NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 17.12.1984, Qupperneq 4

NT - 17.12.1984, Qupperneq 4
Mánudagur 17. desember 1984 iSamtök aldr- aðra Isaekja lum lóð: Vilja byggja íbúð- ir í vesturborginni ■ Samtök aldraðra hafa sótt um lóð við Frostaskjól undir 40-50 íbúða fjölbýlis- hús, þar sem ennfremur er gert ráð fyrir þjónustumið- stöð, sem Reykjavíkurborg myndi reka. Umsóknin er nú til meðferðar í borgar- kerfinu. Samtökin eru nú með í byggingu húsnæði fyrir aldraða í Bólstaðarhlíð- inni. Þar verða alls 66 tveggja og þriggja her- bergja íbúðir í tveimur sjö hæða húsum. Uppsteypa fyrra hússins er langt komin og verður það tekið í notk- un um áramótin 1985-86. Síðara húsið verður tekið í notkun ári síðar. íbúðirnar í þessum húsum eru svo til allar gengnar út. Pá hafa Samtök aldraðra afhent allar 14 íbúðir í húsi við Akraland, en það var fyrsta byggingin. íbúðirnar í húsunum eru fjármagnaðar af kaupend- unum sjálfum og skilyrði fyrir að fá húsnæði er að viðkomandi verður að vera orðinn 63 ára á afhending- ardegi. Samtökin áskilja sér síðan forkaupsrétt að öllum íbúðum, sem losna. Eina opinbera framlagið er tengt þjónustumiðstöðvunum, þar sem framreiddur verður matur og þar sem íbúar geta hvílt sig, stundað fönd- ur og komið saman. Kópavogur: 10.8% útsvar 1985 Tekjur bæjarfélagsins 404 milljónir ■ Kópavogskaupstaður hefur ákveðið álagningar- gjöld fyrir næsta ár og samkvæmt þeim munu tekjur bæjarfélagsins fyrir árið 1985 nema 404 millj- ónum króna. Útsvarsól- agningin fyrir árið 1985 verður 10,8% og er það sama hlutfall og var á þessu ári. Af 23 kaupstöð- um á landinu voru 18 með 11% útsvarsálagningu 1984, en lægsta álagning var 10.4% Ákveðið var að gefa 15% afslátt á fasteigna- skatti á íbúðarhúsnæði en afslátturinn var 10% á þessu ári. Fullt álag á íbúðarhúsnæði er 0,5% en verður því fyrir árið 1985 0,425%. Að sögn Kristsjáns Guðmundssonar bæjar- stjóra í Kópavogi var bryddað upp á þeint ný- mælum á þessu ári að gefa íbúum kost á að greiða fasteignagjöld á fimm gjalddögum, 10, jan., 1. febr., 1. mars, 1. apríl og 1. maí og mæltist það mjög vel fyrir. Var því ákveðið að hafa sama hátt- inn á fyrir greiðslur 1985. Þá er fasteignaskattur felldur niður á ellilífeyris- þegum og öryrkjum innan ákveðinna marka. Þannig fá þeir 100% niðurfeilingu sem eru með tekjur undir 322 þúsundum, 70% sem eru með tekjur á bilinu 322-364 þúsund og 30% niðurfellingu ef tekjurnar eru 364-412 þúsund. Sagði Kristján að þessi niðurfell- ing kæmi sjálfkrafa og þyrfti fólk ekki að gera sér ferð sérstaklega á bæjar- skrifstofuna til að hún kæmist í gegn. ■ Ur sjónleiknum Gúmmí-Tarsan, sem Leikfélag Húsavíkur frumsýndi þann 1. desember s.l. og notið hefur vinsælda meðal ungra sein þeirra eldri. Hér sjáum við sjálfan Gúmmí-Tarsan, leikinn af Þorgeiri Tryggvasyni og ástina hans hana Tinnu, leikna af Elínu Ólafsdóttur. Húsavík: Ungir leikarar íGúmmí-Tarsan ■ Leikfélag Húsavíkur frum- sýndi leikritið Gúmmí-Tarsan laugardaginn 1. desember s.l. í Vetrarskoðun Allir þurfa að hafa bifreiðina sína í lagi, sérstaklega yfir vetrartímann. Við yfirförum bifreiðina ykkar fyrir aðeins kr. 1.890,-, og bjóðum eftirfarandi: 1. Kveikjubúnaður. Kerti, þræðir, kveikjulok, kv.hamar, platinur og blöndungur. (Skipt um ef þarf.) 2. Ventlastilling. 3. Tímakeðjusleðar og tímakeðja ath. 4. Vélastilling 5. Viftureim ath., rafgeymir mældur, geymasambönd hreinsuð og varin. 6. Frostvari settur á rúðusprautur og rúðuþurrkur ath. 7. Frostvari settur á hurðarcylender fyrir lykil og silikon sett á hurðar og farangursþéttikanta. 8. Læsingar og lamir smurðar á hurðum, vélarloki og farangurs- geymslu. 9. Frostlögur mældur og kælikerfi ath. 10. Öll Ijós yfirfarin og Ijósastillt ef þarf. 11. Bremsur ath., (Hert út í ef þarf) 12. Stýrisgangur og hjólabúnaður ath. 13. Pústkerfi ath., festingar o.fl. 14. Slit á hjóllegum og hjöruliðum ath. 15. Kúpling stillt. 16. Vélarolía mæld og bætt á etþarf. 