NT - 29.12.1984, Page 7
Laugardagur 29. desember 1984 7
__________________________ta*.____________
Haraldur Hannesson formaður
Starfsmannafélagsins sagði biðina
hafa borgað sig, en samningurinn var
aðeins hagstæðari en sá er BSRB
hafði nýskrifað undir.
2. nóvember var frétt um ungan pilt
er missti annan fótinn við ökla og
orsökin var sú að ekki voru öryggis-
hlífar yfir snigli þar sem hann vann.
Daginn eftir svndu blaðamenn NT
fram á hvernig hægt væri að fá dóp í
apótekinu. Málið komst í sali Alþingis
og blaðamennirnir voru kærðir fvrir
vikið, en nú er unnið að endurbótum
á símalyfsseðilsreglum vegna þessa.
Helgina 2. og 3. nóvember voru
brennivínsdauðir unglingar hirtir af
götunum í Reykjavík. Og ríkið gaf
Eimskip eftir aðflutningsgjöld kran-
ans Jaka.
Þriðjudaginn 6. nóvember var gert
ráð fyrir stórgróða af Fríhöfninni.
Samningur hinna glötuðu tækifæra
ASÍ og VSI var undirritaður þann 6.
nóv. Þá stefndi í 200% aukningu
gjaldþrotamála.
Strax í kjölfar samninganna byrjaði
að bera á uppsagnamóð kennara,
Þann 8. nóvember sagði Gísli Bald-
vinsson, kennari, að uppsagnir
kennara lægju fyrir um mánaðarmótin
nóv. des. ef kjör kennara yrðu ekki
bætt.'
8. nóv. varðist stjórnin vantrausti.
Ammoníakleki kom upp í frysti-
geymslu Eimskip.
10. nóvember sagði forsíðufrétt
okkar að gengið hefði sigið. Nema
hvað. Önnur frétt einnig á forsíðu
sagði láglaunafólk mjög óánægt með
nýgerðan samning. Nema hvað.
Svo gerði NT skoðanakönnun. Þar
kom í Ijós að Kvennalistinn sækir í sig
veðrið; svo og Framsóknarflokkur-
inn. í Reykjavík var rán, árás og
nauðgun.
Þá fór íslenskt lambakjöt á völlinn
og Davíð var fyrstur yfir. Kjötið fór í
ameríska hermenn en Davíð fór yfir
Gullinbrú fyrstur manna.
Skoðanakönnun okkar sýndi einnig
að stjórnmálamenn eru ekki trausts-
ins verðir. Eða svo sagði NT þann 16.
nóv.
Um svipað leyti var farið að bera á
gengisfellingarspám og forsíða NT
17. nóv. sagði: „Stefnir í 20% gengis-
fellingu á 14 mánuðum."
Helgina eftir var Jón Baldvin kos-
inn formaður Alþýðuflokksins. Síðan
hrundi loftið í sundlauginni á Lauga-
vatni.
Þann 20. nóvember taldi NT verð-
bólguna stefna í 40% en bót í máli er
að síðan var spáð hjöðnun verðbólgu.
Léleg þátttaka í hópuppsögnum
kennara varð til þess að grunnskóla-
kennarar hættu við fyrirhugaðar að-
gerðir. Þetta var í samræmi við niður-
stöður skoðanakönnunar NT í vik-
unni áður en ákvörðunin var tekin.
Síðast í mánuðinuni var leitað að
þremur ungmennum við afrétti Laug-
dæla. Þau fundust 27. nóvember,
heil á húfi.
28. nóv. spáði blaðið því að Tómas
Árnason fengi stöðu seðlabanka-
stjóra. Mánuði síðar kom í ljós að
blaðið hafði að venju rétt fyrir sér.
