NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 04.12.1984, Qupperneq 14

NT - 04.12.1984, Qupperneq 14
Þriðjudagur 4. desember 1984 14 ■ Þessi börn una glöð við sitt á einu af dagheimilum borgarínnar. Þar komast þó færri að en vildu, ef marka má biðlistana á dagvistarstofnanirnar. Biðtími getur orðið allt að tvö ár, og sumir fá aldrei inili. NT-mynd: Sverrir Nýtt dagheimili við Hraunteig í Reykjavík, sem var formlega tekið í notkun nú fyrir stuttu. NT-mynd: Sverrir Hvar á barnið mitt að vera? I Dagvistarmál hafa af og til skotið upp kollinum undanfarin ár og ýmsir hafa lýst áhyggjum af ástandinu á þeim vettvangi. Sem dæmi má nefna að biðlistarnir hjá | dagvistarstofnunum höfuðborgarinnar hafa stöðugt verið \ að lengjast og virðist lítilla úrbóta vera að vænta í náinni ; framtíð. í nóvember voru þegar komin á sjötta hundrað | barna á biðlista dagheimilanna í Reykjavík og rúmlega 1100 börn biðu þess að komast á leikskólana. Verður hér einkum stuðst við heimildir um dagvistarstofnanir á höfuðborgarsvæðinu þó ástandið sé síst skárra víða um land. Leikskólar í Reykjavík eru tuttugu og sex og rúma þeir 2.059 börn. Um síðustu áramót voru 1.138 börn á biðlista en alls bárust 1.250 umsóknir á árinu. Gift fólk eða sambýlisfólk á helst von um að komast með börn sín inn á leikskólana, enda Segja má, að þörfin fyrir dagvistarrými haldist í hendur við aukna þátttöku kvenna á vinnumarkaðnum sem á sér 1 gildar ástæður, jafnt félagslegar sem efnahagslegar. Við núver- andi aðstæður í efnahagslífi þjóðarinnar, þar sem allir eru kvaddir út á vinnumarkaðinn til þess að hafa í sig og á, virðist þó | ekki um marga kosti að ræða. Umönnun og uppeldi barna hef- ur að sama skapi tekið gagnger- unt breytingum þar sent uppeld- ishutverkið hefur að rniklu leyti flust út af heimilinum yfir á skóla og dagvistarstofnanir. Engu að síður virðist sem bæjar- og sveitarfélög hafi ekki búið sig undir þá öru þróun sern orðið hefur á síðustu árum, Iteldur hefur sparnaður í rekstri sveitarfélaga, þvert á móti, komið niður á dagvistarstofnun- í um, ekkert síður - jafnvel frem- ur en öðrunt þáttum. Afleiðing- in er sú að meginþorri almenn- | ings hefur orðið að grípa til nnnarra ráða, jafnvel að láta börn sín ganga „sjálfala" eftir I að komið er af ungbarnaaldrin- um. Hverjir hafa aðgang að dagvistarstofnunum? Á síðasta ári starfrækti Reykjavíkurborg tuttugu og fimm dagheimili með 1.082 dag- vistarrými. Á fimmta hundrað barna var á biðlista í lok ársins en alls bárust sjöhundruð um- sóknir. í reglum um innritun á dag- heimili Reykjavíkurborgar er miðað við aðstæður foreldra sem hér greinir: Einstæðir foreldrar 60% Háskólastúdentar 16% Aðrir námsmenn 10% Giftir foreldrar/sambúð 10% Erfiðar heimilisástæður 4% í umsóknum giftra foreldra og sambýlisfólks er farið eftir aldursröð umsókna á biðlista, „að svo miklu lcyti sem aidur barns og óskir um staðsetningu dagheimilis leyfa“. Hins vegar miðast vistun við þriggja ára aldur og er tekið við umsóknum þegar barn hefur náð tveggja og hálfs árs aldri. Meðalbiðtími þessara barna á biðlista er 9,6 mánuðir en getur orðið mun lcngri. Börn háskólastúdenta og annarra námsmanna sem eru giftir eða í sambúö, geta dvalist á dagheimili allt að þremur árum en ekki lengur. Sé námi . lokið áður en þau tímamörk renna út ber að rýma plássin. Meðal biðtími þessara barna er eitt ár en getur orðið rúm tvö ár. Börn einstæðra foreldra geta dvalist áfram á dagheimili í allt að eitt ár eftir að foreldri giftir sig eða hefur sambúð. Einstæðir foreldrar þurfa þó að leggja fram staðfestingu frá T rygginga- stofnun ríkisins um mæðra- eða feðralaun viðárlegaendurnýjun umsóknar. Meðal biðtími þess- ara barna er þrír mánuðir. Á síðasta ári voru rekin tíu skóladagheimili á vegum borg- arinnar, en það eru eingöngu börn einstæðra foreldra sem eiga aðgang að þeim. Umrædd skóladagheimili hafa yfir að ráð rúmum tvöhundruð rýmum og