NT - 10.12.1984, Page 13
fíí? Mánudagur 10. desember 1984 13
IlL[ Útlönd
Pottþétt
unglingabók
Fimmtán ára á föstu, nyja unglingasagan eftir
Eövarö Ingólfsson, er auövitaö opinska, spennandi
og skemmtileg. En hun er ekki síður emlæg og sönn.
því þannig skrifar Eövarö. Og þannig bækur vilja
unglingarnir eiga og þannig bækur er gaman aö gefa
þeim. Það er alveg pottþétt!
Fimmtán ára á föstu - pottþétt unglingabók!
ÆSKAN
Laugavegi 56 Simi17336
Taiwan:
Lifði af fjóra daga
innilokaður í námu
Át kjöt af látnum félögum sínum
Taipei-Reuter
■ Björgunarmenn fundu einn
kolanámumann á lífi í gær eftir
að hafa verið innilokaður í fjóra
daga í námu sem hafði hrunið
saman við sprengingu. Hann
sagðist hafa haldið sér lifandi
með því að éta kjöt af látnum
félögum sínum.
Námumaðurinn var mjög illa
haldinn og embættismenn sögðu
að hann hefði verið með óráði
þannig að ekki væri enn ljóst
hvort hann segði rétt frá dvöl
sinni í námunni.
Fjörutíu og sex lík höfðu
fundist í námunni í gær en þá
voru 47 námumenn enn ófundn-
ir. Aðeins tveir námumenn hafa
fundist lifandi. Maðurinn, sem
var bjargað í gær, er 56 ára
gamall og heitir Chou Tsung-
Lu. Hann sagðist hafa hulið
höfuð sitt með báðum höndum
þegar sprenging varð í nám-
unni. Pegar hann leit svo í
kringum sig sá hann félaga sína
liggja látna á gólfi námunnar.
Chou hélt sig lengst af fast við
loftræstiop í námunni. Hann
sagðist hafa verið sannfærður
um að hann myndi lifa af þar
sem hann hafði með sér vatn í
flösku. En eftir einn og hálfan
sólarhring hefði hann fundið til
ómótstæðilegs hungurs svo að
hann hefði orðið að éta hold
félaga sinna.
■ Chou Tsung-Lu tókst að
lifa af fjögurra daga innilok-
un í námu í Taiwan sem
hrundi saman í síðustu viku.
Hann segist hafa neyðst til
að éta hold vinnufélaga sinna
til að halda sér lifandi.
Síniamynd-POLFÖTO
Embættismenn sögðu að þeir
lrefðu ekki enn misst alla von
unr að finna fleiri námumenn á
lífi 2.400 metra inni í námunni.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Egill Helgason
■ Rudolf Bahro, einn af leiðtogum harðlínumanna meðal vestur-
þýskra græningja. Á þingi græningja í Hamborg réðst hann
harkalega á allar hugmyndir um samstarf græningja við sósíaldemó-
krata og sagði slíka samvinnu vera til þess eins að viðhalda kerfinu
eins Og það væri. Simamynd-FOLFOTO
Grænt-rautt
bandalag í
V-Þýskalandi
Hamborg-Rcuter
■ Miklar deilur urðu á þingi
þýskra græningja í Hamborg
um helgina um það hvort flokk-
ur þeirra skyldi stefna að sam-
starfi við aðra vestur-þýska
Sovétmenn
ræða meng-
unarvarnir
Moskva-Reuter
■ Sovéskir leiðtogar
ræddu m.a. um mengunar-
varnir á fundi stjórnmála-
nefndar iniðstjórnar
Kommúnistaflokksins í
seinustu viku.
Sovétmenn hafa að
undanförnu haft auknar
áhyggjur af mengun frá
iðnaði. Sovésk blöð hafa
birt fréttir af alvarlegri
vatna- og loftmengun á
mörgum stöðum að
undanförnu.
