NT - 10.12.1984, Blaðsíða 16
Mánudagur 10. desember 1984 16
Rás2kl. 15.
Algengasta spurning á Islandi
Hvernig er veðrið?
■ Á Rás 2 í dag kl. 15 er
tekin til umfjöllunar einhver
algengasta spurningin sem bor-
in er upp á Islandi: Hvernig er
veðrið? Það er Ásta Ragnheið-
ur Jóhannesdóttir, sem sér um
þáttinn.
Eitt fyrsta verk íslendinga á
morgnana er að gá til veðurs
og síöan eyða þeir mikilli um-
hugsun og umræðum í að spá
um framvinduna eftir því sem
á daginn líöur, því að eins og
allir vita er veöurfar á íslandi
afar fjölbreytilegt og hefur ein-
hver orðheppinn útlendingur
einhvern tíma sagt að á Islandi
væri sko ekkert veður, aðeins
sýnishorn!
Og nú ætlar Ásta Ragnheið-
ur að taka þátt í umræðunni.
Hún segistætla í þætti sínum í
dag að vera með vangaveltur
um veðurfar og lög um hið
sama. Veðrið sé ákaflega
breytilegt og það sé lagavalið
líka. Það verður því sungið og
spilað um sólskin, rigningu,
o.s.frv. bæði í erlendum og
íslenskum lögum frá hinum og
þessum tíma.
Þátturinn stendur í klukku-
tíma og stendur einn sér, er
ekki hluti af röð.
Útvarp kl. 19.40:
Um daginn
og veginn
Unnur Stefánsdóttir
ræðir m.a. umferðar*
mál og uppeldismál
■ Unnur Stefánsdóttir fóstra
mun ræða „Um daginn og
veginn" kl. 19.40 í kvöld. Við
báðum hana að gefa okkur
svolitla nasasjón af því sem
hún tæki til umfjöllunar í er-
indi sínu. Það var auðsótt mál
við Unni og hún gaf upp
nokkra aðalpunkta úr rabbi
sínu um daginn og veginn.
Sjónvarp kl. 20.40:
■ Jessica Tandy sem leikur Fonsíu, og Hume Cronyn í hlutverki Wellers. í Iðnó léku þau Sigríður
Hagalín og Gísli Halldórsson þessar sömu persónur.
■ Unnur
fóstra.
Stefánsdóttir
„I fyrsta íagi,“ sagði Unnur,
„mun ég ræða um umferðina,
og kem þá helst inn á hinn
langa myrkurtíma vetrarins,
Ijós bifreiða og endurskins-
merki gangandi fólks og mikil-
vægi þess að allir geri sitt til að
afstýra slysum.
Svo er mér ofarlega í huga
málefni barna og uppeldismál,
m.a. ræði ég um barnaheimilin
sem forskóla og vek athygli á
því hve múlefni barna og
uppalenda þeirra fá litla um-
fjöllun í fjölmiðlum, og bendi
um leið á hið mikilvæga starf
sem fóstrur vinna með börnum
á forskólaaldri.
Ég ræði nokkuð um íþrótta-
mál, tala m.a. um hversu marg-
ir stunda íþróttir og hve þær
eru stór þáttur hjá fólki, en svo
jafnframt hvað þessu er lítið
sinnt peningalega af hálfu hins
opinbera. Eg legg áherslu á
hvað þetta er mikið starf sem
margir vinna sem sjálfboðalið-
ar við íþróttamál, og hversu
rnikið uppeldisstarf er fólgið í
íþróttunum. Einnig minnist ég
á hvað aukist hefur almenn
líkamsrækt, eða svokallað
„trimm“, og hvet fólk til að
fara strax út að hlaupa. - Nú
svo að síðustu kem ég aðeins
inn á jólaundirbúninginn,"
sagði Unnur Stefánsdóttir.
R0MMÍ í Sjónvarpinu
Var sýnt í Iðnó 1980-’82
Loks ætlar Emma að
ganga í það heilaga
- enda tími til kominn!
■ í kvöld kl. 20.40 hefst sýn- ■
ing lokaþáttar í fullu fjöri. í
síðasta þætti kom í Ijós að
Emma, dóttir Hesterar og
Wiiliams, er orðin barnshaf-
andi en þó enn ógift, föður
sínum til mikillar hrellingar.
Á því verður nú ráðin bót.
Brúðkaupsundirbúningur er í
fullum gangi, enda í mörg
liorn að líta, og þá er Hcster
einmitt í essinu sínu. Þau eiga
enn ógert að hitta tilvonandi
tengdafjölskyldu Emmu og
veröur aö vinda bráðan bug að
því fyrir brúökaupið, svo að
þau viti hver er hver á stóru
stundinni. Og svo þurfa þau að
flýta sér til Cockermouth, þar
sem Emma og Peter búa, með
barnavagninn.
Það er því í nógu að snúast
hjá Hestereinsogfyrri dagihn.
■ Foreldrar brúðarinnar sýna sína bestu hlið, þegar þau hitta
tengdafólkið.
salt í samskiptum tveggja oftstundirviðaðspilarommí.
vistmanna þar, sem stytta sér Þýðandi er Tómas Zoéga.
