NT - 04.12.1984, Side 23
Þridjudagur 4. desember 1984 23
Útlönd
Indland:
( .1IINA
Mörg hundruð
deyja vegna
gaseitrunar
Nýja Delhí-Reuter.
■ Þúsundir manna veiktust al-
varlega vegna gaseitrunar í
Bhopalborg á Mið-Indlandi í
gær eftir að eitraðar gastegundir
streymdu úr verksmiðju Union
Carbide sem er í um 15 km
fjarlægð frá Bhopal. Mörg
hundruð manns höfðu fundist
látin vegna eitrunarinnar í gær
og töldu læknar að tala látinna
myndi fara yfir 600 manns.
Verksmiðjan, þar sem slysið
varð, framleiddi skordýraeitur
fyrir landbúnað. Að minnsta
kosti 4000 manns voru tekin - til
meðferðar í gær vegna alvar-
legrar gaseitrunar og 10.000
manns til viðbótar sýndu nokk-
ur merki um eitrun.
Slysið varð klukkan hálf þrjú
í gærmorgun að indverskum
tíma. Það er talið mun alvar-
legra en sprenging í ítalskri
efnaverksmiðju í júlí 1976 þeg-
ar 1.800 hektarar eyðilögðust
vegna eitrunar.
Að minnsta kosti 350 manns
létust og 1200 veiktust
vegna gaseitrunar í þessari
indversku borg í gær, þegar
eiturgas streymdi úr efna-
verksmiðju í eigu Union Car-
bide. I
v----
V NI l’AI
• (lhop.il
Indland
'MANdl AOI :;il
\ , /
C.lli llll.l í'1 ; 1
Pakistan:
Blöðum bannað að gagnrýna
kosningar um stjórnarskrá
Islamabad-Kcuter
■ Herstjórnin í Pakistan hefur
bannað blöðum í landinu að
gagnrýna áætlun forsetans, Zia-
Ul-Haq. um kosningar 19. des-
ember þar sem kjósendur eru
spurðir um stjórnarskrárhug-
myndir hans.
Stjórnarandstæðingar, sem
ekki fá að taka þátt í undirbún-
ingi kosninganna, hafa gagnrýnt
þær harðlega. En blöð í Pakist-
an hafa ekki skýrt frá þessari
gagnrýni þar sem þeim var strang-
lega bannað að segja frá gagn-
rýni á kosningarnar. í kosning-
unum verða kjósendur spurðir
hvort þeir séu sammála áætlun-
um Zia um að taka upp islömsk
lög í Pakistan og hvort þeir
fallist á almennar þingkosningar
í mars á næsta ári. Zia hefur
sagt að verði þessar tillögur
hans samþykktar líti hann á þær
sem samþykki á þvt að hann
sitji í forsetastóli fimm ár í
viðbót.
Herstjórnin hefur bannað alla
stjórnmálastarfsemi. Fulltrúar
hennar sögðu pakistönskum
blöðum að með því að sækja
blaðamannafundi stjórnarand-
stæðinga hefðu þau gerst brot-
leg við herlögin. Blöðin mega
eingöngu skýra frá stuðningi við
kosningarnar.
Saudi-Arabar
stofna þing
London-Reuter
■ Breska blaðið Sunday
Times birti um helgina viðtal
við Fahd, konung Saudi-Ara-
bíu, og hafði eftir kóngi að
hann hyggðist koma á fót þingi
í eyðimerkurríki sínu og semja
fyrir það skrifaða stjórnarskrá.
Stjórnarfyrirkomulagið í
Saudi-Arabíu er algjört ein-
ræði.
Nýja þingið á að sögn Fahds
„að tryggja þátttöku fólksins í
stjórn landsins og sjá um að
stjórnarstefnunni sé
framfylgt."
Fahd ráðgerir að koma þing-
inu á laggirnar eftir þrjá til
fjóra mánuði, fyrsta með út-
nefndum þingmönnum. Eftir
tvö ár er fyrirhugað að helm-
ingur þingfulltrúa verði kjör-
inti í óbeinum kosningum á
funduni fylkis- og svæðahöfð-
ingja. Innan nokkurra ára
verða svo einhverjir þing-
mannanna kjörnir í beinum
kosningum, segir Fahd.
