NT - 04.12.1984, Blaðsíða 2
Blóðsöfnun úr rangæskum hryssum í sumar:
Um 1.500 krónur fyrir
blóð úr hverri hryssu
■ Rangæskir hrossabændur
fengu nú nýlega greiddar 1.500
krónur fyrir blóð ór hverri
bryssu sem skilaði fullum 25
lítrum blóðs í blóðsöfnun í sum-
ar er leiö, eða um 60 kr. fyrir
hvern lítra. Alls var safnað blóði
úr um 400 hryssum á vegum
Rangæingadeildar Hagsmunafé-
lags hrossahænda og fyrirtækis-
ins G. Ólafssonar h.f.
Aö áliti Magnúsar Finnboga-
sonar á Lágafelli er mest urn
vert að blóðið verður nú unnið
hér á landi aö öllu kyti, þannig
að út verður flutt fullkomið
iyfjaefni. Þetta komi til með að
skapa nokkur ný atvinnutæki-
færi í lífefnaiðnaði. Gangi
vinnsla og sala að óskum geti
viðbótargreiðsla fyrir blóðið
komið síðar.
Magnús sagði blóðsöfnunina
hafa verið í nokkurri lægð sl.
tvö ár vegna markaðsörðugleika
hins danska fyrirtækis sem
keypt hefur blóðið. því ekki
hefur tekist að selja það.
Þridjudagur 4. desember 1984 2
■ Patreksfirðingum þykir nú vel búið að ungviöi staðarins í hinum
nýja leikskóla sem þar var tekinn í notkun fyrir skömmu.
NT-mynd Sigurður Viggóssun
Nýr leikskóli
opnaður á Patró
Frá rréttaritara NT á Fatreksfirði, Sig.
Viggóss.:
■ Nýr leikskóli var fyrir
skömntu tekinn í notkun á Patr-
eksfirði. Leikskólinn, sem rúm-
ar 40 börn í tveim deildum, er
svo til fullsetinn nú þegar. Þykir
Patreksfiröingum nú vel búið
að ungviði staðarins. Forstöðu-
maður leikskólans er Jóhanna
Leifsdóttir fóstra og auk hennar
starfar ein fóstra og einn þroska-
þjálfi ásamt fleira starfsliði.
Byggingarframkvæmdir voru
í höndum heimamanna og er
byggingin í alla staði hin’ vand-
aðasta.
Tillaga um gerð úttektar á
„svartri atvinnustarfsemi“
■ „Á það er skylt að benda að
svört atvinnustarfsemi er ekki að-
eins bundin iönaði, hún þrífst í
ýmsum atvinnugreinum. Það
eru ekki aðeins atvinnurekend-
ur sem slíka iðju stunda. Það er
algengt að launþegar, sem
margir stunda aðalstarf sitt hjá
fyrirtækjum sem bera þær at-
vinnurekstrarlegu kvaðir sent
ríkisvaldið leggur þeim á
herðar, hverfi að reglubundnum
vinnutíma loknum til starfa við
„svarta atvinnustarfssemi" í
beinni samkeppni við aðalat-
vinnuveitanda sinn."
Svo segir m.a. í greinargerð
með þingsályktunartillögu unt
skipun nefndar til að gera
úttekt á „svartri atvinnustarf-
semi“ hér á landi.
Flutningsmenn tillögunnar
eru Stefán Guðmundsson,
Tómas Árnason, Guðmundur
Bjarnason, Þórárinn Sigurjóns-
son, Björn Líndal og Davíð
Aðalsteinsson.
I greinagerðinni segir að
„svarti atvinnustarfssemi" megi
skipta í tvo flokka. 1. Skattsvik,
þar sem fjármunum er velt án
þess að staðið sé í skilunt með
opinber gjöld.
2. Atvinnustarfssemi án tilskil-
inna leyfa.
Tillagan gerir ráð fyrir að
nefndin skili áliti fyrir árslok
1985.
En fyrir þrautseigju fyrir-
tækisins G. Ólafssonar h.f. hafi
þcirn nú tekist að finna nýjan
kaupanda - belgískt dótturfyrir-
tæki bandaríska lyfjafyrirtækis-
-ins Synfix. Að það fyrirtæki vill
kaupa héðan blóð á viðunandi
verði sé fyrst og fremst heil-
brigði íslcnsku hrossanna að
þakka.
Magnús sagöi nú stefna í það
að veruleg aukning geti orðið í
blóðsöfnuninni og úrvinnslu úr
því á næsta ári.
Sovésk kvikmynda-
vika í Reykjavík
■ Sovésk kvikmyndavika hófst í Regnboganuni á laugardag og
verður henni fram haldið til föstudags. Frumsýningarmyndin var
Anna Pavlova eftir leikstjórann Emil Lotianu. Margar aðrar
athyglisverðar myndir verða sýndar í vikunni og rétf að hafa snör
handtök. Þessarmvndirvoruteknar viðopnunina. NT-myndirjtóbert
HREVFILL
ÆTLAR ÞÚ ÚT
AÐ SKEMMTA ÞÉR.
TAKTU EKKIÁHÆTTU.
LÁTTU OKKUR SJÁ
UM AKSTURINN.
VIÐ LOKUM ALDREI.
Akureyri um helgina:
Fimm rúður brotnar
■ Fimm rúður voru brotnar á Akureyri
um helgina og eru þrjú brotanna að mestu
upplýst. Þar var á ferðinni einn og sarni
aðilinn, og óvíst er hvort fleiri tengjast
málinu. Rúðurnar voru í verslunarhúsnæði
í miðbænunt og var brotamaðurinn ölvaður.
engir þjófnaðartilburðir voru hafðir uppi.
Hinar rúðurnar tvær voru brotnar á gull-
smíðaverkstæði í miðbænum og í verk-
smiðjuhúsnæði utan miðbæjarins. Allar
upplýsingar um þau eru vel þegnar hjá
lögreglunni.
Fyrirlestrar og námskeið
um málefni vangefinna
■ írski uppeldisfræðingurinn dr. Roy
McConkey sem hefur um áratugi fengist
við rannsóknir á kennslu vangefinna er nú
væntanlegur til iandsins á vegum nokk-
urra kennslustofnana og félagasamtaka.
Hann er m.a. kunnur sem höfundur bók-
anna: „Let me play'L „Let með speake"
og „Teaching handicapped child."
Dr. McConkey mun flytja erindi í
Kennaraháskóla Islands þann fjórða des-
ember kl. 16.00 um kennslu vangefinna.
Að kvöldi sama dags flytur hann síðan
crindi á vegunt Félags ísl. sérkennara og
Félags talkennara og talmeinafræðinga,
um tungumálakennslu vangefinna. Þá flyt-
ur hann erindi á vegum Landssamtakanna
Þroskahjálpar og Styrktarfélags vangef-
inna í Norræna húsinu á miðvikudag kl.
20.30. Nefnist erindið „How to Change
the communiti attitude to mentally retar-
ded people.“