NT - 17.12.1984, Síða 26
■ Þeir félagar hjá Barcelona, Archibald og Venebles hafa átt gott ár fram að þessu. Nú er spurning
hvort „El Barca“ sé komið á tapbraut?
Holland:
PSV óstödvandi
- vann Ajax sannfærandi
Frá Rcyni Þór Finnbogasyni frcttamanni NT
í Hollandi:
Ajax-PSV .....................14
■ Leiks þessa var beðið af
mikilli eftirvæntingu þar sem
liðin eru í fyrsta og öðru sæti í
hollensku úrvalsdeildinni.
Flestir veðjuðu á Ajax þar sem
þeir höfðu ekki tapað leik til
þessa og hafa mjög góðum
einstaklingum á að skipa. Lið
PSV byggir aftur á móti á
liðsheildinni.
PSV hóf leikinn af miklum
krafti, lá í sókn og fékk góð
tækifæri. Ajax náði ekki að
sýna neitt, en þó lá í loftinu að
liðið gæti bætt við sig. Það
gerðist þóekki þvíá 16. mínútu
skoraði Ernie Brandts fallegt
mark, 0-1.
PSV tvíefldist við þetta, og
sótti enn stífar. Á 29. nínútu
skoraði svo PSV aftur, Rene
Vander Gijp var að verki.
Pannig var staðan í hálfleik.
Seinni hálfleikur var á sama
hátt og sá fyrri. Leikmenn PSV
lágu í sókn, og sóknarmenn
Ajax sáust ekki. Á 51. mínútu
var Rene Vander Gijp aftur á
ferð og skoraði 3-0. Pað kom
öllum jafnmikið á óvart hve
Ajaxliðið var slakt. Par vantaði
alít skipulag og einhvern til að
byggja upp sóknir. Hjá PSV
aftur á móti byggðist aílt á því
hve liðsheildin var góð. Á 74.
mínútu tókst PSV að gera út
um leikinn og var þar Valke að
verki.Það var ekki fyrr en á 88.
mínútu að Ajax náði að rétta
hlutfallið aðeins með marki
Austurríkismannsins Felix
Gasselich.
Stórsigrar Týs
Frá Sigfúsi G. Guð-
mundssyni fréttamanni
NT í Eyjum:
■ Týrarar unnu stórsig-
ur á ÍBH bikarkeppninni
í handknattlcik hér í Eyj-
um um helgina. Úrslit
urðu 33-14 Eyjaliðinu í
hag. Liðin inættust svo
ai'tur, að þessu sinni í 3.
deildinni, og þá vann Tyr
28-14.
Pjálfari Ajax sagði eftir leik-
inn að óskiljanlegt hefði verið
hve liðið var slakt. „Við vorum
aldrei nógu ógnandi og vörnin
brást algerlega. Við áttum ein-
faldlega slæman leik og ekkert
er við því að gera þó það hafi
verið gegn PSV.“
Pjálfari PSV sagði eftir leik-
inn: „Við lékum agaðan bolta
og það bar árangur. Við erum
með bestu liðsheildina í Hol-
landi nú.“
Den Bosch-Feyenoord . . 1-2
Den Bosch hefði ekki átt að
vera mikil hindrun fyrir Feye-
noord þar sem liðið er í tíunda
sæti í hollensku deildinni en
Feyenoord í því þriðja. Annað
kom á daginn. Feyenoord var
mjög lélegt í fyrri hálfleik.
Liðið náði aldrei að ógna veru-
lega, og réði lítt við baráttuglatt
lið Den Bosch. Den Bosch tók
forystuna á 43. mínútu, Vander
Horst skoraði. Sanngjörn staða
í hálfleik.
Feyenoord hafði vaknað við
vondan draum, og sótti stíft í
■ Stefán Konráðsson Stjörn-
unni og Ragnhildur Sigurðar-
dóttir UMSB urðu hlutskörp-
ust á Flugleiðamótinu í Borð-
tennis um helgina, en þar voru
mættir til leiks sterkustu borð-
tennisleikararlandsins. Athygli
vakti í karlaflokknum að Stefán
sigraði Tómas Guðjónsson KR
í úrslitaleik, en Tómas hefur
verið nánast ósigrandi í borð-
tennis undanfarin ár hér á
landi.