Á jólaföstu hrinti Hjálparstofnun
kirkjunnar af stað fjársöfnun til hjálp-
■ Forráðamenn BSRB á skrifstofu
Ríkisskips, en það fyrirtæki tók virk-
an þátt í verkfalli BSRB.
ar þeim milljónum sem í Eþíópíu
þjást af næringarskorti og tók fólkið
á eyjunni vel við sér að venju.
I byrjun desember kom upp á
yfirborðið að 6. nóvember hafi legið
við að tvær Flugleiðavélar rækjust
saman eftir flugtak í Keflavík, en
flugtaksheimild fengu þær meö mín-
útu millibili og fór sú seinni hraðar en
hin, enda Boeing. Liggur við að það
sé að verða daglegt brauð að flugvélar
rekist næstum því saman, og yfirleitt
er því borið við að flugumferðarstjór-
ar séu sturlun nær af þreytu eftir
vaktir sem standa sleitulaust vikum ef
ekki mánuðum saman. Veigamikið
öryggisatriði væri ef hægt væri að láta
þá blunda af og til og sjálfsagt verður
það athugað strax eftir fyrsta raun-
verulega áreksturinn.
10. desember brann frystihús Jök-
uls á Raufarhöfn og varð að sjálfsögðu
milljónatjón og 45 manns sáu á eftir
atvinnu sinni í logana. Sama dag valt
krani í sjóinn í Sundahöfn en krana-
stjórinn komst rland lifandi. 13.dag
jólamánaðar fengu svo á annað
hundrað starfsmenn Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur uppsagnarbréf og
var vinnslu hætt í bili 21. des. Jafn-
framt eru atvinnuhorfur slæmar hjá
fiskvinnslufólki um allt land.
Blaðamenn Helgarblaðs NT láta
víða til sín taka og um þessar mundir
fara þeir fram á opinbera rannsókn á
saurugu ástandi Ástarbrautarinnar,
sem er fjöruvegur úr Reykjavík út á
Seltjarnarnes.
í desember kom einn rismesti
stjórnmálamaður á Norðurlöndum
Olav Palme í opinbera heimsókn til
íslands og flutti eldmessu um afvopn-
unarmál m.m. Um svipað leyti kaupir
Landsbankinn togarann Bjarna Herj-
ólfsson á uppboði, en þar er nú
megnið af flotanum.
16. desember strandar Vestmanna-
eyjabáturinn Sæbjörg við Stokknes,
en björgunarmönnum tókst að hífa
áhöfnina í land. Um sömu helgi var
mynd eftir Mugg stolið úr listasafni
ASI. Síðar kom í ljós að þjófurinn
hafði eyðilagt myndina.
Rétt fyrir jól lauk stríði, vaxta-
stríöi, með sigri Seðlabankans sem
hækkaði vexti „til samræmis við verð-
bólguþróun", þrátt fyrir andóf ýmissa
ráðherra úr Framsóknarflokki og
flugeldar komu á markað með mynd-
um af ráðherrum, þannig að um
áramótin getur hver sem er sprengt
ríkisstjórnina og er það mikil framför
því engum þykir vænt um hana
lengur.
Jólin fóru friðsamlega fram sagði
Ríkisútvarpið, liðið fyllti kirkjur og
slakaði á og þegar þetta er ritað er
stutt í áramótin, en þá tekur árið 1985
við af árinu 1984 og enn eitt árið
bætist við í safn minninganna. Það er
föstudagur 28.desember og veðrið er
vont. Árið byrjaði með óveðri og
ætlar að kveðja á sama hátt, en
yfirleitt var þetta blessaða ár milt og
gott.
Guðmundur J.
alþingismaður
iiili
j : •'
■: ■ .
S*........
.
Geir Hallgrímsson, utanrikisráðherra
Halldór Ásgrimsson,
sjávarútvegsráðherra
Jón Helgason, landbúnaðar- dóms-
Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra
Hermannsson,
forsætisráðherra
8gerðiraf flugeldum
sem tileinkaðir eru
stórsprengjum
stjórnmálanna.
upp á stjörnuhimininn
LKS
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA