NT - 17.12.1984, Side 12
Þrjár Ijóðabækur
í einni:
Tunglspá
- eftir Pálma Öm
Guðmundsson
■ Tunglspá heitir ný Ijóðabók
eftir Pálma Örn Guðmundsson
og er hún gefin út af höfundi.
Tunglspá er í raun og veru þrjár
Ijóðabækur í einni, fyrsti hlut-
inn heitir „Veðurtepptur í há-
loftunum" og mun innihalda ný
Ijóð höfundar en ánnar og þriðji
hluti „Veruleikasprenging í
leikhúsinu" og „Með annarri
flugvél frá blómalandinu" eru
að meginuppistöðu endurútgáfa
fyrri ljóðabóka Pálma, en ein-
hverju hefur verið sleppt úr.
Tunglspá er 144 bls. mynd-
skreytt teikningum eftir bróður
skáldsins, Krúsa, og ljósmynd-
um og er komið víða við í
yrkisefnunum. Litlar eða engar
upplýsingar eru um höfundinn
en hann mun vera bróðir Einars
Más, þess er skrifar af kappi í
Kaupmannahöfn og getið hefur
sér gott orð fyrir Riddara
hringstigans.
GUDMUNDUR GUDJONSSON
VATNAVITJUN
Viötol og sogubrot af stangaveiðimonnum
Bókum
stangveiði og
veiðimenn
■ Út er komin bókin „Vatna-
vitjun - viðtöl og sögubrot af
stangaveiðimönnum" eftir
Guðmund Guðjónsson blaða-
mann. Bók þessi höfðareinkum
til þeirra sem yndi hafa af stanga-
veiði í ám og vötnum, en aftan
á bókarkápu stendur:
Veiði í ám og vötnum hefur
löngum verið áhugamál margra.
Menn fara á vit náttúru og
útivistar úr amstri daglegs lífs
og kljást við lax eða silung í ám
og vötnum landsins.
Fyrir þann sem ekki hefur
farið í vatnavitjun kann það
að vera skrítið þegar veiðimenn
segja frá veiðiferðum öllum
þeim margvíslegu minningum
sem þær færa hverjum sem í þær
fer.
En veiðimaðurinn skilur hvað
við er átt þegar lýst er viður-
eigninni við laxinn eða silung-
inn.
Veiðimenn eru misjafnir,
sumir veiða oft meira af kappi
en forsjá, aðrir njóta umhverfis-
Mánudagur 17. desember 1984 12
ins og stunda veiðina með list-
rænu ívafi.
í þessari bók fara saman frá-
sagnir fjögurra þekktra veiði-
manna og lýsingar á veiðum
með mismunandi agni.
Skemmtilegar sögur af ónefnd-
um veiðimönnum og skynsöm-
um löxum.
Þeir sem segja frá eru: Ólafur
G. Karlsson tannlæknir, Rafn
Hafnfjörð prentsmiðjustjóri og
ljósmyndari, Hjalti Pórarinsson
læknir og Guðlaugur Bergmann
framkvæmdastjóri, allt þekktir
veiðimenn með sína sérvisku og
aðferðir við veiðar.
Útgefandi er Bókhlaðan
VÍÐATTUR
UÓO
SiGVALDI HJÁLMARSSON
„Víðáttur"
■ Úterkominönnurljóðabók
Sigvalda Hjálmarssonar og
nefnist hú „Víðáttur". Áður
hefur Sigvaldi gefið út greina-
söfn og ferðabók frá Indlandi
auk bóka um hugrækt, og aust-
ræna heimspeki.
Spennusaga
um rafmagns-
leysi
■ Bókaforlag Odds Björns-
sonar gefur út spennusöguna
Skammhlaup eftir Arthur Hail-
ey. Höfundurinn er þekktur
hérlendis sem erlendis, og af
fyrri bókum hans má nefna
Hótel, Gullna farið, (Airport),
Bankahneykslið og Bílaborgin.
Margar þeirra hafa verið kvik-
myndaðar.
í skáldsögunni „Skamm-
hlaup“ segir Arthur Hailey frá
aðdraganda og afleiðingum
þess, að alvarlegur rafmagns-
skortur skellur á heilan lands-
hluta í Bandaríkjunum. Þegar
rafmagnsmiðlun fellur alveg
niður í nútímaríki verður slík
röskun á daglegu lífi, að erfitt er
að gera sér það í hugarlund.