Stefán sigraði Tómas í
spennandi úrslitaleik, sem end-
aði 3-2. Stefán sigraði þó nokk-
uð örugglega í oddahrinunni,
21-9, Tómas Sölvason KR varð
þriðji og Kristján Jónasson
Víkingi fjórði.
Ragnhildur varð öruggur sig-
urvegari í kvennaflokki, önnur
upphafi seinni hálfleiks. Fljót-
lega gaf Gullitt fallega fyrir
markið og Houtman skallaði
inn 1-1. Eftir þetta var ein-
stefna að marki Den Bosch.
Mario Bein stjórnaði spilinu
eins og herforingi hjá Feye-
noord, og honum tóícst á 63.
mínútu að skora stórglæsilegt
mark með fallegu skoti, 1-2.
Mörk Feyenoord hefðu átt að
geta orðið fleiri, en þeim tókst
ekki að bæta við.
Pétur Pétursson er enn
meiddur og lék ekki með Feye-
noord í leiknum.
Önnur úrslit i hollensku deildinni:
MW-Twente ................3-0
Sparta-ZwoUe..............2-2
Excelsoior-Haarlem........0-1
AZ 67-Volendam ...........3-0
Sittard-Roda JC...........0-0
G.A.Eagles-Utrecht .......3-1
NAC-Groningen.............1-2
Staða efstu liöa:
PSV Eindhoven . 16 10 6 0 47-16 26
Ajax........... 15 12 2 1 47-19 26
Feyenoord...... 15 10 2 3 44-22 22
Groningen ..... 16 8 5 3 31-18 21
Twente ........ 16 8 3 5 31-27 19
varð Kristín Njálsdóttir UMSB
þriðja Sigrún Bjarnadóttir
UMSB og fjórða Arna Sif
Kjærnested Víkingi, þrefaldur
sigur UMSB.
Borðtennis:
Stefán sigraði
- Ragnhildur vann kvennaflokkinn
________Mánudagur 17. desember 1984 26
íþróttir
Spánn:
Loksins tapaði
Barcelona leik
Atkinson
vill kaupa
Ernie Brandts
Frá Reyni Þór Finnbogasyni
frcttuinanni NT í Hollandi:
■ Framkvæmdastjóri
Manchester United á Eng-
landi, Ron Atkinson varvið-
staddur leik Ajax og PSV í
hollensku úrvalsdeijdinni í
knattspyrnu í gær. Ástæðan
fyrir því er áhugi Man. Unit-
ed á Erniet Brandts leik-
manni PSV Eindhoven.
Áhugi Manchester vakn-
aði eftir leik PSV við Man
Utd í Evrópukeppninni í
haust, þar sem Brandts var
mikilvægasti varnarmaður
PSV. Eftir þessa Evrópuleiki
hefur Atkinson fylgt Brandts
fast eftir og hefur m.a. gert
tilboð í hann upp á 10 mill-
jónir ísl. króna. PSV sýndi
tilboðinu ekki áhuga, en
Atkinson hefur ekki misst
móðinn.
Búist er við því að Atkin-
son noti helgina til viðræðna
og benda allar líkur til þess
að gengið verði frá samning-
unum. Ef PSV fær nógu gott
tilboð getur PSV varla sagt
nei, þrátt fyrir að Brandts sé
lykilmaður í liðinu. Brandt
átti frábæran leik í sigurleik
PSV gegn Ajax í gær.
eftir 14 taplausa leiki í röð
■ Eftir að hafa ekki tapað
leik í 15 skipti í röð þá kom
Barcelona loks niður á jörðina
er Bilbao vann „El Barca" í
Bilbao, 1-0. Þetta gerir það að
verkum að Real Madrid er nú
aðeins 3 stigum á eftir Barce-
lona en Real vann sigur á liðinu
sem var í þriðjasæti, Valencia.
Leikurinn í Bilbao ætlaði þó
ekki að geta hafist vegna þess
að skipasmíðaverkamenn
ruddust inná völlinn til að mót-
mæla niðurskurði í þeirra stétt.
En þegar leikurinn hófst þá
voru þeir Barcelónamenn mun
betri án þess að skapa sér
teljandi færi. Það var svo út-
herji Bilbao, Salinas sem skor-
aði eina mark leiksins á 71
mínútu rneð fallegu skoti sem
markvörður Barcelona réði
ekkert við.
