NT - 17.12.1984, Blaðsíða 23

NT - 17.12.1984, Blaðsíða 23
Höfum fengið frábærlega falleg sætaáklæði í allar gerðir bíla. Margir litir. Einnig hvít áklæði á höfuðpúða og laus bílteppi. Er ekki tilvalið að kíkja á þetta fyrir jólin STOÐVARNAR Mánudagur í 7. desember 1984 23 Handknattleikur 1. deild: Valsmenn fóru létt með Stjörnuherinn - mikið um varin vítaskot ■ Það var höfuðlaus Stjörnu- her úr Garöabænum sem mxtti Val í 1. deildinni í handknatt- leik í gær í Laugardalshöll. Þaö var einungis í 10-15 mínútur sem Stjarnan lék vel í leiknum, og náði þá að jafna illa stæðan leik um miðjan síðari hálfleik. Síðan fór allt í vitleysu á ný á meðan Valsmenn nutu sín á allan hugsanlegan máta og gjörsigruðu. Úrslit 21-14 eftir aö staöan hafði verið 9-5 í hálfleik. Valsmenn komust í 2-0 og 3-1 í upphafi. en Stjarnan jafn- aði 3-3. Síðan sigu Valsmenn fram úr á ný og leiddu 9-5 í hléi. Fyrstu 15 mínútur síðari hálf- leiks voru góðar hjá Stjörn- unni. Þá var barist, leikið hratt í sókn og af dugnaði í vörn. Liðið náði að minnka muninn í 10-11 og 11-12, en þá reið einhæfnin í sókn að nýju húsum og Valsmenn með Valdimar Grímsson í banastuði stungu af með velútfærðum hraðaupp- hlaupum og hornaspili. Staðan breyttist úr 11-12 í 11-17, síðan 13-19 og 14-21. Valsmenn voru mun betri í fyrri hálfleik með Júlíus Jónas- son sem besta mann í langskot- urn oggegnumbrotum. Leikur- inn var svo jafn fyrri hluta síðari hálfleiks, en lokakafli Vals var góður. Valdimar missti ekki skot út hraðaupp- hlaupum og hornurn, Jakob og Júlíus voru fljótir og enda- punkturinn var þegar Þorbjörn Guðmundsson plataði Stjörnu- menn upp úr skónum og renndi sér fallega í gegn og skoraði Handknattleikur 2. deild: tvisvar í röð. A meðan stóð ekki steinn yfir steini hjá Garðabæjarliðinu, sóknar- leikurinn varð tómt hnoð úti á miðjunni, og hornamenn gleymdust hreinlega. Þannig fór oftast allt í baklás, boltan- um glatað og Valsmenn hurfu á sekúndunni. Leikurinn í heild var alltof þétt setinn mistökum á báða bóga til að teljast góður. og mistökin voru allra, að undan- skildum markvörðunum. Meira að segja dómararnir, Rögn- valdur Erlingsson og Gunnar Kjartansson, viðurkenndustu dómarar landsins, voru óörugg- ir og mistækir þannig að stund- um varð leikurinn allsherjarvit- leysa. En góðir kaflar björguðu því sem bjargað varð. Valdimar Grímsson, Einar Þorvarðarson markvörður og Júlíus Jónasson voru bestu menn Vals ásamt Þorbirni Guðmundssyni, sem fyllti skarð nafna síns Jenssonar vel. Brynjar Kvaran bar af í Stjörnuliðinu. Án hans hefði tapið getað verið upp á a.m.k. 15 mörk. Mörkin: Valur: Valdimar 7, Júlíus 5, Þorbjörn 3, Jakob 3, Jón Pétur 2 og Steindór 1. Stjarnan: Eyjólfur Bragason 4, Hannes Leifsson 2, Guðmund- ur Þórðar 2, Guðmundur Ósk- ars 2, Gunnlaugur 1, Hermund- ur I. Ingimar 1 og Magnús 1. Brynjar varði 13 skot, þar af 4 víti, og Einar varði 12 skot. Brynjar Kvaran varði mjög vel í marki Stjörnunnar í gær. Það dugði þó ekki