Sovésku leiðtogarnir
ræddu sérstaklega á þess-
um fundi sínum um leiðir
til að draga úr loftmengun
í borgum og á iðnaðar-
svæðum.
flokka. Flokkurgræningjahefur
eflst mjög á undanförnum árum
í Vestur-Pýskalandi. Skoðana-
kannanir benda til þess að
flokkur þeirra gæti jafnvel feng-
ið 11% af atkvæðum ef þing-
kosningar yrðu haldnar núna.
Þeir myndu þá vera í oddaað-
stöðu á þingi þannig að þeir
gætu ákveðið hvernig stjórn yrði
mynduð.
Græningjar eru mjög sundur-
laus hópur. Þeir eru eindregið á
móti kjarnorku og ýmis konar
stóriðju og segjast ætla að koma
á grænu draumalandi. Sumir
forystumenn þeirra hafa verið
orðaðir við kommúnisma.
Sumir af raunsærri leiðtogum
þeirra vilja halda þeim mögu-
leika opnum að þeir gætu tekið
þátt í samsteypustjórn með sós-
íaldemókrötum ef kratar féllust
á hluta af baráttumálum þeirra.
En aðrir hafa neitað að fallast á
nokkra málamiðlun við aðra
stjórnmálaflokka.
Eftir harðar deilur var loksins
samþykkt ályktun þar sem
möguleiki á samstarfi er ekki
útilokaður. Samkvæmt ályktun-
inni eiga flokksdeildir á hverj-
um stað að taka ákvörðun um
samstarf við önnur stjórnmála-
öfl í samræmi við þær sérstöku
kringumstæður sem þar ríkja.
Ekki tókst að afgreiða öll
mál, sem lágu fyrir þinginu, og
var ákveðið að halda aukaþing
eftir hálft ár.
Kínverjar
fylgja enn
marxismanum
■ Nú um nokkurra ára skeið hafa
Kínverjar fylgt efnahagsstefnu sem er
greinilega mjög frábrugðin hefðbundn-
unr marxisnta eins og hann er túlkaður
í Sovétríkjunum og eins og Mao túlkaði
hann lengst af. Raunsæisstefna Deng
Xiaoping hefur ráðið ferðinni, en hún
felst í því að allt sem eflir kínverskan
efnahag og bætir hag almennings er
gott og gilt þótt það sé kannski ekki
alveg í samræmi við skrif marxískra
frumkvöðla.
Nú fyrir helgi gengu Kínverjar einu
skrefi lengra í endurskoðun sinni á
gömlum marxískum fræðum. í leiðara
Dagblaðs alþýðunnar á föstudaginn
sagði m.a að nú væri meira en ein öld
síðan Marx hefði skrifað rit sín. Það
væru ekki til nein samtímarit eftir Marx
eða Lenin sem gætu leyst þau vandamál
sem Kínverjar stæðu núna frammi fyrir.
Leiðarinn vitnaði í það hvernig Mao
hefði gagnrýnt þá sem teldu marxism-
ann eitthvert tilbúið töfralyf sem lækni
alla sjúkdóma.
Þrátt fyrir þess gagnrýni á úrelt rit
marxismans var marxismanum samt
ekki hafnað í leiðara Dagblaðs alþýð-
unnar heldur var því haldið fram að
Kínverjar yrðu að þróa hann í samræmi
við breyttar kringumstæður.
Dansaðí
Peking
Peking-Reufer.
■ Nú stendur yfir danskeppni í
Peking, sú fyrsta frá því á sjötta ára-
tugnum.
Þrjúhundruð pör taka þátt í keppn-
inni. Þau velja sér þrjá dansa, sem geta
verið allt frá vals og foxtrott til diskó-
dansa. Flestir munu halda sig við gömlu
dansana enda eru 60% af keppendun-
um á aldrinum 47 til 54 ára.
Auk verðlauna til bestu dansaranna
verða einnig veitt verðlaun fyrir
klæðnað.