NT - 29.12.1984, Side 1
Horft f ram á veginn um áramót
■ í tilefni áramótanna leitaði NT til formanna þeirra stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á Al- þingi og bað þá um að líta Iram á veginn í tilefni áramóta. Því miður náð- ist ekki í fulltrúa Kvenna- listans í tíma og mun við- tal við einhvern forystu- mann þeirra birtast í NT eftir áramótin. Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra: ifrtjga W 41» v'l g .1 ^ w m p
Bjartsýnn á
að krepp-
unni sé
að Ijúka
■ Sú kollstevpu sem nú er
orðin með 60-70% verðbólgu
í desember og á fyrstu mánuð-
um næsta árs er að mínu mati
langtum alvarlegra mál en
menn almennt gera sér grein
fyrir. Þá á ég ekki síst við þann
mikla viðskiptahalla sem er
að miklu leyti afleiðing af
þessari enduruppvöktu verð-
bólgu. Ég er þeirrar skoðunar
að okkur íslendingum sé ákaf-
lega þröngur stakkur sniðinn
af mikilli verðbólgu ogerlend-
um skuldum og ég hygg að
næsta ár geti skipt sköpum
um það hvernig okkur tekst
að lifa hér uin langa framtíð.
Ég get ckki séð að á árinu
J985 verði mjög aukið svig-
rúm til kjarabóta yt'ir línuna,
því miður, og ég held að á því
ári verði mikilvægast að leita
samstöðu milli stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins um
kjarasamninga sem gefa okk-
ur möguleika til að renna
nýjum stoðum undir efna-
hags- og atvinnulíf okkar.
Ég er aö vísu bjartsýnn á
að þessari kreppu sé að Ijúka.
Þetta er þriðja meiriháttar
kreppan sem við göngum í
gegnum frá stríðsárunum og
þær hafa staðið í u.þ.b. 2-4 ár,
og hafa leitt til 7-8% sam-
dráttar í þjóðarframleiðslu.
Síðan hefur orðið nokkuð
hraður vöxtur og ég hef mikla
trú á því að svo verði enn. Að
vísu er munurinn mikill nú frá
hinum tveimur. í fyrsta lagi
þá er verðbólgan og erlendar
skuldir miklu meiri nú en
áður og okkur þannig miklu
þrengri stakkur sniðinn. I
öðru lagi þá hefur í bæði hin
skiptin, sérstaklega eftir síðari
kreppuna, fylgt stóraukin
hlutdeild okkar íslendinga í
afla á íslandsmiðum með út-
færslu fiskveiðilögsögunnar.
Ég held að það sé flestra mat
að við höfum áriö 1981 náð
hámarki þess sem við getum
með sæmilegu móti tekið af
íslandsmiðum. Þess vegna er
mín spá sú, að þetta geti orðið
nokkuð hraður bati, en
skammvinnur. og þá getur
komið stöðnun ef okkur tekst
ekki að koma af stað hagvexti
eftir öðrum leiðum.
Áttu von á því að stjórnar-
samstarfiö muni halda?
Stjórnarsamstarfið þarf að
endurskoða. Það er alveg
ljóst að í 60-70% verðbólgu
er staðan allt önnur en við
vonuðum að hún yrði og ég
held að ýmislegt af því sem
menn töldu eðlilegt í 10-12%
verðbólgu sé það ekki nú. Ég
nefni sem dæmi að það hefur
verið stefna þessarar stjórnar
að láta hinn almenna markað
sem mest um samninga. Vit-
anlega gerum við það áfram,
en ég álít að stjórnvöld verði
að koma inn í þær umræöur
nijög snemma á næsta ári.
Okkur var legið á hálsi fyrir
það að hafa ekki boðið upp á
skattalækkunarleiðina nógu
snemma, jafnvel af þeim
mönnum sem hafa álasaö okk-
ur fyrir of mikil afskipti af
kjarasamningum. Ég held að
í þessari erfiðu stööu sé það
rétt að stjórnvöld komi inn í
slíkar viðræöur nijög
snemma.