rúmuðust þar öll börn sem áttu umsóknir. ■ „Við núvcrandi ástand er uppeldisskilyrðum barna stefnt í hreina hættu. Þörfin fyrir heildagsvistun er brýnni en nokkru sinni fyrr,“ segir Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi Kvennaframboðsins í borgarstjórn Reykjavíkur. hafa aðrir hópar forgang á dag- heimilunum. Þó er alltaf eitt- hvað af börnum einstæðra for- eldra sem vistast á leikskólum og eins hafa námsmenn fengið þar inni fyrir börn sín, þó í litlum mæli sé. Leikskólar bjóða ekki upp á heilsdagsvistun en foreldrar geta haft börn sín í gæslu allt að fimm tíma á dag. Á síðasta ári voru tæplega sextíu börn einstæðra foreldra á leik- skólum, og rúmlega áttatíu börn námsmanna. Megin þorri barn- anna var' þó börn giftra for- eldra eða níuhundruð og ellefu börn. f ársskýrslu um dagvistun barna á vegum Reykjavíkur- borgar árið 1983, kemur fram að hlutur yngstu barna á biðlist- um er mjög stór og fer vaxandi. í sambærilegri skýrslu frá 1981 kemur einnig fram að flest börn sem eru á biðlistum leikskól- anna eru úr Breiðholtinu, eða 44% barnanna. Þá þegar hafði hlutur yngstu barnanna aukist verulega. Dagmæður Á meðan beðið er eftir dag- vistarrými, eða þegar sú von er brostin, grípa margir til þess ráðs að koma börnum sínum í gæslu til dagmæðra. Á síðustu mánuðum síðasta árs voru 977 börn í dagvistun á einkaheimil- um, en á sama tímabili voru 355 dagmæður starfandi með tilskil- in leyfi. Starfsemi dagmæðra er hinsvegar mjög sveiflukennd eftir árstíðum. Á tímabilinu janúar og fram í apríl, í fyrra, losaði fjöldi dagmæðra þrjú- hundruð og fjöldi barna var 814. Frá maí og fram í ágúst vbru dagmæður hinsvegar 231 og fjöldi barna í gæslu þeirra 541. Starfsemin virðist hinsveg- ar vera mest á haustmánuðum og fram til áramóta. Vistun á einkaheimilum hefur ýmsa kosti og einnig ókosti. Einn helsti ókosturinn erótraust- ur starfstíini dagmæðra. Þær geta hætt störfum með mánaðar fyrirvara og þurfa ekki að skuld- binda sig til neins ákveðins tíma. Þannig voru tæp sex- hundruð og fimmtíu börn eða 65% sem fengu vistun hjá dag- mæðrum í sex mánuði eða skemur á síðasta ári, en einungis 115 eða 20,3% sem voru eitt ár eða lengur hjá sömu dagmóður. Þessi óvissa hefur augijósa ókosti í för með sér fyrir bæði foreldra og börn. Að sögn Margrétar Sigurðar- dóttur, deildarstjóra hjá Dag- vistarheimilum Reykjavíkur- borgar, þá eru ýmsar ástæður fyrir þessum sveiflum í starfs- tíma dagmæðra. Margrét sagði að gæsla á einkaheimilum væri óviss atvinnuvegur, og dagmæð- urnar hefðu sjálfar enga trygg- ingu, til lengri eða skemmri tíma. Talsvert væri um það að börn flyttu á milli hverfa eða fengju inni á leikskólum eða dagheimilum, svo orsökin fyrir þessum fjölda sem vistast í skamman tíma hjá dagmæðrum væri enganveginn einhlít. Þess má geta að stór hluti barna sem vistast hjá dagmæðr- um er undir tveggja ára aldri eða 41,3%. Margrét gat þess ennfremur að þær dagmæður sem nú væru starfandi í höfuð- borginni önnuðu enganveginn eftirspurninni. Þá er einhver hópur dag- mæðra starfandi sem ekki hefur tilskilin starfsleyfi. Samkvæmt upplýsingum Dagvistarheimila Reykjavíkurborgar, þá liggur fjöldi þeirra dagmæðra sem starfa á „gráa markaðnum" ekki ljós fyrir enda eru þær hvergi skráðar. Dagvistarheimili Reykjavíkurborgar leitast liins- vegar við að hafa eftirlit með því að konur starfi með til- skilin leyfi, en þó er aldrei hægt að girða fyrir þessa starf- semi, ekki síst meðan þörfin er svo brýn sem nú. Umræddar dagmæður eru ekki bundnar neinum taxta við gjaldtöku fyrir vistun, og heyrst hefur að marg- ar taki ríflegra gjald fyrir vikið, en þær sem starfa með leyfi. En eins og áður sagði þá liggja engar tölulegar upplýsingar fyr- ir í því efni. Gæsluvellir Auk þeirra dagvistarstofnana sem nefndar hafa verið hér að- framan, hafa um árabil verið reknir gæsluvellir á höfuðborg-

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.