NT - 04.12.1984, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. desember 1984
Könnun á högum fiskvinnslufólks:
5
Fimmta hver kona með vöðva*
bólgu vegna atvinnu sinnar
Bónusinn fer illa með heilsuna
■ „Útkoman er mjög skugga-
leg hvað varðar atvinnusjúk-
dóma og vinnuaðstæður, og hún
mun leiða til verulegra breyt-
inga á bónusnum, eða að hann
verði lagður niður,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambands
íslands, þegar könnun á heilsu-
fari, vinnutilhögun, aðbúnaði
og félagslegum aðstæðum fisk-
vinnslufólks var kynnt á 35.
þingi ASÍ í síðustu viku. Niður-
stöðurnar voru prentaðar í
bækling, sem var dreift meðal
þingfulltrúa. Höfundarnir eru
Gylfi Páll Hersir og Sigurlaug
Gunnlaugsdóttir, en ásamt
þeim tók Jónas Gústafsson þátt
í framkvæmd könnunarinnar.
Könnunin, sem fór fram
snemma vetrar 1982, leiddi m.a.
í ljós, að á næstu 12 mánuðum
á undan hafði þriðja hver kona,
sem tók þátt í könnuninni, leit-
að lækninga vegna vöðvabólgu,
sem var algengasti kvilli hjá
þeim. Þá hafði fimmta hver
kona fengið staðfestingu læknis
á að hún þjáðist af vöðvabólgu,
sem mætti rekja til vinnunnar.
Alls leitaði 71% fiksvinnslu-
kvenna lækninga á þessu tíma-
bili.
Algengasti sjúkdómur, sem
hrjáir karlmenn í fiskvinnslu, er
bakverkur eða sköddun á baki
og nefndu 18% karlanna þann
krankleika. Næst algengasti
sjúkdómurinn var hálsbólga eða
slæmt kvef, 13%, og síðan
kvörtuðu 11% um vöðvabólgu.
Þegar spurt var um sjúkdóms-
einkenni kom í ljós, að konur
höfðu að meðaltali 4.5 sjúk-
dómseinkenni, en karlar 2.1.
Einungis 14%' kvenna höfðu
ekkert sjúkdómseinkenni, en
31% karla. Þannig reyndist
heilsufar kvenna í fiskvinnslu
mun lakara en heilsufar karl-
anna, og þegar borið var saman
ástand heilsufars og launakerfi
það, sem viðkomandi vann
eftir, kom í ljós, að þeir sem
vinna í einstaklingsbónus eru
lang verst á sig komnir.
Þegar spurt var um aðbúnað
á vinnustöðum kvörtuðu þátt-
takendur í könnuninni mest um
þrjú atriði. Um 80% karla og
kvenna kvörtuðu undan hávaða
á vinnustað, 60 og 67% um hál
gólf og 62 og 67% um kulda. Þá
kom í Ijós, að mjög fáir, 10%
hjá konum og 19% hjá körlum,
höfðu kvartað undan aðbúnaði
til trúnaðarmanns. Þegar slíkt
var gert fengust oftast einhverj-
ar úrbætur. Aðeins 12% kvenn-
anna og 20% karlanna höfðu
tekið þátt í umræðum um örygg-
is- og aðbúnaðarmál og 23%
kvenna og 32% karla töldu að
öryggi væri ábótavant á vinnu-
stað sínum.
Fjöldi annarra athyglisverðra
niðurstaðna kom út úr könnun
þessari og má þar t.d. nefna til
viðbótar, að um 57% fiskvinnslu-
kvenna með böm á aldrinum 0-6
ára kváðust ekki geta unnið fullan
vinnudag vegna skorts á bama-
gæslu. Meðal vinnutími, sam-
kvæmt könnuninni, reyndist vera
37 stundir á viku hjá konum og
49.5 stundir hjá körlum. Félagsleg
þátttaka fiskvinnslufólks reyndist
lítil og þegar spurt var um ástæð-
umar, svöruðu t.d. 14% kvenn-
anna því til, að það væri vegna
skorts á sjálfstrausti. Algengasta
ástæðan hjá körlum var langur
vinnudagur.