Ég vil að lokum óska öllum
landsmönnum farsæls nýs árs
og þakka fyrir það sem er að
líða, ekki síst mínum sam-
flokksmönnum.
Jón Baldvin
Hannibalsson:
Alþýðuflokkur-
inn gæti orðið
stærstur
■ Ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar hefur þegar
lagt upp laupana þ.e. hún cr
búin að vera. Vonir standa til
að útförin fari fram með
virðulegum og sómasamleg-
um hætti á næsta ári. Ástæð-
urnar eru margar og þarf ekki
að tíunda í löngu máli. Nefna
má þó eitt til. Fyrir jólin
samþykktu stjórnarliðar fjár-
lög sem þeir allir vissu að
tilheyrðu leikhúsi fáránleik-
ans. Það er ekki nóg með það
að fjárlögin væru með halla
heldur var þeim haldið uppi
nteð erlendum lánum. Jafn-
hliða var sett fram lánsfjár-
áætlun, að vísu óafgreidd,
sem gerir ráð fyrir nettóaukn-
ingu erlendra lána, til viðbót-
ar þessum 45 milljörðum sem
fyrir eru, upp á 3 milljarða.
Þótt ekkert kæmi til annað þá
sýnir þetta að í ríkisstjórn
sitja þreyttir menn, hug-
myndalausir, stefnulausir og
samkomulag þeirra er búið að
vera. Það var lagður á hækk-
aður söluskattur þrátt fyrir
það að samkvæmt vitnisburði
fjármálaráðuneytisins sjálfs er
söluskattsformið hriplegt og
ónýtt skattakerfi. Það er sama
hvert 'litið er. Hvergi örlar á
vitiborinni hugsun fram í
tímann. Frumkvæði að um-
bótum, vérkstjórn eða bú-
hygginduni. Þarna þarf því
ekki um að binda. Gæfa þjóð-
arinnar reynist vonandi næg
til þess áð fá kosningar og þá
ekki seinna en í vor. Þá er
spurningin. Til hvers og um
hvað?
Þaö eina sem hefur gerst
nýtt í íslenskum stjórnmálum
á seinni hluta líðandi árs er
endurnýjun Alþýöuflokksins.
Við höfum nú sett okkur
stefnu sem er róttækasta um-
bótastefna sem nokkur
stjórnmálaflokkur hefur sett
sér á íslandi frá 193-3 er
Alþýðuflokkurinn setti fram
kosningastefnuskrá, fjögurra
ára áætlun gegn kreppu og
atvinnuleysi sem síðan varð .
málefnasáttmáli róttækustu
umbötastjórnar sem setið hef-
ur á íslandi. Stefnuskrá okkar
núna ber heitið. „Hverjir eiga
ísland? Fámenn stétt fjár-
magnseigenda eða hinn vinn-
andi fjöldi. Leið Alþýöu-
flokksins til þess að jafna
eigna og tekjuskiptingu og
stuðla að þjóðfélagslegu rétt-
læti." Þetta cr ekki Biblía, en
þetta er róttæk. raunsæ og
framkvæmanleg stefnuskrá.
Hún er mjög nákvæm og ítar-
leg í efnahagsmálum. skatta-
málum og kjaramálum. Þessa
stundina smíða okkar hæfustu.
menn ítarlega stefnuskrá í
málefnum sjávarútvegs.
byggðastefnu og húsnæöis-
pólitík.
Út á þessa stefnuskrá og út
á þá staöreynd að við erum
eini flokkurinn með pró-
gramrn ætlum við okkur stóra
hluti. Ég tcl ekkert frálcitt að
spá því ef kosningar verða í
vor að Alþýðuflokkurinn gæti
orðið stærsti flokkur þjóðar-
innar.
Svavar Gestsson:
Vonandi tekst
að koma ríkis-
stjórninni frá
■ Ríkisstjórnin rembist við
að framkvæmda leiftursókn-
arstefnuna þó að allar félags-
legar og efnahagslegar stað-
reyndir mæli á móti því að
þessi stefna sé framkvæman-
leg hér á landi - enn síður
reyndar en annarsstaðar.