Samt er ekki óhugsandi að
svona gæti farið í náinni
framtíð.
„Skammhlaup" er skemmti-
leg og spennandi skáldsaga í stíl
við fyrri bækur höfundar, sem
hafa aflað honum heimsfrægð-
ar. Bókin er 415 bls., prentuð
og bundin inn hjá Prentverki
Odds Björnssonar h.f., Akur-
eyri. Verð kr. 899.Ö0.
_______Merming_____
Fimm nýjar bækur
frá Menningarsjóði
■ Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélagsins
kynnti á dögunum fimm for-
vitnilegar bækur, sem ný-
komnar eru á markað. Þær eru
Þingvellir eftir Björn Th.
Björnsson, Vafurlogar eftir
Indriða G. Þorsteinsson, Gott
er að lifa eftir Jón úr Vör,
Hvað er ein milljón á milli
vina? eftir Gísla J. Ástþórsson
og Bréf til Jóns Sigurðssonar 11
í samantekt Finnboga Guð-
mundssonar, Jóhannesar Hall-
dórssonar og Einars Laxness.
Leiðsagnarbók um
Þingvelli
í bók sinni um Þingvelli lýsir
Björn Th. Björnsson stöðum
og leiðum um Þingvelli, þjóð-
garð íslendinga og frægasta
sögustað þeirra. Lesandinn er
leiddur um gjár og stíga, fornar
gönguleiðir, hella og eyðibýli.
Hverri leið fylgir göngukort og
fjöldi Ijósmynda lýsir þeim
stöðum sem fjallað er um.
Myndirnar eru bæði í svart-
hvítu og í lit og teknar af Rafni
Hafnfjörð. kortin eru gerð af
Gunnlaugi Ingvarssyni korta-
gerðarmanni.
15smásögur Indriða
Vafurlogar Indriða G. hafa
að geyma 15 smásögur frá síð-
ustu þrjátíu árum, tólf hafa
birtst í áður útgefnum smá-
sagnasöfnum, en þrjár hafa
ekki áður birst á bók. Indriði
hefur verið landsþekktur höf-
undur allt frá því hann kvaddi
sér fyrst hljóðs með sögunni
Blástör, sem hlaut fyrstu verð-
laun í smásagnasamkeppni
Samvinnunnar 1951.
Gott er að lifa
Þetta er tólfta ljóðabók Jóns
úr Vör. Hún skiptist í fimm
hluta sem bera fyrirsagnirnar
Um fóstra minn, Skáldfuglar,
Myndasafnið, Bréf til vorsins
og Nútíð og saga.
Jón úr Vör hefir í raun verið
landsþekkt Ijóðskáld allt frá
því að hann gaf út fyrstu bók
sína, Ég ber að dyrum. en með
Þorpinu tryggði hann sig í sessi
sem eitt af fremstu Ijóðskáld-
um íslands. Flestir munu geta
tekið undir það nú að Þorpið
hafi markað tímamót í ís-
lenskri Ijóðlist.
Hvað er ein milljón?
Gísli J. Ástþórsson er löngu
kunnur sem sérstæður og fynd-
inn skáldsagna- og leikrita-
höfundur og teiknari, en hann
myndskreytir bækur sínar
gjarna sjálfur. Sagan er flókin
og margræð og „endar á frum-
legan og óvæntan hátt eins og
Gísla J. Ástþórssyni er tamt
þegar hann gerir upp hlutina í
skáldverkum sínurn," segir í
tilkynningu frá forlaginu.
Bréf Jóns illa varðveitt
Jón Sigurðsson var mikill
hirðumaður og geymdi vel
sendibréf sem hann fékk og er
mikið af þeim verðveitt.
Hið sama er ekki hægt að segja
um bréf hans sjálfs til landa
sinna, þau hafa mörg lent í
glatkáetunni. Bréfin í
hinni nýju bók eru skrifuð af
Jens Sigurðssyni, bróður Jóns,
og síðast lektors við lærða
skólann, Jón Péturssyni sýslu-
manni og síðar háyfirdómara
og Jóni Guðmundssyni alþing-
ismanni og ritstjóra.
