NT - 04.12.1984, Side 11
H/liraning
Markús Benjamín Þorgeirsson
björgunarnetahönnuður
Þriðjudagur 4. desember 1984 11
Gigtarfélag íslands:
Jólakveðja
með vinningsvon
Stórgjöf til félagsins frá fimm konum
Fæddur 14. ágúst 1924
Dáinn 24. nóv. 1984
Þann 24. nóvember síðast-
liðinn kvaddi þennan heim,
tengdafaðir minn og einlægur
vinur, Markús Benjamín Þor-
geirsson, björgunarnetahönn-
uður.
Markús var sextíu ára er hann
lést. Hann var um margt sér-
stakur maður. Af þeim sem best
þekktu hann, var hann talinn
einlægur, hjartahlýr og sáttfús
og því þess verður að skiipa mik-
inn sess í lífi þeirra. Þetta er
mér efst í huga er ég lít til baka
og virði fyrir mér kynni mín af
þessum einstaka persónuleika.
Eg kynntist Markúsi fyrst
1969 er ég trúlofaðist dóttur
hans og flutti inn á heimili
tengdaforeldra minna. Síðar
átti ég eftir að stunda sjó með
Markúsi á Katrínu GK 90 og
vinna mikið með honum að
þeirri útgerð. Eftir það skildu
leiðir að nokkru, þegar ég lauk
námi og hóf kennslustörf 1973
og Markús hóf aftur störf á
stærri skipum.
Síðustu sjö mánuði í lífi Mar-
kúsar naut ég þeirrar gæfu að fá
að kynnast hugðarefnum og
hugsjón Markúsar og einlægum
vinum hans.. Ég lærði á þann
hátt að nreta og virða nranninn
og mannvininn Markús, sem
mörgum vandalausum þótti
stundum koma skringilega fyrir
og sumum þótti harðskeyttur í
viðskiptum. En undirþessu yfir-
bragði var maður, sem gerði sér
vel grein fyrir eigin takmörkun-
um. Maður með sterkan vilja og
einbeitni og mjög hæfur á sínu
sviði. Þetta sanna hugmyndir
Markúsar varðandi björgun-
armál, sem um margt voru ein-
stakar, og barátta hans fyrir
öryggismálum sjómanna. Mark-
ús átti þannig hugmyndina að
því að lögskipa ljóskastara um
borð í öll þilskip 1947, sem
öryggistæki. Hermann Guð-
mundsson framkvæmdarstjóri
Í.S.Í., sem þá var alþingismað-
ur, flutti þessa tillögu Markúsar
inn á Alþingi. í ársbyrjun 1947
safnaði Markús undirskriftum
allra togaraáhafna undir áskor-
un til Alþingis um að Alþingi
setti í lög sex og sex vaktirnar,
þ.e. vökulögin svonefndu, sem
íslenskir togarasjómenn búa
enn að. Áður þurftu togarasjó-
menn að vinna meðan þeir
stóðu uppi og án hvíldar, þegar
mikið fiskaðist. Má ætla að
margir lifi nú í dag fyrir þessa
framsýni og framtak tvlarkúsar.
Laun Markúsar fyrir þetta fram-
tak voru mótlæti, sem um margt
mótaði Markús, svo hann þurfti
oft að hafa meira fyrir sinni
baráttu en aðrir.
Ætla má að Markús hafi byrj-
að að hugsa svo mjög um örygg-
ismál sjómanna í ársbyrjun
1947, er hann sá á eftir tveimur
vinum sínum í sjóinn, er hann
var skipverji á togaranum Maí
frá Hafnarfirði. Er ég þess full-
viss að sú minning og sú marg-
háttaða reynsla sem hann fékk
á sjómannsferli sínu, gaf honum
kraft og hugvit til að fara að
þróa upp björgunarnet þau, sem
nú eru viðurkennd af öllum
reyndum og hugsandi sjómönn-
um og bera nafn hans.
„MARKÚS“.
Hug Markúsar til stéttar sinn-
ar má víða merkja. Ein af
óskum hans var, að framleiðsla
á björgunarnetinu Markús
skapaði vinnu fyrir eldri sjó-
menn og sjómenn með skerta
starfsorku. Er það okkar
hlutverk, sem lifum Markús að
sjá til þess að honum verði að
ósk sinni. Lýsir þessi hugsun
hans vel mannvininum Markúsi
B. Þorgeirssyni.
Markús bar sérstakar tilfinn-
ingar til uppeldisstöðva sinna í
Kolbeinsstaðahrepp. Þar átti
hann góða vini, sem hann vitjaði
oft.