Leiftursóknin kemur fram í
eftirfarandi m.a. I. Vextireru
hækkaðir - þó er augljóst að
vaxtaokrið veldur fyrirtækj-
ununt og einstaklingunum,
cinkum þeini sem eru að
-kaupa sér íbúðir, meiri vanda
en nokkru sinni fyrr. 2. Verð-
lag er gefið frjálst - enda.þótt
Ijóst sé að það skapar hættu á
því að það breytist smám
saman í einokunarverömynd-
un_sem birtist fólki í okurverði
á lífsnauðsynjum. 3. Niður-
greiðslur á landbúnaðarvör-
um eru lækkaðar enda þótt
það skapi aukinn vanda í
útflutningsuppbótum á land-
búnaðarafurðir. 4. Lagður er
á sjúklingaskattur sem kemur
fantalega niður á öldruðum,
sjúkum ogfötluðum. 5. Skatt-
ar eru lækkaöir á þeint fyrir-
tækjum sem liafa besta af-
komuna á sama tíma og fram-
leiðsluatvinnuvegirnir berjast
í bökkum. 6. Húsnæðislán
_eru að vísu hækkuö-en engir
peningar eru til fyrir hækkun-
inni. Vextir af húsnæðislánum
hækka svo mikið að öll hækk-
unin hverfur sem dögg fyrir
sólu. 7. Tillögur Alþýðu-
bandalagsins um framlög til
dagvistarmála eru felldar
enda þótt gerðar séu tillögur
um tekjuöflun á móti. 8.
'Kjarasamningar eru bannaðir
með lögum og enn er gert ráð
fyrir því að þrengja svigrúm
til kjarasamninga með því að
banna áfram veröbætur á
laun. 9. Hernaðarfram-
kvæmdireru áuknar. Bætt við
tveimur nýjum herstöövum á
meðan aðrar þjóðir leggja
áherslu á að draga úr vígbún-
aði. 10. Geröur er
samningur við Alusuisse án
þess að láta reyna á til þrautar
og álverið fær stækkun í
forgjöf. Tillögur um að verja
ávinningi þeirrar hækkunar
. sem fæst vegna undirbúnings-
starfs fyrrverandi iönaðarráð-
herra til að lækka húshitunar-
kostnað eru felldar á Alþingi.
Gert er ráð fyrir hækkun á
þjónustu allra raforkufyrir-
tækja nú á næstu dögum. II.
Ríkisstjórnin sagðist ætla að
minnka erlend lán en tekur nú
erlend lán til eyðslu og veðset-
ur þannig framtíð barnanna
okkar. 12. Ríkisstjórnin þótt-
ist ætla að stöðva verðbólguna
en magnar nú verðbólgubálið
þannig að verðbólguhraðinn
er þegar kominn talsvert yfir
80%. 13. Ríkisstjórnin ætlaði
að halda genginu föstu - cn
hefur þegar fcllt það langt
umfram kostnaðarhækkanir í
þjóðfélaginu - og án þess að
verðbætur komi á laun fyrir
gengislækkunina.
Ætli það sé undarlegt þó að
ég - í framhaldi af þessari
upptalningu - segi eins og
flestir landsmenn um þessi
áramót: Ríkisstjórnina burt -
það er aðalatriðið. Vonandi
tekst að koma lienni frá á
árinu 1985.
Guðmundur Einarsson:
Stærstu verkefn-
in eru þjóðfélags-
legt réttlæti og
sjálfsvirðing
■ Ef við lítum í kring uni
okkur í nútíöinni cr margt
scm vekur athygli. Gainla
llokkakcrfJð er að daga uppi
eins og tröllkcrlingar í dag-
renningu. IVlcnn grípa þar til
gamaldags aðferða svo scm
hlægilcgrar persónudýrkunar
og fjórflokkarnir styðja hver
við hakið á öörunt, t.d. í
hankaráðskosningunum fyrir
jól. Þar sannaðist á Alþýðu-
llokknum að bcr er hver að
baki ncma sér bróður eigi.
Sjálfstæöisflokkurinn er á
kafi í innanhúsarkitektur á
ríkisstjórnarheimilinu.
