NT

Ulloq

NT - 06.12.1984, Qupperneq 20

NT - 06.12.1984, Qupperneq 20
tr Nýjar plötur með KIKK, PAX VOBIS og SPIL- VERKIÞJÓÐANNA kynntar ■ Peir Kristján Sigurjónsson og Sigurður Sverrisson sjá um morgunjrátt í dag kl. 10.00- 12.00. I dagskrárkynningu frá Rás 2 segir: Fyrstu þrjátíu mínúturnar eru helgaðar ís- lenskri tónlist. Þá er kynning á hljómsveit eða tónlistarmanni og viðtöl ef svo her undir. Á þriðjudagsmorgun þegar blaðamaður NT leitaði upplýs- inga um hvert yrði efni fimmtu- dags-morgunþáttar þeirra Kristjáns og Sigurðar, virtist sem það væri ekki alveg á hreinu. Rætt var við báða kappana, sem gáfu ýmsar upp- lýsingar, en þó ekki tæmandi. Sögðu þeir sem svo, að best væri fyrir hlustendur að muna eftir að opna, því þeir fengju áreiðanlega að heyra það nýj- asta - bæði af íslertskum og erlendum smellum. Splunkunýjar íslenskar plötur kynntar - Hvaða íslensk tónlist verður hjá ykkur nú? „Við ítöfum stundum tekið þetta hvert úr sinni áttinni; nýjar íslenskar plötur, barna- efni o.fl. Nú verðum við áreið- anlega með allra nýjustu ís- lensku plöturnar sem eru að koma út: Plötur með KIKK, PAX VOB1S og safnplötu með Spilverki þjóðanna. Hún á ör- ugglega eftir að heyrast mikið í útvarpi og víðar á næstunni. Svo þegar þessum íslenska hálftíma lýkur, munum við „svissa yfir“ í erlenda músík. Um 11-leytið höfum við venju- lega kynnt tónlistarmann eða hljómsveit - en það kemur í Ijós á fimmtudagsmorguninn. Það verða kannski einhver viðtöl síðast í þættinum, en reyndar verðum við síðasta hálftímann fyrir hádegið með svokallaðan „smelltíma". Þar höfunt við sett inn splunkuný erlend lög, sem sjáanlega þjóta upp vinsældalistana, bæði ytra og hér á landi.“ - Hverákveðurhvaðkallast „smellur" og Itvað ekki? „Við styðjumst við það þeg- ar listi er valinn á .fimmtudög- um, þá komast 20 lög á stóra listann, en við getum séð vin- sældir laga á því hvernig at- kvæðin falla. Síðast fengu unt 60 lög atkvæði, svo þarna eru þá 40 lög umfram þau sem komast á listann. Þetta eru lög, sem eru við það að komast inn á lista hcr og verða vinsæl. Við spilum svo þau lög, sem i við sjáum að vantar ekki nema herslumuninn að komast upp, og eins reynunt við að fylgjast með listum erlendís frá og leika þau lög, sem þar eru að klifra upp listana." Fimmtudagur 6. desember 1984 20 Útvarp kl. 22.35: Islendingar fylgjast geysilega vel með nýju lögunum - Eruhlustendurhérálandi fljótir að taka við sér? „Já, mjög fljótir. íslendingar fylgjast alveg geysilega vel með í þessu. Það verður ekki af þeim skafið. T.d. eftir verkfallið - þegar engin blöð komu út og íslenska útvarpið heyrðist ekki um langan tíma - þá gerðist það strax eftir verkfall, að lag, sem aldrei hafði verið leikið á Rás 2 fór beint í 3.sætið á listanum. þótt það hefði aldrei heyrst hér í útvarpi. Þetta var iag með Duran Duran, lagið Wild Boys, og það fór beint inn. Við spurðum því alla sem hringdu: „Hvar hafið þið heyrt þetta lag, ekki hafið þið heyrt það hjá okkur?“ Svörin voru ýmist: í BBC eða Radio Luxembourg. Á diskótekum, sögðu sumir. Diskótekin eru oft meö það allra nýjasta að utan, t.d. diskótekið Traffic. Það er alltaf ntikið hringt til okkar á Rás 2 og hlustendur eru mjög duglegir að hafa samband," sagði Sigurður Sverrisson, útvarpsmaöur, blaðamaður og ritstjóri aö lokum. Útvarp kl. 20.30: Fimmtudagsumræða um bókaútgáfuna ■ Fimmtudagsdagskrá útvarpsins hefur raskast nokkuð oft að undanförnu vegna umræðna frá Al- þingi, sem orðið hefur að flytja yfir alþjóð. Eitt fórn- arlamb þessarar röskunar er fyrsta fimmtudagsum- ræða vetrarins, sem varð að víkja í síðustu viku, en fær nú sinn sess í kvöld kl. 22.35. Henni stýrir Þor- grímur Gestsson frétta- maður og verður umræðu- efnið bókaútgáfa í land- inu. Þeir sitja saman í útvarpssal Þorgrímur og gestir hans, Eyj- ólfur Sigurðsson formaður Fé- lags bókaútgefenda, Jón Krist- jánsson formaður Félags