Ég færi öllum velunnurum
Markúsar bestu þakkir fyrir
þeirra þátt í lífi og lífsstarfi hans.
Ég er þess fullviss að Markús
kvaddi þennan heim sáttur við
allt og alla. Hann fór á þann
hátt, sem hann hafði óskað sér.
Ég minnist þín með þakklæti
fyrir allt það sem þú hefur veitt
okkur á æfiskeiði þínu.
Kjörorð Markúsar.
Hjálpið öllum aumum, smáum,
ungum, gömlum, veikum,
lágum,
hreinu kœrleikslijarta frá.
Málleysingja munið alla,
mannúð, samúðfram skal kalla.
Ríki drottins reist er fní.
Þinn tengdasonur,
Pétur Th. Pétursson.
■ Gigtarfélag íslands efnir til
óvenjulegs happdrættis þar sem
hver miði er jafnframt jólakort.
Atta ferðavinningar eftir eigin
vali eru í boði í þessu nýstárlega
happdrætti. Þá hefur félaginu
borist 150 þúsund kr. gjöf frá
fimm konum, sern ekki vilja
láta nafns síns getið, og mun
þetta vera í fjórða sinn er þessar
konur færa félaginu stórgjöf.
Ágóðanum af sölu jólakort-
anna, svo og gjöf kvennanna
fimm, verður varið til að greiða
kostnað við Gigtlækningastöð-
ina sem verið er að reisa. Hægt
er að kaupa jólakortin hjá Gigt-
arfélagi fslands í Ármúla 5 og
hjá félagsmönnum víða um
land.
■ Tveir sjómenn á báti eftir Gunnlaug Scheving.
Ný listaverkakort frá
Listasafni íslands
■ Undanfarin 20 ár hefur
Listasafn íslands látið gera eftir-
prentanir af verkum íslenskra
myndlistarmanna í eigu safnsins
og eru þau tilvalin sem jólakort.
Nú eru nýkomin út þrjú litprent-
uð kort á tvöfaldan karton af
eftirtöldum verkum:
Flugþrá eftir Jóhannes S.
Kjarval, Tveir sjómenn á báti,
eftir Gunnlaug Scheving og Á
hestbaki eftir Louísu Matthías-
dóttur. Kortin, sem eru mjög
vönduð að allri gerð eru til sölu
í safninu.
Jólamerki
Framtíðarinnar
■ Að venju gefur kvenfélagið
Framtíðin á Akureyri, út jóla-
merki sem nú er komið á mark-
aðinn. Merkið er hannað af
Ólafi H. Torfasyni: og prentað
í Prentverki Odds Björnssonar.
Allur ágóði af sölu merkisins
rennur í Elliheimilssjóð félags-
ins.
Merkin eru til sölu í Frí-
merkjamiðstöðinni og Frí-
merkjahúsinu í Reykjavík og
póststofunni á Akureyri.
■ Með frið að leiðarljósi, eftir Sól-
veigu Eggerz Pétursdóttur, sem jóla-
kort Styrktarfélags vangefinna.
Jólakort Styrktarfélagsins
■ Styrktarfélag vangefinna hefur gef-
ið út ný jólakort með myndum af
verkum listakonunnar Sólveigar Eggerz
Pétursdóttur. Kortin verða til sölu á
skrifstofu félagsins, Háteigsvegi 6, í
versluninni Kúnst, Laugavegi 40 og á
heimilum félagsins.
Öllum ágóða af sölu jólakortanna
verður varið til styrktar málefnum van-
gefinna, en félagið stendur nú í ýmsum
fjárfrekum framkvæmdum í þágu
þeirra, m.a. byggingu sambýla, skamm-
tímaheimilis og stofnsetningu verndaðs
vinnustaðar. Kortin eru greinilega
merkt félaginu.
Jólamerki Thorvald-
sensfélagsins
■ Jólamerki Thorvaldsensfé-
lagsins 1984 er komið í sölu, og
er þetta sjötugasta merkið sem
gefið er út á vegum félagsins.