Það er náttúrlega fullkom-
lega eölilegt að mcnn greini á
í pólitík utan stjórnar og
innan, en ósamlyndið vcldur
þreytu og áhugaleysi sem gerir
stjórnina óvirka. Þess vegna
er hún búin að vera.
Stærstu verkcfnin framund-
an eru auðvitað þau sem varða
þjóðfélagslegt réttlæti og
sjálfsvirðingu fólksins í land-
inu. Þar á ég við þaö að frískt
fólk á aö geta unnið fyrir
fjölskyldum sínum og að þaö
er nauðsynlegt að gcra endur-
bætur á skattakerfi, húsnæðis-
lánakerfi og lífeyriskerfi. Á
þessum sviðum er ríkisvaldið
beinlínis að framfylgja mis-
rétti og.óréttlæti sem er svo
gífurlogt að hagsmunapotar-
arnir í fjórflokkunum munu
aldrci geta leiðrétt það. Ann-
að mjðg mikilvægt verkefni er
uppbygging atvinnulífs. Þar
verður Alþingi að mynda far-
vegi sem-geta gert fólki kleift
að bjarga sér sjálft án þess að
þurfa sífellt að þiggja bón-
bjargir við borð stjórnmála-
manna sem virðast telja það
hlutverk sitt að stofna sjálfir
gjaldþrota fyrirtæki á heima-
slóðum.
Ef menn fara rétt nteð þá
þekkingu og þrautseigju sem
þessi þjóð hefur safnað sér í
þúsund ár þá hlýtur að fara
vel. á endanum, cn þá mega
stjórnvöld ekki þvælast fyrir.
Að síðustu gleöst ég fyrir
hönd framsóknarmaddöm-
unnar sem plataði lyklavörö-
inn ogskaut sálinni hansTóm-
asar síns inn um gullna hliðið
í árslok,-
Þorsteinn Pálsson:
... þá getum við
horft með bjart-
sýni tH
framtíðar
■ Það er Ijóst að verðbólga
hefur farið vaxandi á nýjan
lcik og cf ekkert verður að
gert heldur hún áfrant að
vaxa. Eins og sakir standa þá
stefnir í talsvcrðan viðskipta-
halla og höfuðatvinnugrein-
arnar eiga við býsna mikil
vandamál að ctja. Á hinn
bóginn cr Ijóst aö erfiðleikar
sjávarútvcgsins lcysast ekki
áeinni nóttu. Þeireru flóknari
en svo.
Þó að þessi niynd sé dökk
þá er ástæöulaust aö æðrast
og viö höfum ýnisa möguleika
til þcss að brjótast út úr þeirri
erfiöu stöðu sem viö erunt í og
það sem skiptir meginmál er í
iyrstii lagi það að leggja
grundvöll að verndun kaup-
máttar og alhliða samkomu-
lagi um launauppgjör á næsta
ári. Það er alveg Ijóst að
hvorki þjóðfélagið, heimilin
né fyrirtækin þola langvinn
verkfallsátök eða samnings-
niðurstöður af santa tagi og á
þessu ári. Þess vegna verður
aö leita nýrra leiða til lausnar
á þeim viðfangsefnum. Það
hlýtur að vera citt meginverk-
efni næsta árs. í öðru lagi þarf
að hleypa af stað þeim ráð-
stöfunum sem óhjákvæmileg-
ar eru til þess að efla atvinnu-
líf að því er varðar aukið
lánsfjármagn til atvinnuveg-
anna og þær kerfisbreytingar
sem óhjákvæmilegar eru til
þess að stuðla að þeirri þróun.
I þriðja lagi þurfa menn síðan
að gera þær ráðstafanir í p.en-
ingamálum sem nauðsynlegir
eru ætli menn að konta bönd-
um á þróunina.
í stórum dráttum eru þetta
þau verkefni sem við blasa og
ef um þau tckst mikil og góð
samstaða þá getum við snúið
hlutum til betri vegar og horft
með nokkurri bjartsýni til
framtíðarinnar, þó syrt hafi í
álinn. ,