ
JL Húsinu v/Hringbr. S. 621040.