ís- lenskra bókaverslana, Þorgeir Baldursson prentsmiðjustjóri í Odda og Sigurður Pálsson for- maður Rithöfundasambands- ins, og eru í beinni útsendingu. Þátturinn stendur í rúman klukkutíma. „Við ætlum að ræða fyrst og fremst um stöðu bókaútgáfu og útlit og horfur í ljósi sam- dráttarins undanfarin ár,“ seg- ■ Bókaútgefendur hafa látið uppskátt að í ár komi eitt hundrað færri bókatitlar en á síðasta ári. Hvað veldur samdrættinum? ir Þorgrímur. Hann segir þá ætla að reyna að komast að niðurstöðu um hvað hafi valdið þessum samdrætti, sem raunar kannski enginn viti hvað er mikill, en Hagvangur sé nú að fara á stúfana að fylgjast með útgáfu og bókasölu. Það kom fram á blaða- mannafundi fyrir skemmstu sem bókaforlögin héldu sam- eiginlega, að Iðunni undanskil- inni, að f ár eru um eitt hundr- að færri titlar gefnir út en í fyrra, og álíta bókaútgefendur að aðalástæða þessarar fækk- unar sé sölusamdrátturinn í fyrra. Ýmsar bækur, sem voru langt komnar í vinnslu í ár, konta ekki út að sinni af þeirri ástæðu. Þá verður rætt um framtíð- arhorfur, hvaða hugmyndir séu á lofti, en þessir fjórir aðilat sem eiga fulltrúa í við- ræðunni, þ.e. bókaútgefendur, bóksalar, bókagerðarmenn og rithöfundar, hafa t.a.m. stofn- að samstarfsnefnd til að finna leiðir til að auka hróður bókar- innar á ný. Þessi fimmtudagsumræða er frábrugðin þeim sem voru í fyrravetur að því leyti að nú gefst hlustendum ekki kostur á að hringja inn fyrirspurnir og athugasemdir á meðan á út- sendingu stendur. Dagbókarbréf úr íslandsferð sænsku listakonunnar Siri Derkert ■ Kl. 20.30 í kvöld verður í útvarpi endurfluttur lestur Hrafnhildar Schram á þýðingu sinni á dagbókarbréfunt sænsku listakonunnar Siri Derkerts. Þættinum var áður útvarpað í apríl 1982. Sýning var haldin á verkum hennar í Norræna húsinu 1976 og var það sonur hennarsem annaðist uppsetningu. Siri Derkert kom hingað til lands í ágúst 1949 og ferðaðist víða um land þar til hún fór aftur í mars 1950. Ferðamáti ■ Siri Derkcrt var iínleg kona og komin á háan aldur þegar hún vann steinsteypu- styttuna til stuðnings kvcnnabar- áttu og friði en gegn náttúru- mengun við Ostermalm í Stokkhólmi. En hún var ekkert að veigra sér við að vinna í því samhandi ýms verk sem oft eru kölluð „karlmannsverk.“ hennar þótti nýstárlegur og vakti umtal. enda fór Siri Derkert ekki troðnar slóðir á lífsferli sínurn. Hún ferðaðist nefnilega „á puttanum". helst með mjólkurbílum og stórum vöruflutningabílum, konan komin á sjötugsaldur. Á þessum ferðum sínum málaði hún mikið af landslagsmynd- um, hestum og útigangsfé. Þar að auki hafði hún það til siðs að þakka fyrir næturgreiða á bóndabæjum með því að mála húsráðendur, og eru því marg- ar myndir til eftir hana hér á landi, segir Hrafnhildur. Hrafnhildur segir okkur undan og ofan af fcrli þessarar óvenjulegu konu, sem svo sannarlega var langt á undan sinni samtíð á mörgum sviðum. Siri fæddist í Stokk- hólmi 1888 í ofur venjulegri borgaralegri fjölskyldu. Hún stundaði nám við Listaak- ademíuna í Stokkhólmi 1911- 1913, en fór þá til náms í lista- skóla í París. Þaðan fór hún víða, m.a. til Alsír, en hafnaði svo á Sikiley, þar sem hún hóf að búa með finnskum lista- manni. Þeim fæddist sonurinn Carlo, sá sem setti upp sýningu móður sinnar hér 1976. Tvær dætur eignaðist hún svo með öðrum manni. En fjölskyldu sinni heima í Svíþjóð hlífði hún lengi vel við þessum fréttum, enda var það ekki litið björtum augum á þeim tíma á hennar heimaslóðum að ungar konur stæðu uppi einsamlar með börn. 1924 er hún þó komin með börnin til Svíþjóðar og þar vinnur hún síðan, m.a. með smádálkaskrifum t' Dagens Ny- heter. í Stokkhólmi kynntist Siri íslenskum námsmönnum, sem buðu henni síðan í fyrr- nefnda íslandsferð. Siri Derkert var óvenjuleg á fleiri sviðum en í lífsmáta. Á efri árum vann hún t.d. mjög mikið myndir og verk með kvennabáráttuna í huga og einnig lét