Merkið er mynd af glugga sem
Leifur Breiðfjörð glerlistarmað-
ur hannaði, og er glugginn í
kapellunni á kvennadeild
Landspítalans. Merkið er selt
hjá félagskonum og á Thorvald-
sensbasar, Austurstræti 4,
Reykjavík. Þá fást merkin á
flestum pósthúsum.
JÓL ISLAND 1984
Jólakort Barna-
hjálpar Sameinuðu
þjóðanna
■ Jólakort BarnahjálparSam-
einuðu þjóðanna (UNICEF)
eru komin á markaðinn enn á
ný. Kortin eru unnin af lista-
mönnum frá ýmsum löndum og
eru allmargar myndanna gerðar
sérstaklega fyrir þessi kort.
Útgáfa kortanna hefur fjár-
magnað um 10-15% afstarfsemi
Barnahjálparinnar á undan-
förnum árum, en Barnahjálpin
hefur m.a. unnið að neyðar-
hjálp á þurrkasvæðunum í Afr-
íku, m.a. Eþíópíu.
Ferðavinningur uftir vaii................Kr. 75.000,00
2.—3. Ferðavinningar eftir vaii.................kr. 50.000.00
4.—ð. Feróavínningar-ertí! vaii.................kr. 30.000,00
Heiidarverómæti kr. 325.000.00
Upplý»ingaí i sima 30760 og 35310 Útgelnii midar 20 000.00 — Miöinn óflllduf eltu 27. desembc-r 1986
Nýstárlegt jólakort með vinningsvon getur bjargað málunum, bæði
fyrir Gitarfélag ísiands og þann sem þarf að senda jólakort.
Jólaundirbúningur Lionsklúbbanna
■ Sem fyrr, bjóða lionsklúbb-
arnir nú upp á jóladagatölin
góðkunnu með sælgætismolun-
um, enda getur yngsta kynslóð-
in nú farið að telja dagana til
jóla.
■ Gluggi í Bessastaðakirkju
Jólakort
Hringsins
■ Að venju er Kvenfélagið
Hringurinn með sölu á jólakort-
um. Að þessu sinni eru kortin
tvö. Annað er mynd eftir Balt-
asar við kvæðið Jólabarnið eftir
Jóhannes úr Kötlum. Hitt er
gluggi úr Bessastaðakirkju, Jón
Vídalín Skálholtsbiskup, eftir
Finn Jónsson listmálara.
Kortin eru til sölu hjá félags-
konum, sem sjá um dreifingu
þeirra. Allur ágóði rennur til ■ Lionsmenn og börn þeirra vinna af krafti við pökkun og
Barnaspítala Hringsins. merkingu á dagatölum.
Stærstur hluti ágóðans af sölu
dagatalanna á síðasta ári var
varið til kaupa á greiningatæki
fyrir hjartadeild Landspítalans
en auk þess lagði klúbburinn fé
í fæðingardeild Landspítalans.
BÍLASMI-EXJAN w
KYNDILX.
Stórhöfda 1 8 i|
IIL
Bíiamálun
Bílaréttingar
Vönduð vinna
SÍMI35051
KVÖLDSÍMI
35256
DESOUTTER LOFTVERKFÆRI DITZLER BÍLALAKK
BINKSSPRAUTUKÖNNUR
Bíleigendur athugið
Við höfum margra ára reynslu i viðgerðum á mikið löskuðum
bifreiðum, þess vegna notum við eingöngu Guy Charl réttingar og
mælitæki. Við bjóðum viðskiptavinum okkar staðgreiðsluafslátt á
allri tækjavinnu, greiðslukjör og föst verðtilboð á allri vinnu. A
málningarverkstæði okkar notum við Ditzler málningarefni sem er
amerískt efni og sú staðreynd að General Motors og margar aðrar
amerískar bílaverksmiður nota Ditzler efni tryggir fagmönnum
árangur. Þar ætlum við lika að koma viðskiptavinum á óvart.
Við sækjum bílinn og sendum eiganda að kostnaðarlausu.
Eigum á lager Desoutter loftverkfæri, amerískar
Binks sprautukönnur og varahluti í þær og Ditzler málningarefni
STÓRHÖFBI
FUNAHOFO'
htr jarhopoi
STHDIU
I Stórhoíðd 18|
SHIÐS HOFpl
hamarshopoi
dvergshöfoi
VAGNHOFOI g.
"71
TANGARHÖF-OI ®
CD
BÍL DSHOFOI
BlFREOAEFTlRLmO