NT - 06.12.1984, Síða 3
Þýsku fálkaeggjaþjófarnir dæmdir í Hæstarétti:
Þriggja mánaða varðhald
og 180 þúsund kr. sekt
■ Hæstiréttur hefur dæmt
Þjóðverjann Miroslav Peter
Baly í þriggja mánaða fangelsi
og 100 þúsund króna sekt fyrir
þjófnað á fálkaeggjum hér á
landi, og konu Balys, Gabriele,
í 80 þúsund króna sekt fyrir
vörslu á eggjunum. í sakadómi
Reykjavíkur var Miroslav
dæmdur í fjögurra mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og 300 þús-
und króna sekt en Gabriele í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi og 200 þúsund króna
sekt.
Bæði Miroslav og Gabriele
Baly áfrýjuðu dómi Sakadóms
Reykjavíkur til Hæstaréttar,
Gabriele þó ekki fyrr en hún var
horfin úr landi eftir að hafa lýst
því yfir að hún óskaði ekki
áfrýjunar og sett tryggingu fyrir
sektinni. Ríkissaksóknari áfrýj-
aði málinu einnig til þyngingar.
í millitíðinni strauk Miroslav úr
landi eins og frægt var, en hann
var settur í farbann þar til
dómur Hæstaréttar félli.
í Hæstarétti voru hjónin
sýknuð af ákæru um tilraun til
eggjatöku í ferð sinni til íslands
árið 1983, en Miroslav var
dæmdur fyrir að hafa nú s.l.
sumar komið tii íslands til að ná
í fálkaegg fyrir Lútke nokkurn
og tekið alls átta egg. Miroslav
viðurkenndi þetta brot og einnig
að hafa leitað að eggjum í fleiri
hreiðrum.
í dómi Hæstaréttar segir síð-
an að þó Miroslav hafi í skýrsl-
um sínum fyrir rannsóknarlög-
reglu verið inntur eftir þætti
Sléttanesið:
Stærstasala
í Bretlandi!
■ Sléttanesið frá Þingeyrí
seldi í gærmorgun afla í
Grimsby fyrir nær sjö milljónir
króna sem er hæsta heildarsala
sem fiskiskip, íslenskt eða
erlent, hefur gert í Bretlandi til
þessa. Aflinn var 159 tonn,
mest þorskur og ýsa, 133 tonn
af þorski og 23 af ýsu. Þetta met
Sléttanesins er rétt rúmum 100
pundum yfir fyrra meti sem
Ógri úr Reykjavík átti.
Söluverð aflans var
144.501,70 pund eða 6.971,485
krónur. Verð á hvert kíló var
43,80 krónur sem er með því
betra sem gerist. Mjög góð sala
hefur verið í Bretlandi að
undanförnu og gott verð fengist
fyrir aflann. Mest af aflanum fer
á freðfiskmarkað í búðum og á
hótel og veitingastaði en eitt-
hvað í frystingu.
Vilhelm Annasson er skip-
stjóri á Sléttanesinu.
Vinnuslys:
Gabriele kom ekki fram svo
greinanlegt sé að hún liafi tekið
þátt í leit að eggjum eða töku á
þeim. Hann hafi ekki verið
spurður um það við meðferð
málsins hvort Gabriele hafi ver-
ið samverkamaður hans við
brotin og hún hafi sjálf engum
spurningum svarað unt sak-
arefnið. Gögn málsins þyki ekki
fullnægjandi sönnun þess að
ákærða hafi staðið að brotum
með honum og samkvæmt því
þykir hún einungis vera sakfelld
fyrir ólöglega vörslu á fálkaeggj-
um.
Miroslav var einnig talinn
sekur um fjársvik þar sem hann
viðurkenndi að hafa tekið veg-
mæla bílaleigubíls úr sambandi
og ekið honunt með mælana
ótengda.
I ákæru ríkissaksóknara var
þess krafist að Guðmundur
Jónsson hdl. verði dærndur í
sekt fyrir ummæli í bréfi til
héraðsdómara 29. maí en með
því bre'fi kom hann á framfæri
beiðni Gabriele urn áfrýjun. I
dónri Hæstaréttar kemur fram
að í bréfinu er það haft eftir
Gabriele að ákvörðun sína um
að falla frá ósk um áfrýjun hafi
hún tekið við harla furðulegar
aðstæður. Henni hafi verið
kynnt að krafa yrði gerð á hend-
ur henni um farbann ef hún tæki
þann kost að áfrýja og trygging-
in ein myndi ekki opna henni
leið úr landi. Síðan segir í bréfi
lögmannsins, samkvæmt dómi
Hæstaréttar:
„Af heilsufarsástæðum og
fleiri persónulegum ástæðum
höfðaði þetta „tilboð“ ríkis-
saksóknara svo til umbj. m. að
hún tók því í þeim tilgangi að
komast úr landi.
Slík „verzlun" með grund-
vallarrétt þann, sem felst í heim-
ild til að áfrýja dómi sínum til
æðra dómstigs, telur umbj. m.
augljóst brot á grundvallarregl-
um ísl. sakamálaréttarfars, og
til þess eins fallið að grafa
undan trú manna á réttarríkið
ísland."
Hæstiréttur telur í dómi sín-
um tilvitnuð ummæli lögmanns-
ins ósæmileg og því beri að víta
hann fyrir þau samkvæmt 168
gr. laga nr. 74/1974.