hún til sín taka í hvers konar baráttu fyrir friði og náttúrvernd. Á árunum 1962-1965 vann hún þannig steinsteypusúlu. sem hún myndskreytti í samræmi við þessi hugðarefni sín, og það var löngu fyrir tíma fjölda- hreyfinga fyrir þessum baráttu- málum. Súla þessi stendur á neðanjarðarjárnbrautarstöð- inni við Östermalm í Stokk- hóimi. Siri Derkert var orðin há- öldruð þegar hún fékk þá viðurkenningu sem hún átti skilda. Þá var sett upp sýning með verkum hennar á Mo- derna Museet í Stokkhólmi 1960 og Biennalnum í Feneyj- um 1962. Fimmtudagur 6. desember 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurð- ar G. Tómassonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Esra Péturs- son talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Músin í Sunnuhlíð og vinir hennar" eftir Margréti Jónsdóttur. Sigurður Skúlason les (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 „Sagt hefur það verið“ Hjálm- ar Árnason og Magnús Gíslason sjá um þátt af Suðurnesjum. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Helgi Már Barðason. 13.30 Tónleikar 14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Döra Ingvadóttir. 14.30 Á frivaktinni Þóra Marteins- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Hvískur Umsjón: Hörður Sig- urðarson. 20.30 Dagbókarbréf frá Islandi Hrafnhildur Schram les þýðingu sina á dagbókarbréfum sænsku listakonunnar Siri Derkert. (Áður útvarpað í apríl 1982). 21.05 Gestur í útvarpssal Einar Steen-Nökjleberg leikur á pianó „Peer Gynt-svítu" eftir Harald Sæ- verud og Ballöðu op. 24 eftir Edvarð Grieg. 21.40 Erlendar skáldkonur frá ýms- um öldum Fyrri hluti. Umsjón: Sigurlaug Björnsdóttir. Lesari: Herdís Þorvaldsdóttir. 22.05 Tónleikar 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Fimmtudagsumræðan Um ís- lenska bókaútgáfu. Umsjón: Gest- ur Þorgrímsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. llfT Fimmtudagur 6. desember 10:00-12:00 Morgunþáttur Fyrstu þrjátíu mínúturnar helgaðar ís- lenskri tónlist. Kynning á hljóm- sveit eða tónlistarmanni. Viðtöl ef svo ber undir. Stjórnendur: Kristján Sigurjónsson og Sigurður Sverris- 14:00-15:00 Dægurflugur Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leopold Sveinsson. 15:00-16:00 Nú er lag. Gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. Stjórn- andi: Gunnar Salvarsson. 16:00-17:00 Djassþáttur Þjóðleg lög og jazzsöngvar. Stjómandi: Vern- harðúr Linnet. 17:00-18:00 Gullöldin - lög frá 7. áratugnum Vinsæl lög frá árunum 1962 til 1974 = Bitlatímabilið. Stjórnandi: Þorgeir Ástvaldsson. Kvöldútvarp á Rás 2 Þá er stóra stundin runnin upp á Rás 2. í kvöld verður I fyrsta sinn útsend- ing á fimmtudagskvöldi og stendur hún kl. 20-24. Föstudagur 7 desember 19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 19.25 Veröld Busters Fimmti þáttur. Danskur framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum. Þýðandi Ólafur Hauk- ur Símonarson. (Nordvision- Danska sjónvarpið) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Helgi E. Helgason. 21.20 Skonrokk Umsjónarmenn: Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín Hjartardóttir. 22.00 Hláturinn lengir lífið Fimmti þáttur. Breskur myndaflokkur í þrettán þáttum um gamansemi og gamanleikara í fjölmiðlum fyrr og síöar. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 22.35 Húsið við 92. stræti (The House on 92nd Street) Bandarisk biómynd frá 1945. s/h Le:kstjóri Henry Hathaway. Aðalhiutverk: William Eythe, Uoyd Nolan, Signe Hasso og Leo G. Carroll. Myndin gerist í New York á stríðsárunum. Ungur maður leikur tveim skjöldum i þjónustu njósnara Þjóðverja í Bandaríkjunum sem meðal annars eru á höttunum eftir kjarnorku- leyndarmálum. Þýðandi Bjarni Gunnarsson. 00.00 Fréttir í dagskrárlok v«tiinMártmnww' •waf/ésstss-ífvaw •mmpmmsm* ■ fpítSHKteÆnsíBt: ttemman* tc.&œmm*

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.