Könnun þessi var unnin í sam-
vinnu Alþýðusambands íslands og
Verkamannasambandsins og
studdi félagsmálaráðuneytið verk-
efnið fjárhagslega. Könnunin náði
til rúmlega 800 fiskverkunarfólks
um allt land og bámst svör frá um
93% þeirra, sem fengu spuminga-
listann. Sams konar könnun var
einnig gerð á högum iðnverkafólks
í fata- og vefjariðnaði og er rit
með niðurstöðum hennar væntan-
legt í þessari viku. Þar kom m.a.
í ljós að vegna slæmrar lýsingar,
vondra stóla og vinnuborða þjáist
verkafólk í þessum iðnaði af augn-
þreytu, vöðvabólgu og bjúg í
fótum. Nánar verður sagt frá þess-
ari könnun, þegar hún hefur verið
birt.
Við skulum að lokum gefa
orðið konu um fertugt, sem tók
þátt í könnuninni: „Vinnan göfgar
ekki manninn, sem vinnur erfið-
ustu störfin fyrir lægstu launin.
Gaman væri að sá dagur rynni
upp, þegar atvinnurekendur hætta
að tala um góðgerðarstarfsemi
sína við verkafólk.“
Listasafn íslands:
Tíu fremstu Ijós-
myndarar Frakka
-sýna myndir sínar
■ Sýning á verkum eftir tíu af
fremstu ljósmyndurum Frakk-
lands á 20. öld er opin í
Listasafni Islands og stendur
til 9. desember næstkomandi.
Þetta er farandsýning á vegum
Nútímalistasafnsins í París og
hingað er hún komin fýrir
milligöngu franska sendiráðs-
ins á íslandi.
Meðal tímenninganna, sem
eiga myndir á sýningunni er
Henri Cartier iBresson, sem
er einn frægasti ljósmyndari
þessarar aldar og hefur tekið
margar myndir, sem þekktar
eru um heim allan. í hópnum
em einnig tvær konur, þær
Claude Batho og Sabine
Weiss.
Aðrir ljósmyndarar, sem
eiga myndir á sýningunni eru
Edouard Boubat, Jean-Phil-
ippe Charbonnier, Jean Di-
euzaide, Robert Doisneau,
Gilles Ehrmann , Marc Ribo-
ud og Jean-Loup Sieff.
Sýningjn í Listasafni íslands
er opin virka daga kl. 15.30-18
og kl. 13.30-22 um helgar.
■ Hér er ein þeirra mynda,
sem hægt er að sjá á sýngunni í
Listasafhi íslands þessa dagana.
Jurtalíf í
Þjórsárverum
■ Fimmtudaginn 6. desember
flytur dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir
fyrirlestur með litskyggnum um
jurtalíf og vistfræði Þjórsárvera.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
fyrirlestrarsal raunvísindadeildar
Háskólans að Hjarðarhaga 2-4 og
hefst kl. 20.30.
Eins og vitað er eru Þjórsárver
eitt af náttúruundrum Islands, sí-
frera-svæði með miklu fugla- og
jurtalífi. Dr. Þóra hefur undanfar-
in ár rannsakað Þjórsárverin með
tilliti til þess að hægt sé að forast
skemmd svæðisins af virkjana-
framkvæmdum.
Það er Fuglaverndarfélag ís-
lands sem stendur fyrir fyrir-
lestrinum og er öllum heimill
aðgangur.
FIAT UNO
Um þessarmundirverður 20.000. SODASTREAM vélin
seld hér á landi.
í tilefni af þessum tímamótum hefur Sól hf. ákveðið að
færaeinhverjum SODA STREAM eignda FIAT UNO bíl
að gjöf. Það er ekki ónýtt að fá slíkan farkost í nýársgjöf.
Nafn hins heppna verður dregið úr ábyrgðarskírteinum
allra SODA STREAM eigendamillijóla
mun nafn hans birtast í dagblöðunum í
EIGIRÞU
ÓKEYPISBÍL!