■ Fimm höfundar: Indriði G. Þorsteinsson, Einar Laxness, einn þriggja sem söfnuðu bréfunum til Jóns Sigurðssonar, Björn Th.
Björnsson, Jón úr Vör og Gísli J. Ástþórsson. NT-imnd: Róbert
Afturhvarf til
rómantíkur-
innar
■ Frjálst framtak hefur gefið
út bókina „Hvernig elska á
konu“, eftir bandaríska höfund-
inn Michael Morgenstern.
Bókin kom fyrst út í Bandaríkj-
unum árið 1982 og vakti þá
þegar gífurlega athygli og seldist
í milljónumeintaka. Hefurbók-
in nú verið þýdd á mörg tungu-
mál og hvarvetna fengið góðar
viðtökur.
í bókinni “Hvernig elska á
konu“ er fjallað um samband
karla og kvenna á raunsæjan og
nútímalegan hátt og ástin hafin
til vegs og virðingar. Segir höf-
undurinn að bókin fjalli í raun
um það sem hann kallar „aftur-
hvarf rómantíkurinnar og að
bókin fjalli um ástir“, og hann
telur að sú bylgja frjálsræðis
t.d. í kynferðismálum sem ríkt
hefur um skeið hafi nú hjaðnað
og fólk leggi meira upp úr
innilegu tilfinningasambandi en
oft áður.
Bókin fjallar í senn um fegurð
og unað ástarlífsins. Höfundur
byggir á viðtölum sem hann átti
við fjölda kvenna sem hann
fékk til að svara spurningu sinni
hvernig þær vildu vera elskaðar.
Mörgum spurningum sem
brenna í vitund fólks og margir
veigra sér við að spyrja er
svarað og bókin á að veita
raunhæfa leiðsögn og verða til
þess að bæta sambúð og sam-
band fólks.
Þýðandi bókarinnar er Sig-
urður Hjartarson. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni
Odda, en kápu hannaði Ernst
Bachmann.
Sófus Berthelsen
FLÆKJUR
Æskureynsla
Hafnfirðings
■ Sófus Berthelsen hefur gef-
ið út bókina „Flækjur,“ sem er
byggð á æskureynslu höfundar,
sem er kunnur Hafnfirðingur.
Sumar persónurnar kannast
Hafnfirðingar við, aðrar eiga
sér aðeins tilvist í hugskoti höf-
undar. Hann hefur áður gefið út
ljóðabókina „Hugarflugur.“
Þora Kristinsdottir
Nokkrar hugniyndir
um móðurmálskennsiu
fyrir byrjendur
10
Smirít Kennaraháskola Islanda og Idunnar
Smárit KHÍ og Iðunnar:
Nýtt rit með
löngu nafni
- ummóðurmáls-
kennslu
■ Nokkrar hugmyndir um móð-
urmálskennslu fyrir byrjendur.
Langt nafn á nýju riti í flokki
Smárita Kennaraháskóla ís-
lands og Iðunnar. Höfundur er
Þóra Kristinsdóttir.
Riti þessu er sérstaklega ætl-
að að miðla nýjum hugmyndum
um lestrarkennslu og móður-
málsnám. Þar er m.a. fjallað
um forkennslu og updirstöðu
lestrarnámsins, og hópskiptingu
í bekk eftir lestrargetu. Loks
eru í ritinu lýsingar á nokkrum
spilum, sem nota má í lestri,
stafsetningu og málfræði.
Pó/turinn Pq||
Óhoppodogur
Pósturinn Páll
og kötturinn
Njalli
■ Út eru komnar hjá Erni og
Örlygi tvær litlar bækur um
Póstinn Pál sem allir krakkar
kannast við úr hinum vinsælu
sjónvarpsþáttum. Önnur bókin
heitir Pósturinn Páll - Happa-
dagurinn - en hin heitir Póstur-
inn Páll - Óhappadagur. Hér
birtast þeir Ijóslifandi Palli póst-
ur og kötturinn Njalli og allir
vinirnir í Grænadal. Höfundur
texta er John Cunliffe. Celia
Berridge myndskreytti. Hrafn-
hildur Wilde þýddi.