NT - 10.12.1984, Page 2

NT - 10.12.1984, Page 2
Mánudagur 10. desember 1984 2 ■ Harður árekstur varð á horni Réttarholtsvegar og Miklubrautar í fyrrinótt þegar skullu saman jeppi og fólksbíll. Eru báðir bílarnir taldir ónýtir en minniháttar slys urðu á fólki. Tvennt var flutt á slysadeild en fékk fljótlega að fara heim. Jeppinn var á austurleið eftir Miklubraut en fólksbfllinn ók niður Réttarholtsveginn og fyrir jeppann. Ni-mjnd: Svcrrir. Rafmagnsleysið: Yfir tvöhundruð hringdu í löggu Öldurhúsin sluppu ■ „Föstudagskvöldið var annasamt, það hringja allir í neyðarsíma lögreglunnar til þess að fá upplýsingar,“ sagði vakthafandi lögregla í gær um ástand sem skapaðist þegar rafmagn datt út í vest- urbæ og Fllíðum á föstudags- kvöld. Yfir tvöhundruð manns hringdu í lögregluna til þess að leita skýringa. Rafmagnsleysið náði allt vestur úr Þingholtum, vestur á Nes og um Fllíðar. Öldur- hús bæjarins héldu öll sínu rafmagni nema Hótel Saga en ekki skapaðist neitt vand- ræðaástand þar. Rafmagnið datt út við það að þrír rofar slógu út og tókst að koma því á tveimur tímum seinna. BlaHn náið^iavið''^ vitneskju um kfal|SinS og WBml IH'-iíM Æ iJ 'Æu Lflf jÆm ^fl| '11 » '■■■ m t iKvl f FmJ fTT' M Framsóknarfélag Reykjavíkur 60 ára: Tólf gerðir að heiðursfélögum Eysteinn Jónsson rakti sögu félagsins ■ Yfir 100 manns mættu á afmælishóf Framsóknar- félags Reykjavíkur sem haldið var í Átthagasal Hótel Sögu í gærdag. Tólf gamlir flokksfélagar, sem starfað hafa í félaginu, voru gerðir að heiðursfé- lögum og ávörp voru flutt. Félagið er elsta starfandi stjórnmálafélag í landinu. Heiðursfélagarnir nýju eru: Anton Bjarnason, Bjarni Guðbjörnsson, Björn Stefánsson, Egill Sigurgeirsson, Eysteinn Jónsson, Gústav Sigvalda- son, Haukur Jörundsson, Hermann Kjartan Sveins- son, Rannveig Þorsteins- dóttir, Skúli Þorleifsson og Þórarinn Þórarinsson. Ávörp fluttu Eysteinn Jónsson, Guðmundur Bjarnason og Haraldsson. Að hinum eirindunum ó- löstuðum þá vakti erindi Eysteins mesta athygli, en hann talaði um stofnun félagsins og fyrstu ár þess og fíéttaði í frásögnina pólitík þess fima. Kveðjur bárust frá flokksforystunni og fram- sóknarkonum í Reykja- vík. Kaffi og meðlæti var fyrir gesti og Elín Sigur- vinsdóttir söng einsöng við undirleik Hólmfríðar Sig- urðardóttur. ■ Forvígismenn Rauða krossins á íslandi á blaðamannafundi með Hans Höegh, framkvæmdastjóra Alþjóðasambands Rauða kross félaga. Frá vinstri: Benedikt Blöndal, formaður Rauða kross íslands, Jón Asgeirsson, Hans Höegh og Eggert Sverrisson, gjaldkeri Rauða krossins á íslandi. NT-mynd: Ámi Bjama. Rauði krossinn 60 ára: Konur sterkasta aflið - Krabbameinsfélaginu gefið fullkomið tæki ■ í tilefni 60 ára afmælis Rauða kross íslands hefur félagið ákveðið að færa Krabbameinsfélagi ís- lands að gjöf fullkomið tæki til leitar að brjóstkrabbameini í konum. Tækið ntun kosta um 2Vi milljónir króna, og sagði formaður Rauða kross Ísíands, Benedikt Blöndal, að gjöfin hefði þótt við hæfi þar sem kvenfólkið væri sterkasta aflið í Rauða krossinum. Rauði kross Islands var stofnaður 10. desember 1924 og var fyrsti formað- ur félagsins Sveinn Björnsson, síðar forseti íslands. I tilefni afmælisins kom framkvæmdastjóri Al- þjóðasambands Rauða kross félaga, Hans Höegh, í heimsókn. Hann er íslendingum að góðu kunnur.en hann hafði m.a. forgöngu um að börnum frá Vestmanna- eyjum var boðið til sumar- dvalar í Noregi 1973, eftir gosið í Heimaey. Hann sagði á blaða- mannafundi á laugardag, að eitt brýnasta verkefni Rauða krossins um þessar mundir væri aðstoð við þurrkasvæði Afríku, og að hafin væri fjársöfnun í þeim tilgangi. Benedikt Blöndal, formaður Rauða kross íslands, sagði meg- inþætti starfs Rauða kross- ins hér á landi vera rekstur sjúkrabíla, sjúkrahótelið, starf á spítölum, neyðar- varnir og skyndihjálpar- kennsla. Félagsmenn í Rauða krossi íslands eru nú í kringum 20.000 og starfa í 50 deildum.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.