Real Madrid fékk góðar mót-
tökur á heimavelli sínum eftir
að hafa lagt Anderlecht að velli
í UEFA-keppninni fyrr í vik-
unni. Argentínumaðurinn sí-
skorandi Valdano sá svo um að
sigurinn félli Real í hlut er
liann gerði eina mark leiksins á
23.mín.
ÚRSLIT:
Malaga-Valladolid................3-1
Athletic Bilbao-Barcelona........1-0
Sevilla-Sporting.................0-1
Real Madrid-Valencia.............1-0
Racing-Hercules..................2-0
Real Zaragoza-A Madrid...........1-1
Elche-Real Murcia................0-0
Espanol-Real Sociedad............1-3
Osasuna-Real Betis...............1-2
STAÐA EFSTU LIÐA:
Barcelona ...... 16 10 5 1 30 12 25
Real Madrid .... 16 9 4 3 19 11 22
Real Sociedad .... 16 6 7 3 17 8 19
RealBetis....... 16 6 7 3 21 14 19
Valencia ....... 16 5 8 3 17 8 18
Sporting ....... 16 5 8 3 16 13 18
A.Madrid........ 16 6 6 4 19 15 18
Met hjá
Eðvarð Þ.
Eðvarðssyni
■ Eðvarð Þ. Eðvarðsson
frá Njarðvík setti eitt Is-
landsmet í sundi í Evrópu-
bikarkeppninni í sundi sem
haldin var í Bergen í Noregi
um helgina. Eðvarð synti
200 metra fjórsund á 2:10,19
mínútum á laugardag.
Tveir íslendingar inættu
til leiks á mótinu, Eðvarð og
Ragnar Guðmundsson
skriðsundsmaður, en þeir
æfa báðir sund af miklu
kappi hjá danska félaginu
Neptun, þar sem Guðmund-
ur Harðarson faðir Ragnars
og fyrrum landsliðsþjálfari
er þjálfari.
Eðvarð keppti einnig i 200
metra baksundi á laugardag,
synti á 2:06, 5 mín. og varð í
10. sæti. Hann komst því ekki
í úrslit, frekar en í fjórsund-
inu þar sem hann varð í 13.
sæti. - Ragnar keppti í 400
metra skriðsundi á laugar-
dag, og varð í 15. sæti á
4:19,76 mín.
í gær keppti Eðvarð í 100
metra baksundi, synti á
59,67 sekúndum og varð í
12. sæti. Eðvarð var aðeins
frá sínu bcsta, en hans besti
árangur hefði dugað honum
í úrslit, svo mjótt var á
munum. Ragnar keppti í
1500 metra skriðsundi í gær,
varð í 14. sæti á 16:31,13
mín.
Johan Cryuff:
Er ráðgjafi
hjá Roda JC
Frá Reyni Þór Finnbogasyni
fréttamanni NT í Hollandi:
■ Knattspyrnufélagið Roda
JC Kerkrade, sem er í áttunda
sæti hollensku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu, hefur verið
mikið í fréttum hér upp á síð-
kastið. Fyrir nokkrum vikum
var þjálfari liðsins Hans
Eykemiroik rekinn þar sem
óánægja var með frammistöðu
liðsins undir stjórn hans. Það
barst einnig í tal að núverandi
„fjármagnari" (sponsor) liðsins
myndi draga fjárstuðning sinn
l til baka að þessu keppnistíma-
bili loknu.
Fjármagnarinn vildi þó ekki
taka ákvörðunina á eigin
spýtur, heldur fékk knatt-
spyrnukempuna Johan Cryuff
til liðs við sig. Gryuff mun
einnig gefa liðinu tækni-
lega ráðgjöf frá og með 1.
janúar n.k. „Það verður aðal-
lega um ráðgjöf varðandi
kaup og sölu á leikntönnum
að ræða, ef annað bætist við
kemur það í ljós í viðræðum
við stjórn Roda,“ sagði Gruyff
sjálfur.
Cruyff mun fylgjast með
nokkrum leikjum Roda á næst-
unni, og hefur þegar fylgst með
tveimur leikjum liðsins. Hann
var m.a. viðstaddur leik Roda
og AZ 67 um síðustu helgi, og
varð það fyrsti leikurinn í lang-
an tíma sem liðið hefur unnið.
í gæt gerði liðið markalaust
jafntefli. Það er því eins og
liðið hafi barist fyrir lífi sínu
vitandi af Cruyff á pöllunum.
1