17. Olía ath., á drifi og girkassa. Ath! Efni er ekki innifalið í verðinu. Tökum einnig aö okkur að tjöruþvo, þrífa og bóna bifreiðina. B1FREIÐAVERKSTÆÐIÐ DVERGUR Smiðjuvegi E 38 ' Símar: 74488 - 79734, ■ Þessar þrjár ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar hljóðfærasjóði Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu og söfnuðu 6.754 krónumn. Þær heita, talið frá vinstri, lngibjörg Edda Haraldsdóttir, Hildur Sif Hreinsdóttir og Guðrún Berglind Sigurðardóttir. leikhúsi sínu við Garðarsbraut á Húsavík. Höfundur leikritsins er Ole Lund Kirkegárd. Leik- stjóri er Oktavía Stefánsdóttir og hefur hún einnig gert leik- myndina. Leikararnir eru flestir ung- lingar, piltar og stúlkur, og var gaman að sjá hve óþvingað og frjálst þetta unga fólk var. Sjálf- an Gúmnu'-Tarsan leikur Þor- geir Tryggvason. Hann gerir það með ágætum og er öll framsögn hans skýr og hnökra- laus. Tinnu, ástina hans Gúmmí-Tarsans, leikur Elín Ólafsdóttir. Af alls 18 leikend- um sem fram koma í sýningunni eru aðeins tveir fullorðnir, Mar- grét Halldórsdóttir sem leikur kennslukonu og Þorkell Björns- son sem leikur föður Gúmmí- Tarsans. í leiknum er mikið sungið og dansað við undirleik þriggja manna hljómsveitar. Hljóm- sveitina skipa Jósep Sigurðsson, Sigurjón Sigurðsson og Kristján Halldórsson. Sýningin er létt og skemmtileg bæði fyrir full- orðna, unglinga og börn. Þormóður Jónsson, Húsavík. Norræna eldfjallastöðin er 10 ára ■ Tíu ár cru liðin frá formlcgri vígslu Norrænu eldfjallastöðvarinnar haustið 1974 en hún er ein af fjölmörgum stofnunuin, sem cru reknar af öllum Norðurlöndunum. Tilgangur stofnunar- innar er tvíþættur. Annars vegar að stunda rannsóknir sem stuðla að aukinni þekkingu á hegðun og orsökum eld- virkni, hins vegar að skapa aðstöðu til þjálfunar og rannsókna fyrir námsmenn og vísindamenn á Norðurlöndunum. íslenska ríkið sér stofnuninni fyrir hús- næði í Jarðfræðahúsi Háskóla íslands og er stjórn stofnunarinnar skipuð einum fulltrúa frá hverju Norðurlandanna. auk þess scm í stjórninni eru fulltrúar þriggja stofnana á íslandi, sem fást við svipuð verkefni og Norrænu eldfjalla- stofnuninni er ætlað að sinna. Fast starfslið stofnunarinnar er 4 sérfræðing- ar á sviði jarðvísinda, 3 tæknimenn í rafeindafræðum og tækjasmíði og 3 starfsmenn sem annast fjármál, ritara- störf og bókavörslu. Auk þessa hefur stofnunin 5 stöður sem stjórn stofnunar- innar veitir til fimm ára í senn. Valið er úr umsóknum vísindamanna og náms- manna á Norðurlöndum, sem óska að kynnast eldvirkni af eigin raun og afla Tíu ára afmælis eldfjallastöðvarinnar minnst. Fremst ARne Noe Nygaard prófessor frá Danmörku og Guðmundur Sigvaldason forstöðumaður stofnunarinnar. Meðal gesta sem voru viðstaddir má sjá Guðmund Magnússon rektor og tvo fyrrv. ráðherra menntamála landsins, þá Vilhjálm Hjálmarsson og Gylfa Þ. Gislason. NT-mynd: Róbcri reynslu, sem geti komið aö notum við rannsóknir á forni eldvirkni í Skandi- navíu og Finnlandi. Einnig eru að jafnaði tveir eða fleiri gestir sem njóta starfsaðstöðu við stofnunina, án launa. Á undanförnum 10 árum hafa 34 styrkþegar dvalið við Norrænu eldfjalla- stöðina um lengri cða skemmri tíma og hafa sumir dvalið allt að 3 árum, en það er hámarkslengd dvalar, sem stjórn stofnunarinnar hefur styrkt. Nokkrir hafa lokið rannsóknarverkefnum sem síðar hafa verið notuð til doktorsprófs í heimalandi en aðrir Itafa unnið að slíkum prófverkefnum við stofnunina. Beiðnir um styrkþegastöður við Nor- rænu eldfjallastöðina hafa ætíð verið fleiri en hægt var að sinna og fer fjöldi umsókna vaxandi með árunum. Fyrsti formaður stjórnar Norrænu eldfjallastöðvarinnar var Arne Noe Ny- gaard, prófessor frá Danmörku. Núver- andi formaður er Frans Erik Wickman, prófessor frá Svíþjóð, en forstöðumað- ur er Guðmundur Sigvaldason jarð- fræðingur. 10 ára afmælisins var minnst með samkomu í Norræna húsinu fyrir skömmu þar sem Arne Noe Nygaard flutti erindi og Vilhjálmur Knudsen sýndi myndir frá Kröflueldum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.