til sigurs. NT-mynd: TrygRvi Haukar lögðu Ármann ■ Haukar lögðu Ármenninga að velli í 2. deild karla í handknattleik í Hafnar- firði í gær. Lokatölur urðu 24-21 fyrir Hauka, en staðan var 10-10 í hálfleik. Haukar byrjuðu betur og náðu 4-5 marka forskoti. En Ármenningar náðu að rétta sinn hlut fyrir leikhlé, þá var staðan 10-10. í síðari hálfleik var jafnt áfram, þar til Haukar sigu fram úr undir lokin, 24-21. Snorri Leifsson var markahæstur Hauka með 8 mörk, Árni Sverrisson skoraði 7, Lárus Ingvason gerði 5, Jón Hauksson 3 og aðrir minna. Einar IVfawby og Ingólfur Steingrímsson voru markahæstir Ármenninga með 5 mörk hvor, en Þráinn Ármannsson, Haukur Haraldsson og Hans Sveinbjörnsson skoruðu 3 hver. Öruggt hjá HK ■ HK sigraði Fylki í annarri deild karla í handknattleik í gær í Digranesi 21-19. Sigur HK var sanngjarn ogörugg- ur, munurinn lengst af talsvert meiri: Staðan í hálfleik var 13-9 HK í hag. HK seig fram úr strax í fyrri hálfleik, náði þá 4-5 marka forskoti og hélt því nánast út leikinn. Liðið slakaði aðeins á í lokin og þá minnkuðu Fylkismenn mumnn. Björn Björnsson var atkvæðamestur HK-mannanna með 9 mörk. Aðrir skor- uðu mun færri. Ragnar Ólafsson golf- maður lék vel með HK í leiknum, skoraði 3 mörk og sýndi gamla takta. Gunnar Björnsson var atkvæðamestur Árbæinganna, skoraði 6 mörk. í allar geröir blla Brassar: Vilja fá Santana strax ■ Brasilíumenn hafa boðið Saudi-Ar- öbum að spila við þá vináttuleik í knattspyrnu ef þeir samþykki að láta lausan Tele Santana, fyrrum þjálfara brasilíska landsliðsins. Ekki er Santana í fangelsi þarna hjá Aröbunum heldur er hann þjálfari hjá stórliði þar í landi er heitir Al-Ahli. Samningur Santana við þetta félag á að renna út í mars en brasilíska knatt- spyrnusambandið vill fá hann til starfa strax í janúar svo hann geti farið að undirbúa Brassanna fyrir leiki þeirra gegn Bólivíu og Paraguay í undan- keppni heimsmeistarakeppninnar. I viðtali við forseta brasilíska knatt- spyrnusambandsins kom fram að hann vonaðist til að Joao Havelange, forseti FIFA (Alþjóðaknattspyrnusambands- ins) myndi beita sér fyrir því að Santana fengi að fara frá Saudi-Árabíu fyrr er áætlað er. „Svo erum við reiðubúnir til að fara og spila æfingaleik þarna ef það flýtir fyrir gangi mála.'1 sagði forseti brasilíska knattspyrnusambandsins, Dilson Guedes. Knattspyrnupunktar ■ Einn leikur var í úrslitakeppni um Afríkubikar landsliöa í knatt- spyrnu í gær. Keppt var um 3.sætið í keppninni. Uganda vann sigur á erkifjendunum frá Kenýa með mörkum Semanobe og Vvubya, sem gerði tvö mörk. Eina mark Kenýa gerði Ayoyi strax á 10. mín. Hann jafnaði leikinn þar sem Uganda- inenn skoruðu eftir 5 mín. Leikur- inn endaði sem sagt 3-1. COUNTY VANN ■ Einn leikur var í 2. deild ensku knattspyrnunnar í gær. Notts Co- unty sigraði Fulham með tveimur mörkum gegn einu. Þessi leikur kemur ekki fram á stöðu liöanna sem birt er á bls. 22.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.