■ Það er engin ástæða til að örvænta þó að rigni í augnablikinu.
Sumir m.a.s. fyllast löngun til að syngja í rigningu. En það niá
alveg búast við að veðrið breytist áður en langt um líður.
■ Kl. 21.20 í kvöld verður
sýnt í sjónvarpinu bandarískt
verðlaunaleikrit eftir D.L.
Coburn. Sviðsleikstjóri var
Mike Nichols, en leikstjóri við
upptöku fyrir sjónvarp Terry
Hughes. Leikendur í sjón-
varps-útgáfunni eru sömu og
voru á frumsýningu leikritsins
á Broadway, eða þau Jessica
Tandy og Hume Cronyn.
Margir niuna áreiðanlega
eftir þessu leikriti frá sýningum
Leikfélags Reykjavíkur á því í
Iðnó á árunum l980-’82, þar
sem Sigríður Hagalín og Gísli
Halldórsson fóru með hlnt-
verkin. Leikritið gerist á elli-
heimili. Gaman og alvara vega
Sjónvarp kl. 21.20:
Mánudagur
10. desember
7.00 Veöuriregnir. Fréttir. Bæn.
Séra Birgir Ásgeirsson á Mosfelli
flytur (a.v.d.v.). Á virkum degi -
Stefán Jökulsson og María Mar-
iusdóttir.
7.25 Leikfimi. Jónina Benediktsdótt-
ir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Kristín
Waage talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Músin í Sunnuhlíð og vinir
hennar" eftir Margréti Jónsdóttur.
Sigurður Skúlason les (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Galdrar og galdramenn
Endurtekinn þáttur Haralds I. Har-
aldssonar frá kvöldinu áöur.
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir
13.30 Juliette Greco, Julio Iglesias
og Aretha Franklin syngja
14.00 Henry Dunant, stofnandi
Rauða krossins Sigurður Magn-
ússon flytur erindi.
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Popphólfið - Sigurður Krist-
insson. (RÚVAK).
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
17.10 Síðdegisútvarp - Sigrún
Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego
og Einar Kristjánsson. - 18.00
Snerting Umsjón: Gísli og Arnþór
Helgasynir. Tilkynningar.
18.45 Veðuriregnir. Dagskrá!
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.40 Um daginn og veginn Unnur
Stefánsdótlir fóstra talar.
20.00 Lög unga fólksins Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Sokkabandsár
min á Laugaveginum Kristinn
Ágúst Friðfinnsson ræðir við Árna
Jón Jóhannsson fyrrum sjómann.
b. Ljóð úr ýmsum áttum Auðunn
Bragi Sveinsson les Ijóð eftir nokk-
ur skáld. c. Jólamessa i Vatnsdal
Alda Snæhólm Einarsdóttir flytur
frumsaminn frásöguþátt. Umsjón:
Helga Ágústsdóttir.
21.30 Útvarpssagan: Grettis saga
Óskar Halldórsson les (11).
22.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Islands í Háskólabí-
ói 29. nóv. sl. Stjórnandi: Páll P.
Pálsson.
Mánudagur
10. desember
10:00-12:00 Morgunþáttur Mánu-
dagsdrunginn kveöinn burt með
hressileari músik. Stjórnandi:
Þorgeir Ástyaldsson.
14:00-15:00 Út um hvippinn og
hvappinn. Létt lög leikin úr ýmsum
áttum. Stjórnandi: Inger Anna
Aikman.
15:00-16:00 Hvernig er veðrið?
Stjórnandi: Ásta R. Jóhannesdótt-
ir.
16:00-17:00 Náiaraugað Reggítón-
list. Stjórnandi: Jónatan Garðars-
son.
17:00-18:00 Rokkrásin Kynning á
þekktri hljómsveit eða tónlista.r-
manni. Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helgason.
23.15 íslensk tónlist a. Barokk-svita
eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
Ólafur Vignir Albertsson leikur á
píanó. b. Fiðlusónata í F-dúr eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þor-
valdur Steingrimsson og Guðrún
Kristinsdóttir leika.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
10. desember
19.25 Aftanstund Barnaþáttur meö
innlendu og erlendu efni: Tommi
og Jenni, Sögurnar hennar
Siggu, Bósi, Sigga og skessan,
brúðuleikrit eftir Herdísi Egilsdótt-
ur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 í fullu fjöri Lokaþáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur. Þýðandi
Ragna Ragnars.
21.20 Rommí. Bandarískt verðlauna-
leikrit eftir D. L. Coburn. Sviðsleik-
stjóri Mike Nicholas. Leikstjóri við
upptöku Terry Hughes. Leikendur:
Jessica Tandy og Hume Cronyn
sem léku sömu hlutverk á frumsýn-
ingu leikritsins á Broadway. Leikrit-
ið gerist á elliheimili. Gaman og
alvara vega salt i samskiptum
tveggja vistmanna sem stytta sér
stundir við að spila rommi. Leikfé-
lag Reykjavíkur sýndi „Rommi“
tvö leikár samfleytl 1980-1982.
Þýðandi Tómas Zöega.
23.00 fþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
23.30 Fréttir í dagskrárlok.