NT - 17.12.1984, Page 1
Mynd eftir Mugg stolið
- af yfirlitssýningunni
í Listasafni ASÍ
■ Sl. föstudag hvarf blýantsteikning eftir
Mugg af yfirlitssýningu á verkum eftir lista-
manninn, sem staðið hefur yfir í Listasafni
ASÍ. Teikningin, sem hvarf nefnist Beta oger
gerð árið 1913. Samkvæmt óstaðfestum heim-
ildum blaðsins var hópur skólanemenda ásamt
kennara sínum í Listasafninu á föstudaginn og
með í hópnum maður sem tókst að smygia sér
inn án þess að eftir því væri tekið. Hefur fallið
grunur á þennan mann og er hans leitað.
Myndin sem hvarf er í eigu Elísabetar
Waage, systurdóttur Muggs og er raunar af
henni sem smábarni. Muggur gaf myndina
upphaflega Þuríði Bárðardóttur Ijósmóður
Elísabetar, en Þuríður arfleiddi Elísabetu að
henni eftir sinn dag.
■ Myndin Beta eftir Mugg, sem hvarf úr
Listasafni ASÍ.
Afrek slysavarnarmanna:
strandar við Stokksnes
- skipið að liðast sundur í fjörunni í Hornsvík, um 130 m frá landi
■ Klukkan 9:35 í morgun tóku björgunarsveitarmenn
Siysavarnarfélagsins á Höfn í Hornafirði á móti síðasta
skipbrotsmanninum af Sæbjörgu Ve 56 í fjörunni í
Hornsvík, um 1 mílu austan Stokksness.
Sæbjörgin strandaði 130-150 verið vélarvana, í SSA 8-9
metra frá landi eftir að hafa vindstigum síðan kl. 4:30 í nótt.
Annað loðnuskip. Erling Ke 45
kom Sæbjörgu til aðstoðar og
kom taug yfir í Sæbjörgina, sem
hafði látið bæði akkeri falla.
Taugin slitnaði hins vegar um 5
leytið, og vegna veðurs tókst
ekki að koma annarri taug á
milli. í>á varð einnig ljóst að
Sæbjörgin dró festar og um 7 í
morgun tók skipið niður í fyrsta
skipti en var orðið fast um 7:30.
Björgunarsveitin, sem var
ræst út um 5 leytið í nótt, kom
til aðstoðar með tæplega 40
manna lið, þ.á.m. lækni og rútu
sem útbúin var til að taka á móti
mönnunum. Aðgerðumástaðn-
um stjórnaði Guðbrandur Jó-
hannsson, formaður sveitarinn-
ar.
Tæplega hálf níu hafði tekist
að koma taug í skipið, og gekk
mjög vel að ná mönnunum í
land eftir það, og urðu engin
slys á mönnum.
Sæbjörgin er 20 ára gamalt
stálskip, smíðað í Harstad í
Noregi 1965, en lengt og yfir-
byggt 1978.
Nú laust fyrir hádegi braut
stöðugt yfir skipið og sögðu
sjónarvottar að ef ekki lægði
mætti eins búast við að skipið
liðaðist í sundur þarna í fjör-
unni.
Dýrareða
ódýrar
jólasteikur?
■ Hvar færðu jólasteik-
ina ódýrasta í ár? Þeirri
spurningu færðu svar við
ef þú lest NT í dag og á
morgun. Niðurstöður nýj-
ustu verðkönnunar Verð-
lagsstofnunar, sem fjallað
er um á neytendasíðu í
dag, sýna alveg ótrúlegan
verðmun á ýmsum tegund-
um kjötvöru.
í jólablaði NT sem kem-
ur út á morgun verða
niðurstöðurnar birtar í
heild sinni. Við á NT gerð-
um líka okkar eigin út-
reikninga á niðurstöðum
könnunarinnar og út-
bjuggum lista þar sem
verslunum er stillt upp í
verðmiðaröð.
Innbrot í tvo skóla
■ Áöfuranótt s.l. föstudugs
var brotist inn í Breiðholtsskóla,
stolið 20 þúsund krónum og
valdið miklu tjóni á húsnæði
skólans, hurðir og rúður brotnar
o.fl.
Aðfaranótt laugardagsins var
brotist inn í Árbæjarskóla og
þar var einnig valdið miklu tjóni
og á svipaðan hátt og í Breið-
holtsskóla. Unnið er að rann-
sókn á innbrotunum en að sögn
lögreglunnar færist það í vöxt
að brotist sé inn í skólahúsnæði.
■ Þessi teikning Óskars Jónassonar er gerð eftir lýsingum
sjónarvotta á strandstaðnum í Hornsvík, en vegna dimmviðris
reyndist ekki unnt að ná Ijósmyndum. Eins og sést á myndinni
eru bæði akkeri skipsins úti, en ofsaveður hafði dregið þetta
312 tonna stálskip hættulega nærri landi í morgun. Fjórtán
manna áhöfn skipsins var bjargað af slysavarnarmönnum við
erfiðar aðstæður, því að baki björgunarmanna gnæfa þver-
hníptir hamrar. Taugin, sem var fest við skipið, var tengd við
bíi björgunarmanna í landi og þann bíl þurfti að færa upp úr
kl. níu í morgun, þegar sjór var farinn að falla að honum.
NT>teikning: Óskar
Helgarskákmótið:
Haukur og
■ Haukur Angantýsson
og Elvar Guðmundsson
urðu efstir og jafnir á helg-
arskákmótinu Blönduósi
og Skagaströnd, sem fram
fór um helgina. Þeir hlutu
Elvar unnu
5 Vi vinnig úr 7 skákum.
í þriðja til fjórða sæti
urðu Dan Hansson og Jó-
hannes Gísli Jónsson með
5 vinninga.