Hæstiréttur staðfesti niður-
stöðu héraðsdóms um máls-
kostnað í héraði en dæmdi
þýsku hjónin til að greiða á-
frýjunarkostnað, þar með talin
saksóknaralaun, 30. þúsund og
málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda þeirra, Arnar Clausen,
hrl., 30. þúsund krónur.
Mál þetta dæmdu hæstarétt-
ardómararnir Sigurgeir
Jónsson, Guðmundur Skafta-
son, Halldór Þorbjörnsson,
Magnús Thoroddsen og Stefán
Már Stefánsson prófessor.
Fast-
eigna-
mat
hækkað
um 25%
■ íslendingar hafa al-
niennt orðið 25% ríkari
þann 1. desember s.l. þa
sem fasteignamat hækkað
uni 25% þann dag, sam
kvæmt ákvörðun yfirfast
cignamatsnefndar. Hækk
unin er reiknuð út fra
verðhækkunum eigna
fastcignamarkaði, bæði
beinum verðhækkunum
og jafnframt hækkunum
sem orðið hafa vegna
minni rýrnunar á dreifðum
útborgunum og cftir-
stöðvabréfum í kjölfar
mjög minnkaðrar verð-
bólgu á síðasta ári.
Heildarmat allra fast-
eigna á íslandi er nú um
180,5 milljarðar króna.
Þar af er mat á íbúðarhús-
um og bílskúrum samtals
116,2 milljarðar. Alls eru
taldar í landinu 83.229 í
búðir sem er fjölgun um
1.563 íbúðir frá síðasta
ári. Minna en þrír íslend-
ingar eru því orðnir um
hverja íbúð að meðaltali.
Af fasteignamati íbúða
eru 75% upphæðarinnar
verðmæti íbúða í Reykja-
vík eða Reykjanesi, eða
87.133 milljónir króna, en
aðeins 29.067 milljónir
heildarmat á öllum íbúð-
um utan suð-vesturhorns-
ja Mezzoforte-
itan er komin
■ Mezzofortc hcfur sent frá sér sína áttundu breiðskífu og bcr hún
nafnið „Rising“. Platan er tckin upp á Englandi í sumar og kveður
nokkuð við nýjan tón hjá þeim félögum, því saxófónninn hcfur vikið
fyrir synthesizer og gítarheila.
Tíu lög eru á plötunni, öll instrumental. 16. des. heldur
Mezzoforte tvenna hljómleika í Háskólabíói og verður fólki sem á
við fötlun að stríða boðið á þá fyrri en seinni tónleikarnir verða
haldnir til styrktar einhverfum börnum.
Breytingar á stjórn Reykjavíkur til umræðu í borgarstjórn:
Verða tveir borgarstjórar
í Reykjavík í framtíðinni?
Maður fyrir Tillögurnar miða að því að auka lýðræðislega stjórnun borgarinnar
vörulyftara
■ Maður varð fyrir vörulyft-
ara á athafnasvæði Hafskips í
Reykjavík laust upp úr ld. 14.00 í
gær Ekki er vitað liversu alvar-
leg meiðsli mannsin eru
en hann er ekki talinn í lífs-
hættu. Atburðurinn átti sér stað
við svokallaðan Faxaskála og
var sá slasaði aðkomumaður á
svæðinu. Hann var þegar í stað
fluttur á slysadeild.
■ Tillögur stjórnkerfis-
nefndar um breytingar á
samþykkt um stjórn Reykja-
víkurborgar og fundarsköp
borgarstjórnar verða teknar
til meðferðar á borgarstjóm-
arfundi í dag. Mál þetta var
tekið fyrír á borgarráðsfundi
27. nóv. sl. og ákveðið að
vísa því til borgarstjómar.
Breytingartillögur þessar
eru margvíslegar en meðal
þess sem þar er að finna eru
atriði sem ættu að auka
lýðræðislega stjórnun borg-
arinnar og gefa almenningi
kost á að láta til sín heyra.
Þannig skal borgarstjóri aug-
lýsa eftir ábendingum og til-
lögum frá borgarbúum um
mál er varða gerð fjárhags-
áætlunar og skal borgarráð
hafa þær til hliðsjónar við
tillögugerð sína.
Einnig getur borgarstjórn
ákveðið að bera einstök mál
undir atkvæði borgarbúa eða
leitað álits þeirra með öðrum
hætti þegar ástæða þykir til.
Niðurstöður slíkrar atkvæða-
greiðslu eru þó ekki bindandi
fyrir borgarfulltrúa. Þá er í
breytingartillögunum ákvæði
um að heimila borgarstjórn
að hafa fleiri en einn borgar-
stjóra í Reykjavík, og skal
þá ákveðið í reglugerð
hvernig störfum skuli skipt á
milli þeirra.
Tillögur frá fulltrúum
Kvennalista og Alþýðu-
bandalags hlutu ekki nægi-
legan stuðning í stjórnkerfis-
nefndinni en samþykkt var
að vísa ýmsum atriðum til
borgarráðs. Má þar m.a.
nefna að teknir verði upp
fastir viðtalstímar borgarfull-
trúa, að í stjórnum og ráðum
fyrirtækja borgarinnar skuli
sitja fulltrúar starfsmanna og
hafa málfrelsi og tillögurétt
og að hver flokkur sem á
fulltrúa í borgarstjórn fái
skrifstofuaðstöðu á vegum
borgarinnar.