Kóngurinn segir að Saudi-
Arabar vilji fara varlega að
því að taka upp lýðræðislegri
stjórnarhætti og geri það í
áföngum til að forðast mistök.
Aö sögn Sunday Times voru
leiðtogar saudi-arabískra mú-
hameðstrúarmanna mótfallnir
þessum áformum í fyrstu, en
nú sé hafin bygging þinghúss í
miðborg Rijad.
Umsjón: Ragnar Baldursson 03 Egill Helgason
Palmenefndin:
Nýsmíði kjarna-
vopnaverðihætt
Chicago-Reuter
■ Palmenefndin svokallaða
hefur hvatt Bandaríkjamenn
og Sovétmenn til að hætta að
búa til nýjar tegundir kjarna-
vopna eða að gera tilraunir
með þær.
Palmenefndin dregur nafn
af formanni hennar, Olof
Palme, forsætisráðherra Svía.
Hún er alþjóðleg friðar- og
öryggisnefnd sem starfar óháð
hernaðarbandalögum. Um
helgina lauk þriggja daga fundi
nefndarinnar í Chicago þar
sem m.a. voru samþykktar
ályktanir þar sem risaveldin
eru hvött til að stöðva tíma-
bundið frekari kjarnorkuvæð-
ingu og uppbyggingu nýrra
kjarnorkukerfa til þess að auð-
velda afvopnunarviðræður.
Spán-
verjar
mótmæla
NATO
Madrid-Reuter.
■ NATO-andstæðingar efndu
til mikilla mótmælaaðgerða
gegn veru Spánar í NATO nú
um helgina. Yfirvöld segja að
um 200.000 manns hafi tekið
þátt í mótmælunum í sex borg-
um en skipuleggjendur mót-
mælaðagerðanna segja að í
Madrid einni hafi hálf milljón
manns tekið þátt í þeim.
Mótmæalaaðgerðirnar voru
skipulagðar af ýmsum samtök-
um, sem berjast fyrir afvopnun,
hópum NATO-andstæðinga
innan Sósíalistaflokksins og af
Kommúnistaflokknum sem er
eindregið á móti NATO-aðild
Spánar. I Madrid safnaðist fólk
saman fyrir framan varnarmála-
ráðuneytið þar sem haldnar
voru ræður gegn NATO. Auk
mótmælaaðgerðanna í Madrid
voru einnig skipulagðar mót-
mælaaðgerðir í Barcelona, Val-
encia, Cadiz, Leon og Las Palm-
as á Kanaríeyjum.
Forsætisráðherra Spánar,
Conzalez. hefur lofað þjóðarat-
kvæðagreiðslu um NATO-að-
ildina 1986 en sjálfur hefur hann
lýst yfir stuðningi við áfram-
haldandi aðild sem þó feli ekki
í sér þátttöku Spánverja í beinu
hernaðarsamstarfi með NATO.
■ Spánverjar flykktust út á göturnar um helgina í þúsundatali til að mótmæla aðild Spánar að NATO. Menn eru ekki á eitt sáttir
um það hversu margir tóku þátt í aðgerðunum, en víst er að þær voru fjölmennar. Myndin var tekin við mótmælaaðgerðirnar í
Madrid. Símamynd: Polfoto.
25 ára fangelsi, en ránsfengurinn ófundinn með öllu
London-Reuter
■ Tveir Lundúnabúar, 32 og
40 ára, voru í gær dæmdir í 25
ára fangelsi fyrir hlutdeild sína
að mesta ráni í sögu Bretlands.
Ránið frömdu Michael Mc-
Avoy, Brian Robson og félag-
ar þeirra í vöruskenimu í
grennd við Heathrow-flugvöll
í London í nóvember í fyrra.
Ránsfengurinn nam um 26
milljónum sterlingspunda í
gulli, demöntum og öðrum
verðmætum.
Ránsfengurinn hefur enn
ekki fundist og er hald manna
að félagarnir hverfi með það
leyndarmál inn í fangelsið.'
Lögreglan telur að fleiri hafi
verið í vitorði með þeim.
Pað kom á daginn í réttar-
höldunum að ræningjarnir
höfðu hellt bensíni yfir örygg-
isverði í vöruskemrriunni og
hótað að kveikja í ef þeim yrði
ekki opnuð leið inn í fjárhirsl-
una.
Félagarnir tveir neituðu því
staðfastlega að hafa framið
ránið.